69. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 4. febrúar 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2510393 - Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar
Afgreiðslu á breyttum samþykktum fyrir hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar var frestað til næsta fundar á 68. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 21. janúar sl. Nýjar tillögur að Samþykktum fyrir hverfisráð Sveitarfélagsins Árborgar eru nú teknar fyrir.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samþykktir hverfisráða Sveitarfélagsins Árborgar. - 2510377 - Gjaldskrár 2026
Gjaldskrá frístundaheimila og frístundaklúbba í Sveitarfélaginu Árborg frá 1. janúar 2026 - Uppfærður texti.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærðan texta í gjaldskránni. - 2601316 - Siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar
Tillaga frá 157. fundi bæjarráðs frá 29. janúar sl. liður 2. Siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja Siðareglur starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar. - 2601314 - Fossnes og Mýrar - Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Breytt landnotkun
Tillaga frá 56. fundi skipulagsnefndar frá 28. janúar sl. liður 3. Fossnes og Mýrar - Óveruleg breyting á aðalskipulagi - Breytt landnotkun. Efla f.h. Sveitarfélagsins Árborgar leggur fram tillögu í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að óverulegri breytingu á gildandi aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Breytingin tekur að meginhluta til stækkunar á svæði VÞ4, og samsvarandi minnkunar á svæðinu OP1. Breytingin er gerð til að auka landnýtingu fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi. Aðalskipulagsbreytingin fellur undir lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Þó verslunar- og þjónustusvæði sé stækkað og opið svæði minnkað samsvarandi þá er breytingin metin hafa óveruleg áhrif á umhverfisþætti. Til að tryggja áfram aðlaðandi ásýnd við aðkomu að Selfossi úr vestri þá eru settir skilmálar um að sérstaklega skuli gætt að snyrtilegri ásýnd.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagða breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Mælist nefndin til þess að áformin verði sérstaklega kynnt landeigendum aðliggjandi lands og sveitarfélaginu Ölfus. Komi engar athugasemdir fram við kynningu málsins verði niðurstaða sveitarfélagsins auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. - 2601095 - Grænamörk, Austurvegur; Deiliskipulag Grænumarkarhverfis
Tillaga frá 56. fundi skipulagsnefndar frá 28. janúar sl. liður 6. Grænamörk, Austurvegur; Deiliskipulag Grænumarkarhverfis.
Lögð er fram skipulagslýsing sem tekur til breytinga á skilmálum fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Gerð verður breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020-2036 og unnið nýtt deiliskipulag. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi. Heimilaðar verða fleiri byggingar og íbúðir ásamt því að umferð akandi og gangandi verður yfirfarin.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða skipulagslýsingu til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. - 2506399 - Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 56. fundi skipulagsnefndar frá 28. janúar sl. liður 7. Tryggvagata 36 - Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til lóðar Tryggvagötu 36 á Selfossi. Gert er ráð fyrir einu 3ja hæða íbúðarhúsi ásamt sorpskýli á lóðinni. Ekki er gert ráð fyrir kjallara. Þriðja hæð íbúðarhússins skal vera inndregin, a.m.k. 5 m á norðurhlið og a.m.k. 2 m á aðrar hliðar. Heildarfjöldi íbúða í húsinu geta orðið allt að 36 og er gert ráð fyrir samsvarandi fjölda bílastæða innan lóðarinnar. Byggingar skulu standa innan byggingareita. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 2.600 m2 og nýtingarhlutfall er um 0,84. Tillagan var auglýst í Lögbirtingablaði og Dagskránni frá 11.12.2025, með athugasemdafresti til 26.1.2026. Tillagan var einnig aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins Árborgar. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu og Vegagerðinni. Umsagnir og athugasemdir bárust við auglýsingu tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum og athugasemdum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðrar samantektar skipulagsfulltrúa. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þeim sem athugasemdir gerðu við tillöguna verði kynnt niðurstaða sveitarfélagsins auk þess sem niðurstaða sveitarfélagsins verði kynnt á opinberum vettvangi. Sigurjón Vídalín Guðmundsson greiddi atkvæði gegn tillögunni með eftirfarandi bókun: Undirritaður tekur undir ítrekaðar athugasemdir þær sem borist hafa frá íbúum nærliggjandi húsa sem snúa að hæð og byggingarmagni sem lagt er til skv. framlagðri deiliskipulags tillögu. Undirritaður telur að bygging á reitnum eigi að hámarki að vera 2 hæðir og byggingarmagn verði minnkað í samræmi við það til að falla betur að heildarásýnd hverfisins og nærliggjandi byggingum sem eru að mestu leyti einbýlishús á 1 hæð. Af framangreindum ástæðum greiði ég atkvæði á móti deiliskipulagstillögunni. Matthías Bjarnason sat hjá við afgreiðslu málsins. Björgvin G. Sigurðsson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Málið samþykkt með 3 atkvæðum af 5. - 2601230 - Breyting á samþykktum fyrir Sorpstöð Suðurlands bs. Fyrri umræða.
Tillaga frá 157. fundi bæjarráðs frá 29. janúar sl. liður 8. Breyting á samþykktum fyrir Sorpstöð Suðurlands bs.
Tillaga frá aukaaðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) og stjórnar SOS frá 16. janúar sl. liður 5a. Tillögur að breytingum á samþykktum. Afgreiðsla aukaaðalfundarins: Tillaga stjórnar um breytingar á samþykktum SOS skv. a. lið 5. dagskrárliðar fundarins er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða og samþykktunum vísað til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga SOS sem taka þurfa breyttar samþykktir fyrir í tveimur umræðum áður en þær eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda. Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breytingar á samþykktum SOS og leggja til við bæjarstjórna að samþykkja reglurnar og taka þær til samþykktar í tveimur umræðum.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framkomnar tillögur að breytingu á samþykktum SOS og taka þær til samþykktar í tveimur umræðum. - 2601274 - Viðauki við fjárhagsáætlun SOS 2026
Tillaga frá 157. fundi bæjarráðs frá 29. janúar sl. liður 9.
Viðauki við fjárhagsáætlun SOS 2026. Tillaga frá aukaaðalfundi Sorpstöðvar Suðurlands (SOS) og stjórnar SOS frá 16. janúar sl. liður 5c. Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026. Afgreiðsla aukaaðalfundarins:
Tillaga stjórnar um viðauka við fjárhagsáætlun SOS fyrir árið 2026 skv. c. lið 5. dagskrárliðar fundarins er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða og viðaukanum vísað til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga SOS.
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja breytingar á viðauka við fjárhagsáætlun SOS fyrir árið 2026 og leggja til við bæjarstjórna að samþykkja viðaukann.
Bæjarráð leggur til bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun SOS. - Fundargerðir
- 2512018F - Eigna- og veitunefnd - 50
50. fundur haldinn 13. janúar. - 2601010F - Skipulagsnefnd - 55
55. fundur haldinn 14. janúar. - 2601011F - Fræðslu- og frístundanefnd - 25
25. fundur haldinn 14. janúar. - 2601012F - Ungmennaráð - 10/2025
10. fundur haldinn 12. janúar. - 2601009F - Bæjarráð - 156
156. fundur haldinn 22. janúar. - 2601024F - Bæjarráð - 157
157. fundur haldinn 29. janúar.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

