73. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 6. maí 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2510456 - Ársreikningur Árborgar 2025
Ársreikningur Árborgar 2025 lagður fram til síðari umræðu.
2. 2303295 - Menningarstefna Sveitarfélagsins Árborgar
Tillaga frá 168. fundi bæjarráðs frá 22. apríl, liður 2. Menningarstefna
Sveitarfélagsins Árborgar.
Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar, kemur inn á
fundinn og fer yfir uppfærða menningarstefnu.
Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að
samþykkja hana.
3. 2604222 - Samþykktir Héraðsnefnd Árnesinga 2026
Lagðar eru fram til fyrri umræðu tillögur að breytingum á samþykktum
Héraðsnefndar Árnesinga 2026, sem samþykktar voru á 36. fundi Héraðsnefndar
Árnesinga bs., sem haldinn var 14. apríl 2026.
Lagt er til að vísa samþykktum Héraðsnefndar Árnessýslu til síðari umræðu.
4. 2507188 - Lántökur Brunavarna Árnessýslu 2025 - 2026
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja lántökur Brunavarna Árnessýslu vegna
byggingar slökkvistöðvar á Flúðum og kaupa á tankbíl, í samræmi bókun af 36.
fundi stjórnar Brunavarna Árnessýslu, sem haldinn var 30. apríl 2026.
Lagt er til að bæjarstjóra verði veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita
lánssamninga vegna lánsins.
5. 2604307 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2026 - Brunavarnir Árnessýslu
Lagt er til að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026
vegna mannaráðningar, í samræmi bókun af 36. fundi stjórnar Brunavarna
Árnessýslu, sem haldinn var 30. apríl 2026. Ekki er þörf á viðauka við áætlun BÁ
þar sem um er að ræða tilfærslu innan samþykktar áætlunar BÁ.
6. 2601383 - Merkisteinn I. L166113 - Deiliskipulag - 4 stakstæð hús
Tillaga frá 61. fundi skipulagsnefndar frá 4. maí sl. liður 1. Merkisteinn I. L166113
- Deiliskipulag - 4 stakstæð hús.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Merkisteinsvalla 1 á
Eyrarbakka innan íbúðarsvæðis ÍB45. Í skipulaginu felst skilgreining
byggingarreita og byggingarheimilda fyrir fjögur stakstæð hús á tveimur
hæðum með mænisþaki eins og nánar er gert grein fyrir innan skipulags- og
byggingaskilmála deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði
samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem
allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan
aðalskipulags sveitarfélagsins.
Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
7. 2601294 - Ljónsstaðir - Ljón 1-3 - Deiliskipulag
Tillaga frá 61. fundi skipulagslaga frá 4. maí sl. liður 2. Ljónsstaðir - Ljón 1-3 -
Deiliskipulag.
Lögð er fram tillaga deiliskipulags sem tekur til þriggja lóða úr landi Ljónsstaða
hver um sig um 1 ha að stærð. Í skipulaginu felst heimild til uppbyggingar á
íbúðarhúsi ásamt sambyggðri bílgeymslu auk húsnæðis fyrir landbúnaðartengda
starfsemi og/eða minniháttar atvinnustarfsemi ótengdri landbúnaði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði
samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem
allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan
aðalskipulags sveitarfélagsins.
Tillagan verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum.
8. 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir
Tillaga frá 61. fundi skipulagslaga frá 4. maí sl. liður 7. Deiliskipulag
hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir.
Tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi var felld úr gildi með
úrskurði ÚUA þess efnis þann 21. apríl 2026. Að mati Úrskurðarnefndar var ekki
fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og
lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti. Er því
lögð fram að nýju tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi með
uppfærðu mati á umhverfisáhrifum skipulagstillögunnar. Meginmarkmið
deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið,
bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs.
Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á
bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum
lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan
aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um
byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið
nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og
stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir
hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs
reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu
næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð.
Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að
byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja
megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna
hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum
reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir
fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa.
Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo keppnishöll
en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur.
Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem
svæðið er skilgreint með landnotkunina ÍÞ2 hesthúsasvæði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði
samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem
allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan
aðalskipulags sveitarfélagsins og að brugðist hafi verið við niðurstöðu
Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála um mat á umhverfisáhrifum
skipulagsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar.
9. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Fulltrúar í kjördeildum í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk.
Fundargerðir
10. 2604006F - Skipulagsnefnd - 60
60. fundur haldinn 15. apríl.
11. 2604013F - Velferðarnefnd - 25
25. fundur haldinn 16. apríl.
12. 2604020F - Bæjarráð - 168
168. fundur haldinn 22. apríl.
13. 2604014F - Eigna- og veitunefnd - 54
54. fundur haldinn 21. apríl.
14. 2604026F - Bæjarráð - 169
169. fundur haldinn 30. apríl.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

