Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 71

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
04.08.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Þórarinn Magnússon f.h. slökkviliðsstjóra varamaður,
Arnar Jónsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, aðstoðar byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2107150 - Móstekkur 18-24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Auðsalir ehf. sækir um byggingarleyfi á 4 íbúða raðhúsi byggt úr timbri.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um að aðaluppdráttur sé uppfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir: - Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði - Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra - Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2. 2107132 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Sóltún 5
Jónheiður Ísleifsdóttir og Friðjón Elli Hafliðason eigendur Sóltúns 5 á Selfossi, tilkynna um samþykki nágranna vegna áforma um uppsetningu smáhýsis nær lóðarmörkum en 3m
Vísað til samráðsfundar Byggingarfulltrúa, mannvirkja- og umhverfissviðs, einnig er óskað eftir að skilað verði afstöðumynd af staðsetningu húss.
3. 2107121 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Ólafsvellir 29
Gylfi Pétursson eigandi Ólafsvalla 29 á Selfossi, tilkynnir um samþykki nágranna vegna áforma um uppsetningu smáhýsis nær lóðarmörkum en 3m.
Fyrir liggur samþykki nágranna. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu smáhýsis með fyrirvara um skil á afstöðumynd sem sýnir staðsetningu húss.
4. 2107120 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Ólafsvellir 31
Viktoría Ýr Norðdahl eigandi Ólafsvalla 31 á Selfossi, tilkynnir um samþykki nágranna vegna áforma um uppsetningu smáhýsis nær lóðarmörkum en 3m.
Fyrir liggur samþykki nágranna. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu smáhýsis með fyrirvara um skil á afstöðumynd sem sýnir staðsetningu húss.
5. 2107117 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum - Ólafsvellir 10
Gylfi Pétursson eigandi Ólafsvalla 10 á Selfossi, tilkynnir um samþykki nágranna vegna áforma um uppsetningu smáhýsis nær lóðarmörkum en 3m.
Fyrir liggur samþykki nágranna. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu smáhýsis með fyrirvara um skil á afstöðumynd sem sýnir staðsetningu húss.
6. 2107141 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingaleyfi - Dísarstaðir land 8
Tilkynning um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi - Dísarstaðir land 8. (spennistöð Rarik)
Fyrir liggur uppdráttur og skráningartafla. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.5. lið j.
7. 2107167 - Tilkynning um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi - Engjaland 23. (spennistöð Rarik)
Tilkynning um framkvæmd undanþegna byggingaleyfi - Engjaland 23. (spennistöð rarik)
Fyrir liggur uppdráttur og skráningartafla. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin sbr. byggingarreglugerð gr. 2.3.5. lið j.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica