Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 57

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
25.02.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ari B. Thorarensen formaður, D-lista,
Rebekka Guðmundsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Ari B Thorarensen, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2601424 - Framkvæmdaleyfi - Eyrarlögn - Plan
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi er varðar gerð plans fyrir röralager í tengslum við framkvæmdir á vegum Selfossveitna. Staðsetningin er valin út frá nálægðar við Eyrarlögnin sem verið er að endurnýja í heild sinni og kemur þessi framkvæmd til með að nýtast á næstu árum til að geyma efni í verkinu. Staðsetning svæðisins inn á skilgreindu iðnaðarsvæði á aðalskipulagi sveitarfélagsins.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við framlagða umsókn um framkvæmdaleyfi. Mælist nefndin til þess að skipulagsfulltrúa verði falin útgáfa leyfisins á grundvelli heimilda aðalskipulags í samræmi við 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati nefndarinnar er umsótt framkvæmd ekki líkleg til að hafa grenndaráhrif og telur því ekki þörf á grenndarkynning málsins.
Samþykkt
2. 2602079 - Lóðarumsókn - Móstekkur 153
Eyrar Braggi ehf sækir um íbúðalóðina Móstekkur 153 á Selfossi. Yfirlýsing banka um skilvísi og áreiðanleika liggur fyrir ásamt búsforræðisvottorði.
Skipulagsnefnd samþykkir að úthluta lóðinni Móstekk 153 til Eyrar Bragga ehf.
Samþykkt
3. 2602178 - Einarshöfn 4 - Skipting lóðar - Fyrirspurn
Eigandi lóðar Einarshafnar 4 á Eyrarbakka leggur fram fyrirspurn til skipulagsnefndar. Í henni felst að heimilað verði innan gildandi deiliskipulags að skipta lóðinni upp í þrjár lóðir með tilheyrandi byggingarheimildum fyrir um 40-60 fm hús.
Að mati skipulagsnefndar eru viðkomandi lóðir eins og lagt er upp með innan framlagðrar fyrirspurnar of litlar til að geta talist fullnægjandi sem íbúðarlóðir. Hins vegar telur nefndin möguleika á að stækka svæði austar Einarhafnar 4 inn á opið svæði og með þeim hætti skapist viðeigandi stærð fyrir í það minnsta eina lóð til viðbótar innan svæðisins. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið málið áfram í samráði við lóðarhafa.
Til kynningar
4. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting
Larsen hönnun leggur fram breytingu á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Jórvíkur I. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bilastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Breytingar: Á fjölbýlishúsalóðum F2 er bílastæðum fækkað niður í 1 stæði á íbúð og hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar. Nýja Jórvík 13 fjölgar úr 12 íbúðum í 20. Fossvík 1 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 3 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 5 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 68. Málinu var frestað á fundi nefndarinnar þann 28.1.2026, lagt fram að nýju með ítarlegri gögnum.
Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu málsins. Mælist nefndin til þess að tekið verði til skoðunar að takmarka fjölgun íbúða frá framlagðri tillögu.
Frestað
5. 2602092 - Heiti hringtorga innan þéttbýlis
Fyrir liggur að heiti vantar á hringtorg innan þéttbýlisins á Selfossi við eftirfarandi svæði:
Norðurhólar/Suðurhólar/Björkurstekkur
Suðurhólar/Jórvík/Hólastekkur
Eyrabakkavegur/Hólastekkur/Víkurheiði
Austurvegur/Gaulverjabæjarvegur
Lagt er fyrir skipulagsnefnd að leggja til heiti á fyrrgreind torg. Fyrir eru til heiti á hringtorgin Ingólfstorg, Tryggvatorg, Múlatorg, Hagatorg, Lækjartorg Egilstorg og Markartorg.

Skipulagsnefnd mælist til þess að leitað verði til íbúa sveitarfélagsins um tillögur af nafngiftum á viðkomandi hringtorg. Notast verði við samráðsvettvanginn Betri Árborg í þeirri vinnu. Tillögur sem berast verði lagðar fram til ákvörðunar innan nefndarinnar að samráði loknu eigi síður en fyrir lok apríl.
6. 2602230 - Framkvæmdaleyfi - Eyrarbakkavegur, Votmúlavegur, Gaulverjabæjarvegur
Lögð er fyrir nefndina umsókn um framkvæmdaleyfi vegna framkvæmda við Eyrarbakkaveg, Votmúlaveg og Gaulverjabæjarveg í tengslum við flutning á vindmyllum um svæðið.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við útgáfu framvkæmdleyfis vegna umsóttra framvkæmda með fyrirvara um að samþykki hlutaðeigandi landeigenda liggi fyrir. Mælist nefndin til þess að framkvæmdin verði grenndarkynnt á grundvelli 5.mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar framkvæmdaleyfi.
Samþykkt
7. 2510242 - Merkjalýsing - Nabbi
Lögð er fram merkjalýsing fyrir fjórar lóðir sem til stendur að stofna úr jörðinni Nabbi L166201. Lóðirnar munu fá heitið Nabbi 4, Nabbi 5, Nabbavík og Nabbanes. Afmörkun lóðar Nabbi 3 L232497 breytist einnig. Afgreiðslu málsins var frestað á fundi nefndarinnar þannn 5.11.2025 þar sem athugasemd var gerð við samræmi skiptingarinnar við flokkun landbúnaðarlands. Við fyrirtöku málsins er lagt fram nýtt mat á gæðum landsins m.t.t. flokkunar á landbúnaðarnotum frá RML.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir framlagt mat RML á viðkomandi landi sem merkjalýsingin tekur til. Skipulagsfulltrúa falið að ljúka málinu í samáði við merkjalýsanda. Jafnframt mælist nefndin til þess að við vinnu vegna breytingar á aðalskipulagi Árborgar verði flokkun viðkomandi landbúnaðarlands uppfærð í takt við framlögð gögn. Nefndin bendir jafnframt á að allar framkvæmdir innan viðkomandi lóða eru háðar gerð deiliskipulags og eftir atvikun breytingar á aðalskipulagi sé um frístundasvæði að ræða.
Samþykkt
10. 2602205 - Austurvegur 61 og 63 - Fjölgun íbúða og breytt byggingarmagn - Fyrirspurn
Reyrus ehf. leggur fram fyrirspurn þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til óverulegrar breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi, á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér að íbúðum fjölgi í 27 úr 21 og að heimilað byggingarmagn verði 2.250 m2 ofan jarðar í stað 2.275 m2. Byggingarmagn neðan jarðar yrði óbreytt.
Skipulagsnefnd óskar frekari gagna frá umsækjanda er varðar hönnun hússins, stærðardreifingar íbúða innan hússins og útfærslu fjölgunar bílastæða í tengslum við hugsanlega fjölgun íbúða.
Til kynningar
Erindi til kynningar
8. 2602101 - Stjórnsýslukæra - breyting á deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði
Lögð er fram til kynningar stjórnsýslukæra vegna deiliskipulags hesthúsasvæðisins.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar
9. 2602026 - Austurbyggð - Fjölgun íbúðar á raðhúsalóðum og vegtenging - Deiliskipulagsbreyting
Lögð er fram fyrirspurn frá Fagralandi ehf. er varðar heimild til breytingar á deiliskipulagi Austurbyggðar II. Í breytingunni felst að innan rahúsalóða Skógarlands 1-9 og 11-19 og Gljúfurlands 2-10 og 12-20 verði heimild til að byggja 6 íbúða raðhús í stað 5 íbúða. Samhliða er óskað eftir því að vegtengin við Gaulverjabæjarveg, sem var inn í deiliskiplagsáætlun svæðisins við auglýsingu hennar, verði færð á nýjan leik aftur inn í tillöguna. Fyrir liggur umsögn Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlagða fyrirspurn. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram með umsækjanda.
Samþykkt
Fundargerðir
11. 2601029F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 167
Lögð er fram til kynningar fundar afgreiðlsufundar byggingarfulltrúa nr. 167.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica