Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 97

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
10.08.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2207260 - Eyravegur 51 - Umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Guðmundur Hjaltason hönnunarstjóri f.h. Ásmundar Sigurðssonar (Icelandbus all kind of bus ehf) sækir um leyfi til að breyta innra skipulagi og útliti. Helstu stærðir verða 711,3 m² og 3.527,6 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Eyravegur 51 A mótt 26.07.2022a.pdf
2. 2207319 - Suðurbraut 17 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Stefán Þ Ingólfsson hönnunarstjóri f.h. Betu Ásmundsdóttur sækir um leyfi til að byggja einbýlishús með innbyggðum bílskúr. Helstu stærðir eru 152,5 m2 og 635,4 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Suðurbraut 17-A mótt 26.070.2022.pdf
3. 2207194 - Hásteinsvegur 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sæmundur Eiríksson hönnunarstjóri f.h. Stefáns Geirs Stefánssonar sækir um byggingarheimild til að:
- Byggja bílgeymslu 59,5m2 og 199,3 m3
- Skrá geymslu/garðhús 26,2 m2 og 60,9m2
- Endurnýja utanhússklæðningu íbúðarhúss með aluzink-klæðningu í stað timburs.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Deiliskipulag hefur ekki verið gert.
Vísað til skipulagsnefndar og Selfossveitna.

Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
4. 2205094 - Hásteinsvegur 46 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ásdís Ingþórsdóttir hönnunarstjóri f.h. Bláhimins ehf. sækir um byggingarheimild til að stækka íbúðarhús um u.þ.b. 36 m2 og endurnýja glugga og klæðningar.
Málið var áður á 91. afgreiðslufundi og hefur verið grenndarkynnt. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við áformin.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Grenndarkynning hefur fraiðfram. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Hásteinsvegur 46. A - mótt 6.5.2022.pdf
5. 2203340 - Austurhólar 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarheimild
Gautur Þorsteinsson hönnunarstjóri f.h. Nova hf. sækir um leyfi til að reisa fjarskiptamastur. Fyrir liggur samþykki húsfélags.
Málið var áður rætt á 88. fundi og hefur fengið umfjöllun Skipulagsnefndar.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
6. 2207343 - Hulduhóll 35 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason f.h. Sverris Rúnarssonar til að byggja einbýlishús með bílageymslu. Helstu stærðir 173,5 m2 og 669,1 m3.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Hönnuður - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi.pdf
Aðaluppdrættir mótt 28.07.2022.pdf
7. 2207275 - Byggðarhorn 173956 Umsókn um stöðuleyfi
Lilja Björk Andrésdóttir sækir um stöðuleyfi fyrir um 2 stk um 50 m2 hús sem fyrirhugað er að flytja á staðinn. Sótt er um leyfi frá 10.08.2022-10.08.2023.
Umsækjandi fyrirhugar að óska eftir skipulagsbreytingu á landinu í framhaldi af flutningi húsanna.

Heimild til að veita stöðuleyfi skv. gr. 2.6.1 í byggingarreglugerð takmarkast við eftirfarandi:
a. Hjólhýsi, á tímabilinu frá 1. október til 1. maí.
b. Gáma, báta, torgsöluhús, frístundahús í smíðum, sem ætlað er til flutnings, og stór samkomutjöld.
Skv. deiliskipulagi er svæðið ætlað fyrir heilsársbyggð og ekki heimilt að reisa þar frístundahús.
Erindinu hafnað.
Umsókn um stöðuleyfi.pdf
uppdráttur fyrir Bústaði .pdf
Bústaður A.pdf
8. 2207329 - Smjördalir lóð 231226 - Tilkynning um smáhýsi veitna
Rarik ohf tilkynnir um uppsetningu smáhýsis. Helstu stærðir 7,7 m2 og 16,8 m3.
Framkvæmdin er háð byggingarheimild, er í umfangsflokki 1 og hefur fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa.
- Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu.
- Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Umsækjandi (eigandi - einstaklingur/ fyrirtæki) - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi.pdf
Smjördalir.pdf
9. 2207345 - Eyrarbraut 24 og 26 - Tilkynning um skjólgirðingu á lóðarmörkum
Lóðarhafar leggja fram samning um skjólgirðinu á lóðarmörkum, hæð 1,8 m.
Framkvæmdin fellur undir undanþáguákvæði byggingarreglugerðar gr. 2.3.5e.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áformin.
Samningur um skjólgirðingu á lóðarmörkum.pdf
10. 2207333 - Gagnheiði 3 - Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Bílverk BÁ ehf
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. óskar umsagnar vegna umsóknar Bílverks BÁ ehf. um endurnýjun á starfsleyfi fyrir bílaverkstæði með sprautun.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
2206061HS - Umsögn óskast vegna endurnýjunar starfsleyfis.pdf
11. 2207335 - Eyrarvegur 57 Umsagnarbeiðni vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Fossdekk ehf
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. óskar umsagnar vegna umsóknar Fossdekks ehf.um endurnýjun á starfsleyfi fyrir hjólbarðaverkstæði og smurstöð.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Umsögn um endurnýjun starfsleyfis.pdf
12. 2208007 - Austurvegur 22a - Umsagnarbeiðni vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Kurdo Kebab
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. óskar umsagnar vegna umsóknar Kurdo ehf. vegna reksturs Kebab veitingastaðar.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
2208001HS - Kurdokebab - Umsögn byggingarfulltrúa.pdf
13. 2208017 - Háeyrarvellir 56 - Umsagnarbeiðni vegna endurútgáfu starfsleyfis fyrir BES
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. óskar umsagnar vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborgar vegna endurnýjunar á starfsleyfi grunnskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
FW: 2208004HS - umsögn óskast vegna starfsleyfis.pdf
14. 2208018 - Eyrarbraut 2 - Umsagnarbeiðni vegna endurútgáfu starfsleyfis til reksturs frístundaheimilisins Stjörnusteina
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. óskar umsagnar vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborgar vegna endurnýjunar á starfsleyfi frístundar á Stjörnusteinum á Stokkseyri.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun fasteignarinnar og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
FW: 2208005HS - umsögn óskast.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica