| Fræðslu- og frístundanefnd - 26 |
Haldinn á 3. hæð Ráðhúss, 25.02.2026 og hófst hann kl. 16:30 |
|
Fundinn sátu: Brynhildur Jónsdóttir formaður, D-lista, Gísli Rúnar Gíslason nefndarmaður, D-lista, Ástrós Rut Sigurðardóttir nefndarmaður, Á-lista, Ellý Tómasdóttir fulltrúi frístundaþjónustu, Elísabet Davíðsdóttir nefndarmaður, S-lista, Hilmar Björgvinsson fulltrúi skólastjóra, Kristrún Hafliðadóttir fulltrúi leikskólastjóra, Áslaug Halla Elvarsdóttir fulltrúi foreldra grunnskóla, Rakel Pálmadóttir fulltrúi kennara, Birna Aðalh. Árdal Birgisdóttir fulltrúi foreldra leikskóla, Oddný Guðríður Pálmadóttir fulltrúi leikskólakennara, Erla Björk Tryggvadóttir fulltrúi frístundaþjónustu, Margrét Björk Brynhildardóttir deildarstjóri, Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson deildarstjóri. |
|
Fundargerð ritaði: Margrét Björk Brynhildardóttir, deildarstjóri skólaþjónustu |
|
|
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn afgreiðslumál |
| 1. 2602238 - Ósk um færslu á starfsdögum frístundaheimila |
| Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir tilfærslu á starfsdögum vegna fræðsluferðar starfsfólks. Nefndin leggur áherslu á að foreldrar verði upplýstir um breytinguna sem fyrst. |
|
|
|
|
| Erindi til kynningar |
| 2. 2602233 - Íslenska æskulýðsrannsóknin 2025 |
Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir kynninguna og tekur undir þær tillögur sem koma fram í kynningunni um eflingu forvarna í skóla- og frístundastarfi. Tillögurnar eru eftirfarandi: - Efla forvarnir í skólum með áherslu á andlega heilsu, kynfræðslu og netöryggi. - Aldursmiðuð fræðsla um samfélagsmiðla og stafrænt öryggi (frá 4.bekk) ásamt fræðslu til foreldra. - Styrkja tengsl við fullorðna, tryggja að nemendur eigi traustan aðila til að leita til. - Stuðla að fjölbreyttri þátttöku í íþróttum, tómstundum og frístundum - sérstaklega fyrir eldri nemendur. - Samstarf allra aðila, samvinna skóla, foreldra, frístundastarfs og sveitarfélags lykilatriði.
|
|
|
|
| 3. 2509082 - Matsferil - upplýsingar um innleiðingu |
| Fræðslu- og frístundanefnd þakkar fyrir kynninguna. |
|
|
|
| 4. 2602223 - Biðlistar á leikskólum 2026 |
| Erindi til kynningar. |
|
|
|
| 5. 2602239 - Tilnefning til Menntaverðlauna Suðurlands 2026 |
| Erindi til kynningar. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45 |
|