|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Olga Bjarnadóttir varaformaður, D-lista, Ragnar Óskarsson nefndarmaður, D-lista, Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista, Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista, Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri |
|
|
| Almenn afgreiðslumál |
| 3. 2607138 - Erindi um tenginu Hrefnutanga við fráveitukerfi Árborgar |
Sviðsstjóra falið að meta hagkvæmni og kostnað við að tengja þau hús sem standa norðaustan við Jaðar á Selfossi við fráveitukerfi sveitarfélagsins.
Við matið verði m.a. horft til fjölda fasteigna sem um ræðir, nauðsynlegra framkvæmda og tæknilegra útfærslna, áætlaðs stofn- og rekstrarkostnaðar, mögulegs kostnaðarhlutdeildar fasteignaeigenda og ávinnings sveitarfélagsins af tengingunni.
Sérstaklega verði metið hvort kostnaður sveitarfélagsins við framkvæmdina réttlæti tengingu húsanna, með hliðsjón af fjölda fasteigna sem um ræðir og væntanlegum tekjum sveitarfélagsins af fráveitugjöldum.
Niðurstöður matsins, ásamt kostnaðaráætlun og tillögu að mögulegri útfærslu, verði lagðar fyrir nefndina til frekari umfjöllunar og ákvörðunar. |
|
|
|
| 4. 2609028 - Fyrirspurn frá áheyrnafulltrúa C-lista - Gróður og umhirða |
| Nefndin felur sviðsstjóra að taka saman svör við erindinu og leggja fyrir nefndina. |
|
|
|
|
| Erindi til kynningar |
Ólafur Hersisson frá Hornsteinum Arkitektum kemur inn á fundinn undir málinu.
|
| 1. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli |
| Nefndin þakkar góða kynningun hönnuða á tillögum 3.áfanga Stekkjaskóla sem unnar eru í samráði við fulltrúa notenda. |
|
Ólafur víkur af fundi kl.09:00
|
|
|
| 2. 2609014 - Engjavegur - göngu - og hjólaleið |
| Nefndin vísar tillögunni til fjárhagsáætlunargerðar. |
| Engjavegur-stigar_A2-vestur.pdf |
| Engjavegur-stigar_A2-snid.pdf |
| Engjavegur-stigar_A2-austur.pdf |
|
|
|
| 5. 2509490 - Fjárfestingaráætlun 2026-2029 |
| Sviðsstjóri fór yfir stöðu nýframkvæmda í fjárfestingaráætlun og drög að endurskoðun fjarfestingaráætlunar fyrir árið 2026. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 |