Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 55

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
05.05.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Jóhann Jónsson nefndarmaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
Unnur Edda Jónsdóttir fjármálastjóri sveitarfélagsins ásamt Bryndísi Guðjónsdóttur frá PwC endurskoðun koma inn á fundinn
1. 2604306 - Ársreikningar Selfossveitna 2025
Ársreikningur Selfossveitna bs. fyrir árið 2025 lagður fram til samþykktar stjórnar.
Ársreikningur Selfossveitna bs. fyrir árið 2025 lagður fram til samþykktar stjórnar.
Heildarrekstur Selfossveitna árið 2025 er neikvæður um 23,2 millj.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 12,1 millj.kr halla.

Selfossveitur bs. eru í eigu Sveitarfélagsins Árborgar og eru hluti af B-hluta reikningsskilum sveitarfélagsins.

Stjórn Selfossveitna staðfestir ársreikninginn.
2. 2604309 - Ársreikningur vatns- og fráveitu Árborgar
Ársuppgjör vatns- og fráveitu Árborgar lagður fram til samþykktar stjórnar.
Ársuppgjör fráveitu og vatnsveitu fyrir árið 2025 er lagt fram til samþykktar stjórnar.

Heildarrekstur fráveitu og vatnsveitu fyrir árið 2025 er jákvæður um 985,9 millj.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 640,7 millj. kr. hagnaði.
Fráveita og vatnsveita eru B-hluta stofnanir Sveitarfélagsins Árborgar og því hluti af B-hluta reikningsskilum sveitarfélagins.

Stjórn vatns- og fráveitu staðfestir ársuppgjör fráveitu og vatnsveitu.
Bryndís Guðjónsdóttir víkur af fundi kl.09:04.
Unnur Edda Jónsdóttir víkur af fundi kl.09:15
3. 2102410 - Hreinsistöð við Geitanes
Farið yfir innkomin tilboð vegna útboðs á fullnaðarfrágangi hreinsistöðvar við Geitanes
Nefndin felur sviðsstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að ganga til samninga og undirrita við lægstbjóðanda svo fremi sem þeir uppfylli kröfur útboðsgagna.
Opnunarskýrsla útboðs_Hreinsistöð fullnaðarfrágangur_300426.pdf
4. 2604291 - Nýtt tjaldsvæði í Árborg
Farið yfir tilboð í fergingu vegna gatnagerðar á nýju tjaldsvæði á Selfossi
Nefndin felur sviðsstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að ganga til samninga og undirrita við Smávélar ehf.
5. 2604290 - Gatnagerð Breiðamýri
Farið yfir tilboð vegna framkvæmda við framlengingu gatnagerðar á Breiðamýri, Selfossi
Nefndin felur sviðsstjóra mannvirkja- og umhverfissviðs að ganga til samninga og undirrita við Smávélar ehf.
6. 2604308 - Endurgerð á ráðhúströppum
Farið yfir kostnaðaráætlun og hönnunargögn vegna útboðs á framkvæmdum við endurgerð á ráðhúströppum.
Nefndin felur sviðsstjóra að bjóða út framkvæmdina í samræmi við fyrirliggjandi gögn.
Erindi til kynningar
7. 2109014 - Vatnsöflun frá Kaldárhöfða
Farið yfir stöðuna á vatnsöflun við Kaldárhöfða
Lagt fram til kynningar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica