Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 166

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
09.04.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026
Lagt fram milliuppgjör út febrúar 2026.
Lagt fram milliuppgjör út febrúar 2026.
2. 2603317 - Heimild til byggingar á golfbílageymslu GOS
Beiðni um að Golfklúbbur Selfoss fái heimild til að sækja um byggingarleyfi fyrir byggingu á golfbílageymslu fyrir GOS.
Bæjarráð heimilar af hálfu sveitarfélagsins að GOS sæki um byggingarleyfi fyrir golfbílageymslu á Svarfhólsvelli, í samræmi við framlögð gögn.
Samþykkt
3. 2604030 - Þjónustusamningur við körfuknattleiksfélaga Selfoss 2026-2030
Minnisblað deildarstjóra frístundaþjónustu, dags. 7. apríl, ásamt drögum að þjónustusamningi við Körfuknattleiksfélag Selfoss.
Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun 2026.
Samþykkt
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kom inn á fundinn kl.8:25
4. 2503193 - Staða leikskólamála í Árborg 2025
Minnisblað sviðstjóra, mannvirkja- og umhverfissviðs, dags. 25. mars, vegna húsnæðisbreytinga í leikskólum.
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kom inn á fundinn og fylgdi eftir minnisblaði um stöðu leikskólamála í Árborg. Fram kom tillaga um að fresta flutningi færanlegra kennslustofa frá Stekkjarskóla yfir á lóð Norðurhóla 5 fram á sumarið 2027 þegar ný viðbygging við Jötunheima opnar. Sumarið 2026 verði húsnæði Jötunheima við Stekkjaskóla lítillega breytt með tilfærslu á rýmum fyrir hreyfisal, listasmiðjur og þvottahús. Tillagan hefur ekki í för með sér breytingar á þegar samþykktum fjölda leikskólaplássa haustið 2026. Undirbúningur og upphaf framkvæmda við þriðja áfanga Stekkjaskóla helst óbreyttur.

Bæjarráð samþykkir tillöguna og felur sviðstjóra að fylgja málinu eftir.
Samþykkt
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:35
5. 2604036 - Styrkbeiðni - 70 ára afmælistónleikar
Styrkbeiðni frá Björgvini Þ. Valdimarssyni, þar sem hann óskar eftir styrk vegna 70 ára afmælistónleika í íþróttahúsinu Iðu.
Bæjarráð samþykkir að styrkja tónleikana um aðstöðu í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi.
Samþykkt
6. 2603318 - Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu 2026-2031
Lögð er fram til samþykktar Brunaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnrúmar 09-03-2026 09:00. Áætlunin gildir til febrúar 2031.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00 sem gildir til febrúar 2031 og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja áætlunina.
Samþykkt
Brunavarnaáætlun BÁ yfirfarin af HMS.pdf
7. 2604037 - Fyrirspurn bæjarfulltrúar S-lista - auglýsingaskjár Sundhöll Selfoss
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista, dags. 7. apríl um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss.

Bæjarstjóri leggur fram svör við fyrirspurnum um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss. Fram kom að búið væri að slökkva á skjánum þar sem ekki lá fyrir formlegur samningur um uppsetningu og notkun á skjánum. Einnig kom fram að til skoðunar sé að setja vinnureglur um birtingu auglýsinga í almenningsrýmum í fasteignum í eigu sveitarfélagsins.
Fyrirspurn um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss.pdf
Svar við fyrirspurn um auglýsingaskjá í anddyri Sundhallar Selfoss 8.apríl´26.pdf
Guðrún Ásta Ólafsdóttir, lögfræðingur kom inn á fundinn kl. 8:55
8. 2604038 - Fyrirspurn bæjarfulltrúar S-lista - Þorleifsgjafasjóður
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista, dags. 7. apríl, um stöðuna á Þorleifsgjafasjóði.
Guðrún Ásta Ólafsdóttir, lögfræðingur sveitarfélagsins kemur inn á fundinn og fer yfir málefni Þorleifsgjafarsjóðs. Bæjarráð felur lögfræðingi að hafa samband við hlutaðeigendur til að fá nánari upplýsingar og svara í samræmi við stjórnsýslulög.
Samþykkt
Guðrún Ásta Ólafsdóttir, lögfræðingur fer af fundinum kl. 9:32
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn kl. 9:32
9. 2604039 - Fyrirspurn bæjarfulltrúa S-lista - kostun auglýsinga á samfélagsmiðlum
Fyrirspurn frá bæjarfulltrúa S-lista, dags. 7. apríl um kostun á auglýsingum á samfélagsmiðlum.
Bæjarstjóri leggur fram svör við fyrirspurn um kostun auglýsinga á samfélagsmiðli bæjarstjóra. Fram kom að um ranga skráningu hefði verið að ræða inn á persónulegri facebooksíðu bæjarstjóra sem nú væri búið að leiðrétta. Allar greiðslur fyrir auglýsingar á umræddri facebooksíðu hafa verið greiddar persónulega af bæjarstjóra.

Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og staðfestir að sveitarfélagið greiði enga reikninga vegna auglýsinga á samfélagsmiðli bæjarstjóra.
Fyrirspurn um kostun auglýsingar á samfélagsmiðlum..pdf
Svar við fyrirspurn um kostun auglýsinga D-listans í Árborg 8.apríl´26.pdf
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn kl. 9:40
10. 2603310 - Ársreikningur Almannavarna Árnessýslu 2025
Ársreikningur Almannavarna Árnessýslu 2025.
Lagt fram til kynningar.
11. 2603299 - Umsögn - frumvarp til laga um lagareldi 529. mál
Erindi frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 24. mars þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um lagareldi. 529 mál. Umsagnarfrestur er til og með 10. apríl.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Samþykkt
Frumvarp til laga um lagareldi..pdf
Til umsagnar 529. mál og 530. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.pdf
12. 2603300 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð - bætt lagaumgjörð.
Erindi frá atvinnuveganefnd Alþingis, dags. 24. mars. þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð (bætt lagaumgjörð). 530. mál. Umsagnarfrestur er til og með 10. apríl.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Samþykkt
Frumvarp til laga um um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð - bætt lagaumgjörð..pdf
Til umsagnar 529. mál og 530. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.pdf
13. 2603316 - Umsögn - frumvarp til lagaum breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 482011 - vindorka og verndarflokkur 565. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 26. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011 (vindorka og verndarflokkur). 565 mál.
Umsagnafrestur er til og með 14. apríl.

Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Samþykkt
Tölvupóstur - Til umsagnar 565. mál frá nefna- og greiningarsviði Alþingis.pdf
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48-2011 - vindorka og verndarflokkur..pdf
14. 2604029 - Umsögn - frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna 568. mál
Erindi frá atvinnuveganend Alþingis, dags. 27. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna. Umsagnafrestur er til og með 15. apríl nk.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Samþykkt
Fw: Til umsagnar 568. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis .pdf
Frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna.pdf
15. 2604034 - Umsögn - frumvarp til laga einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum 582. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 30. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Umsagnafrestur er til og með 16. apríl.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Samþykkt
Fw: Til umsagnar 582. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis .pdf
Frumvarp til laga einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.pdf
Fundargerðir
16. 2603023F - Umhverfisnefnd - 26
26. fundur haldinn 24. mars.
17. 2603022F - Eigna- og veitunefnd - 53
53. fundur haldinn 24. mars.
18. 2603026F - Fræðslu- og frístundanefnd - 27
27. fundur haldinn 24. mars.
19. 2603014F - Skipulagsnefnd - 59
59. fundur haldinn 25. mars.
Fundargerðir til kynningar
20. 2603262 - Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu 2026
34. fundur haldinn 20. mars.
Ársreikningur 2025.

Lagt fram til kynningar.
34 stjórn 200326 Undirritað.pdf
21. 2602100 - Fundargerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga 2026
217. fundur haldinn 24. mars.
Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga 2025.

Lagt fram til kynningar.
Fundur 217 - 24.3.2026.pdf
22. 2601407 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2026
253. fundur haldinn 24. mars.
Ársreikningur HSL 2025.

Lagt fram til kynningar.
253_fundur_fundargerd.pdf
23. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
996. fundur haldinn 20. mars.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 996.pdf
24. 2301137 - Fundargerðir stjórnar Arnardrangs hses 2022-2026
26. fundur haldinn 23. mars.
Ársreikningaur Arnardrangs hses. 2025.

Lagt fram til kynningar.
26. stjórnarfundur Arnardrangs.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica