Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026

Laugardaginn 29. ágúst

Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 6

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
13.08.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2608046 - Breytingar á HSu Selfossi vegna uppbyggingar
Kynntar upplýsingar frá forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Selfossi og breytinga á starfsemi Ljósheima.
Bæjarráð fer yfir fyrirhugaða uppbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) á Selfossi. Fram kom að bæjarstjórn hafi verið boðið til upplýsingafundar í sumar með forstjóra HSU þar sem farið var yfir stöðu uppbyggingar og þær aðgerðir sem þarf að vinna að til að efla heildarþjónustu HSU bæði á Selfossi og öðrum starfstöðvum á Suðurlandi. Bæjarráð fagnar því að loksins sé tryggt fjármagn í frekari uppbyggingu HSU á Selfossi. Uppbygging sem eflir þjónustu fyrir íbúa líkt og heilsugæslu og bráðamóttöku, heimaspítala, heimahjúkrun, geðheilbrigðisteymið og fleira.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að fá fund með ráðherrum vegna uppbyggingar og reksturs hjúkrunarheimila í sveitarfélaginu enda mikilvægt að halda áfram að fjölga hjúkrunarrýmum í stækkandi samfélagi á starfssvæði HSU.
2. 1703295 - Kauptilboð - Grímsfjósastykki
Minnisblað bæjarstjóra, dags. 10.ágúst 2026 og nýtt verðmat, dags. 7.júlí 2026 á tveimur landspildum norðan við Stokkseyri, kynnt vegna erindis Jónasar Henningssonar, f.h. núverandi leigutaka, um möguleg kaup á spildunum.
Bæjarráð samþykkir að selja erindisbeiðanda og núverandi leigutaka Grímsfjósarstykki, F234-1268 og Augndælur, F250-1818 á grundvelli matsverðs dags. 7.júlí 2026. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá afsali og öllum skjölum er varða söluna.
Samþykkt
Fundargerðir
3. 2606023 - Fundargerðir Farsældarráð Suðurlands - 2026-2030
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 8:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica