Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 88

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
30.03.2022 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra varamaður.
Fundargerð ritaði: Sveinn Pálsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2203237 - Björkurstekkur 46 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Guðmundar Garðars Sigfússonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 256,6m2 og 929,7m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
2. 2203245 - Ástjörn 11 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kristinn Ragnarsson fyrir hönd Silfurafls ehf. sækir um leyfi til að byggja 23 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 1878,4m2 og 5.608,3m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag.
Umsækjandi hefur ekki boðið Sveitarfélaginu Árborg að ganga inni í kaup á byggingarrétti eins og áskilið er í kaupsamningi vegna byggingarréttar frá árinu 2006.
Afgreiðslu er frestað.

3. 2203284 - Engjavegur 56a - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Emil Þór Guðmundsson fyrir hönd Gesthús Selfossi ehf. sækir um leyfi til að byggja frístundahús. Helstu stærðir eru; 52.0m2 og 166,4m3
Byggingin flokkast sem gistihús en ekki frístundahús og er því í umfangsflokki 2. Áformin eru ekki í samræmi við deiliskipulag og uppfylla ekki kröfur um algilda hönnun.
Hafnað.
4. 2203337 - Hraunhólar 10-12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðmundur Gunnarsson fyrir hönd Víðis Freys Guðmundssonar sækir um leyfi fyrir breytingum innanhúss.
Breytingin felst í að innrétta íbúðarrými í bílskúr

Afgreiðslu frestað.
5. 2203339 - Móstekkur 14-16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Kjartan Sigurbjartsson fyrir hönd Landmanna ehf. sækir um leyfi til að byggja 10 íbúða fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 884,4m2 og 2.823,0m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Deiliskipulagsbreyting hefur ekki verið birt í B-deild.
Greinargerðir hönnuðar s.b.r. byggingareglugerð gr. 2.4.1, 4.2.2 og 4.5.3 hafa ekki borist með umsókn eins og tilskilið er.
Afgreiðslu frestað.
6. 2203338 - Björkurstekkur 64 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson fyrir hönd Sveins Gíslasonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 256,5m2 og 945,7m3
Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
7. 2203357 - Norðurgata 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Guðjón Þórir Sigfússon hönnunarstjóri f.h. Gústafs Lilliendahls sækir um leyfi til að byggja einbýlishús.
Helstu stærðir 307,7 m2 og 1.065,5 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir:
- Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir.
- Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
8. 2203340 - Austurhólar 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Nova hf. sækir um leyfi til að reisa fjarskiptamastur.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og fellur undir gr. 2.3.4 í byggingarreglugerð.
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
9. 2203332 - Hulduhóll 39 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Gunnar Erlingsson og Gróa Skúladóttir tilkynna um byggingu 9 m2 smáhýsis á lóð. Fyrirhugað er að húsið standi 2 m frá lóðamörkum.
Framkvæmdin fellur undir minniháttar mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi skv. byggingareglugerð gr. 2.3.5.
Fyrir liggur samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar að Hulduhól 49 um að smáhýsið verði staðsett nær lóðarmörkum en 3m.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar.
10. 2203336 - Ólafsvellir 7 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Agnes Lind Jónsdóttir tilkynnir um byggingu smáhýsis á lóð.
Framkvæmdin fellur undir minniháttar mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi skv. byggingarreglugerð gr. 2.3.5.
Fyrir liggur samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar að Ólafsvöllum 5 um að smáhýsið verði staðsett nær lóðarmörkum en 3m.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar.
11. 2203348 - Bjarmaland 12 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Gerda Tyscenko tilkynnir um byggingu smáhýsis og skjólveggjar á lóð.
Framkvæmdin fellur undir minniháttar mannvirkjagerð undanþegin byggingarheimild og -leyfi skv. byggingareglugerð gr. 2.3.5.
Fyrir liggur samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða að Bjarmalandi 10 og 14 um að smáhýsið verði staðsett nær lóðarmörkum en 3m.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar.
12. 2203360 - Norðurhólar 1 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Arnar Jónsson f.h. Sveitarfélagsins Árborg tilkynnir um uppsetningu 4,5m masturs á Sunnulækjarskóla.
Framkvæmdin fellur í umfangsflokk 1 og er er háð byggingarheimild.

Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
13. 2203262 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hársnyrtistofu Elísabetar Grænumörk 5
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Hársnyrtistofu Elísabetar, Grænumörk 5.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemi þjónustumiðstöðar að Grænumörk 5 er í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins þ.á.m. rekstur hársnyrtistofu.
Þjónustumiðstöðin er með fastanúmer F2219102.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endunýjun starfsleyfis.

14. 2202158 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Samúelson Matbar Eyravegi 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Samúelson Matbar, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
15. 2202153 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Menam Drago Dim Sum Eyravegi 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Menam Drago Dim Sum, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
16. 2202221 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Flatey Pizza Eyravegi 1.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Flatey Pizza, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
17. 2202159 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Smiðjan brugghús Eyravegi 1.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Smiðjan brugghús, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
18. 2202150 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Mjólkurbúið Mathöll Eyravegi 1.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Mjólkurbúið Mathöll, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
19. 2202149 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Takkó, Romano Eyravegi1.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Takkó, Romano, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
20. 2202148 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Ísey skyr bar og Skyrland. Eyravegi 1.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir Ísey Skyr Bars, Eyravegi 1.
Óskað er eftir upplýsingum um hvort húsakynnin séu í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar um atvinnuhúsnæði og hafi hlotið samþykki byggingarnefndar.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin er í samræmi við útgefið byggingarleyfi og samþykkta uppdrætti og gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica