|
| Almenn erindi |
| 1. 2503321 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2025 |
| Lagt fram milliuppgjör út nóvember og desember 2025. |
|
|
|
| 2. 2601408 - Upplýsingar frá mannauðsdeild 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 3. 2509360 - Samstarfs- og nýsköpunarstyrkir til íslenskunáms innflytjenda |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vill koma á framfæri þökkum vegna styrkveitingar við umsókninni "Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum uppruna". |
|
|
|
| 4. 2601385 - Úttekt á Brunavörnum Árnessýslu |
| Bæjarráð fagnar því að niðurstað úttektar HMS á starfsemi Brunavarna Árnessýslu hafi verið án athugasemda. Þar sem ekki er þörf á úrbótaáætlun er úttektin lögð fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
| 6. 2601386 - Samráðsgátt - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum |
| Lagt fram til kynningar. Fram kom að Samband íslenskra sveitarfélaga muni halda kynningu á frumvarpinu fyrir sveitarstjórnir í samráði við viðkomandi ráðuneyti á næstu dögum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna drög að umsögn um málið og leggja fyrir næsta fund. |
| Samþykkt |
| Samanburðarskjal_lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.pdf |
| Frumvarp til laga um einföldun eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.pdf |
| Samráðsgátt - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.pdf |
|
|
|
| 7. 2601311 - Umsögn - Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 - fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030 mál 322 |
Um leið og bæjarráð fagnar því hvað framkvæmdir við nýja brú yfir Ölfusá hafa gengið vel, lýsir það yfir miklum vonbrigðum að í drögum að samgönguáætlun sé verið að fresta öðrum stórum samgönguverkefnum á Suðurlandi.
Í drögum að samgönguáætlun 2026-2040 er mörg jákvæð markmið og verkefni sem auka umferðaröryggi og ættu að bæta samgöngur á Íslandi. Bæjarráð vill hins vegar benda á að mikilvægt sé að klára tvöföldun Suðurlandsvegar frá Rauðavatni að Markarfljóti sem fyrst. Það eru því veruleg vonbrigði að framkvæmdir við færslu Suðurlandsvegar við Hveragerði, vegaframkvæmdir í uppsveitum Árnessýslu við stærstu ferðamannastaði Íslands og styrkingu Þrengslavegar að Þorlákshöfn og Eyrarbakka sé seinkað líkt og drög að samgönguáætlun gefa til kynna. Uppbygging Þrengslavegar, Óseyrarbrúar og Eyrarbakkavegar að Selfossi er orðin aðkallandi enda eykst umferð, bæði fólksbíla og þungaumferðar um vegina árlega.
Bráðabirgðahringtorg á Suðurlandsvegi við Biskupstungnabraut er skammtímalausn og vill bæjarráð ítreka mikilvægi þess að farið verði strax í uppbyggingu mislægra gatnamóta líkt og gert er ráð fyrir í skipulagi. Framkvæmdir eru á svæðinu næstu árin og hagkvæmara að klára allar framkvæmdir tengdum nýrri brú samhliða en ekki seinna með tilheyrandi röskun á umferð.
Göngubrú meðfram núverandi Ölfusárbrú er verkefni sem hefur verið í umræðunni til fjölda ára og bæjarráði finnst vanta inn í drög að samgönguáætlun. Aukin umferð um Ölfusárbrú hefur skapað hættu fyrir gangandi vegfarendur og fyrirséð að hún mun ekki minnka á komandi árum þrátt fyrir byggingu nýrrar brúar. Öryggi gangandi vegfarenda er ofarlega í huga bæjarráðs. Mikilvægt að ríkisvaldið nýti tækifærið, uppfæri teikningar af stakstæðri göngubrú yfir Ölfusá og setji inn í samgönguáætlun.
Einnig bendir bæjarráð á mikilvægi þess að fjármagn til framkvæmda við stækkun hafnarinnar í Þorlákshöfn sé tryggt áfram á næstu árum en ekki frestað til ársins 2029. Uppbygging hafnarinnar er ekki bara mikilvæg uppbyggingu og starfsemi á Suðurlandi heldur Íslandi sem heild. Tryggir m.a. öflugri sjóflutninga, bætta samkeppni og með því uppbyggingu atvinnulífs á landsbyggðinni. |
| Samþykkt |
| Tölvupóstur - Til umsagnar 322. mál frá nefndar- og greiningarsviði..pdf |
| Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030.pdf |
|
|
|
|
|
| 9. 2601403 - Umsögn - frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn mál 305 |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á fjölskyldusviði. |
| Tölvupóstur - Til umsagnar 305. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþings.pdf |
| Frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.pdf |
|
|
|
| 10. 2601404 - Umsögn - frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks 311. mál |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á fjölskyldusviði. |
| Tölvupóstur - Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks.pdf |
| Frumvarp til laga um réttindavernd fatlaðs fólks.pdf |
|
|
|
| 11. 2601405 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu laga um atvinnuleysistryggingar og laga um vinnumarkaðsaðgerðir - stytting bótatímabils o.fl. 312. mál |
| Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar á fjölskyldusviði. |
| Tölvupóstur - Til umsagnar 312. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.pdf |
| Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir - stytting bótatímabild o.fl..pdf |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 12. 2601025F - Eigna- og veitunefnd - 51 |
|
|
|
| 13. 2601022F - Velferðarnefnd - 23 |
|
|
|
| 14. 2601018F - Skipulagsnefnd - 56 |
|
|
|
| 15. 2601027F - Ungmennaráð - 11/2025 |
|
|
|
|
| Fundargerðir til kynningar |
| 16. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 992.pdf |
|
|
|
| 17. 2601423 - Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| fundargerð - aukafundur 27 jan 26.pdf |
|
|
|
| 18. 2209043 - Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga 2022 - 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| 260128 stjórnarfundur hjá Byggðasafni Árnesinga nr 20undirituð.pdf |
|
|
|
|
|