Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu

Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 176

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
08.07.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Halldór Ásgeirsson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi

Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2607010 - Árvegur - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Anne Bruun Hansen hönnuður fyrir hönd Björgunarfélag Árborgar sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu.
Helstu stærðir 317,9m²

Erindinu er frestað þar sem að brunahönnun liggur ekki fyrir.
Frestað
2. 2101114 - Bjarmaland - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnuður fyrir hönd Huga Frey Valsson sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu.
Helstu stærðir 11,3m² & 31,6m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2607009 - Gljúfurland 2-12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir Fagraland ehf. sækir um leyfi til að byggja raðhús.
Helstu stærðir 650,6m² & 2.524,7m³
Staðfesting á að lífsferilsgreining hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Eldvarnareftirliti Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa auk þess að tillaga deiliskipulagsbreytingar hafi tekið gildi með birtingu í b-deild stjórnartíðinda og uppfært lóðarblað liggi fyrir. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2607008 - Gljúfurland 14-24 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

5. 2607080 - Norðurgata 8 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Arnhildur Pálmadóttir hönnuður fyrir Svandísi Þóru Kristinsdóttir sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir 437,7m² & 1.682,7m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Eldvarnareftirliti Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2606319 - Tryggvagata 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ingvar Bjarnason hönnunarsjóri f.h. Byko sækir um byggingarheimild fyrir tvö 20 m² gestahús sem verður smíðað af nemendum á húsasmíðabraut í Fjölbrautaskóla Suðurlands skólaárið 2026-2027 undir handleiðslu kennara/hússmíðameistara. Húsið verður smíðað í porti verknámshúss skólans (Hamri) yfir skólaárið og verður síðan flutt af staðnum sumarið 2027.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
7. 2606311 - Eyrarlækur 8 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Ingi Már Aðalsteinsson eigandi af Eyrarlæk 8 & eigendur að Laxalæk 9 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar, einnig leitar eigandi samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e, leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar ásamt tæknilýsingu sveitarfélagsins varðandi frágang á lóðum en þá er miðað við 5x10 þríhyrning frá götu að gangstig þar sem skjólgirðing má ekki fara yfir 80cm.
Leitað verði umsagnar sviðsstjóra mannvirkja og umhverfissviðs og forstöðumanns þjónustumiðstöðvar vegna nálægðar við opið svæði sveitarfélagsins.
Samþykkt
8. 2607089 - Eyrarlækur 8 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Smáhýsi
Ingi Már Aðalsteinsson eigandi af Eyrarlæk 8 & eigendur að Laxalæk 9 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar smáhýsi enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
9. 2606320 - Hæðarland 42 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - smáhýsi
María Kristín Guðjónsdóttir eigandi af Hæðarlandi 42 tilkynnir um samþykki á byggingaráformum nær lóðarmörkum en 3 metrar til Sveitarfélagsins Árborg
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar smáhýsi enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Leitað verði umsagnar sviðsstjóra mannvirkja og umhverfissviðs og forstöðumanns þjónustumiðstöðvar vegna nálægðar við opið svæði sveitarfélagsins.
Samþykkt
10. 2607006 - Mýrarland 21 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Smáhýsi
Birkir Snær Fannarsson og Guðrún Ásta Gísladóttir eigendur af Mýrarlandi 21 & eigendur af Mýrarlandi 23 og Smáralandi 14 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis á milli lóða.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar smáhýsi enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
11. 2606312 - Stöðuleyfi - Hörðuvellir 1
Tómas Alfonsson fyrir hönd Framvkæmdasýslu Ríkiseigna óskar eftir stöðuleyfi fyrir einn 20 feta gám sem notaður verður undir varaafl fyrir lögreglustöðina á Selfossi fyrir tímabilið 01.07.2027 - 30.06.2027.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir 20 feta gám fyrir tímabilið 01.07.2027 - 30.06.2027
Samþykkt
12. 2605219 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Antmann Residence að Eyraveg 3-5
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Landsbyggð fasteignir ehf. um starfsleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - B stærra Gistiheimili.
Heiti staðar: Amtmann Residence, Eyravegur 3-5, 800 Selfossi F2185691, rýmisnúmer 01 - 0201, 0202, 0203, 0204, 0205, 0301, 0302, 0303, 030, 0305, 0401 & 0402 hámarksfjöldi gesta er 81.

Skipulags- og Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist örrygisúttekt þar með gefur hann jákvæða umsögn vegna starfsleyfis.
Samþykkt
13. 2607035 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Knattspyrnudeild UMF Selfoss vegna sölubás með matvæli
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Knattspyrnudeildar UMF Selfoss vegna grill á kjöti á svæði Kótelettunar Hrísmýri 6. 10.07.2026-11.07.2026
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist notkun lóðar og þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
14. 2607037 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Viðburðastofu Suðurlands ehf. vegna tímabundins leyfi fyrir Kótelettan 2026 vegna útiveitinga í Sigtúnsgarði
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Viðburðastofu Suðurlands ehf. vegna útiveitinga á svæði Kótelettunar í Sigtúnsgarði 11.07.2026 frá klukkan 13:00-17:00.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist notkun lóðar og þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
15. 2607036 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Viðburðastofu Suðurlands ehf. vegna tímabundins leyfi fyrir Kótelettan 2026 vegna útiveitinga að Hrísmýri 6
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Viðburðastofu Suðurlands ehf. vegna útiveitinga á svæði Kótelettunar Hrísmýri 6. 10.07.2026-11.07.2026
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist notkun lóðar og þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
16. 2606131 - Rekstrarleyfisumsögn - Amtmann Residence
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Landsbyggð fasteignir ehf. um rekstrarleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - B stærra Gistiheimili.
Heiti staðar: Amtmann Residence, Eyravegur 3-5, 800 Selfossi F2185691, rýmisnúmer 01 - 0201, 0202, 0203, 0204, 0205, 0301, 0302, 0303, 030, 0305, 0401 & 0402 hámarksfjöldi gesta er 81.

Skipulags- og Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gefur hann jákvæða umsögn vegna útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica