| Bæjarstjórn - 51 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 15.01.2025 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar, Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista, Axel Sigurðsson varamaður, Á-lista, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2404231 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breytingar II. á ASK 2024 |
Til máls tóku Bragi Bjarnason. D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista og Kjartan Björnsson, D-lista.
Brynhildur Jónsdóttir, varaformaður, tók við stjórn fundarins kl. 16:50. Kjartan Björnsson, formaður, tók aftur við stjórn fundarins kl. 16:56.
Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað.
Tillaga Sigurjóns Vídalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista á móti 2 atkvæðum B-lista, 2 atkvæðum S-lista og 1 atkvæði D-lista, atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri leggur til eftirfarandi tillögu að afgreiðslu:
Bæjarstjórn telur að athugasemdir Flugklúbbs Selfoss, séu á þá leið að óskir þeirra um að norðurendi flugbrautar verði aftur settur inn á Aðalskipulag eftir samtal við forsvarsmenn Flugklúbbs, þurfi nánari skoðunar við. Varðandi umsögn Isavia, er bent á að austur/vesturbraut hafi ekki lengur sama vægi til lendinga og flugtaks og norður/suðurbrautin, enda sé hún meginbraut flugvallarins. Vegna umsagna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, bendir bæjarstjórn á að breytingar á gildandi aðalskipulagi, geti haft í för með sér að núgildandi rekstrarleyfi á sumum stöðum falli úr gildi við breytingu. Það sé eðli breytinga. Varðandi hvenær breytingar taki gildi, þá er það þegar tillagan verður auglýst með gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda. Vegna umsagnar Veðurstofu Íslands vill bæjarstjórn árétta að nú þegar er í gildi deiliskipulag íbúðabyggðar í Árbakkalandi, og eru uppi áform um byggingu kjallara undir nokkur fjölbýlishús. Staðsetning þeirra húsa er syðst og í norðausturhluta svæðis. Bæjarstjórn telur að með skýrum fyrirmælum í deiliskipulagsbreytingu verði gerð krafa um öflugan öryggisbúnað sem veiti út vatni, komi til þess, og þar með takmarki hugsanlegt tjón vegna flóðavatns. Bæjarstjórn Árborgar samþykkir tillögu að breytingu á aðalskipulagi Árborgar 2020-2036 II, í samræmi við 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að svara þeim umsagnaraðilum, vegna ábendinga og athugasemda sem fram hafa komið, og senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu í samræmi við 2. mgr. 32. gr. skipulagslaga.
Tillaga um breytingu á aðalskipulagi er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 ákvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum B-lista, 2 atkvæðum S-lista og 1 atkvæði D-lista, atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur. |
| 109019-01-ASK-001-V01 Breytingar á Selfossi og dreifbýli II.pdf |
| 109019-01-GRG-V02-Breytingar á Selfossi og dreifbýli II.pdf |
|
|
|
| 2. 2501049 - Húsnæðisáætlun 2025 |
Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Axel Sigurðsson, Á-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja Húsnæðisáætlun Árborgar 2025 með uppfærðum upplýsingum um fjölda hjúkrunarrýma og biðlista eftir hjúkrunarrýmum á 13. blaðsíðu áætlunarinnar.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, bæjarfulltrúar B-lista sátu hjá. Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu. |
| Húsnæðisáætlun 2025 - Sveitarfélagið Árborg.pdf |
|
|
|
| 3. 2411391 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum |
Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista og Arnar Freyr Ólafsson, B-lista.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
| Reglur um afslátt af fasteignaskatti_Endanleg.pdf |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 4. 2411026F - Ungmennaráð - 8/2024 |
|
|
|
| 5. 2412012F - Bæjarráð - 112 |
|
|
|
| 6. 2412010F - Skipulagsnefnd - 38 |
| Til máls tók Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista |
|
|
|
| 7. 2501004F - Bæjarráð - 113 |
| Til máls tók Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista. |
|
|
|
|
|
Næsti fundur bæjarstjórnar Árborgar verður 5. febrúar nk. |
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. |
|