Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 172

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
13.05.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2605112 - Gljúfurland 1-3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Fagraland ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús.
Helstu stærðir eru; 309,0m² og 806,7m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2411268 - Hjarðarholt 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Davíð Árnason hönnunarstjóri f.h. Hlyns Arnórssonar sækir um leyfi til að byggja við bílskúr 29,3m² & 84,6m³.
Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 162 og var sett í grenndarkynningu.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2605004 - Eyrarvík 1 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Sandra Ósk Ben Viðarsdóttir eigandi af Eyrarvík 1 óskar eftir samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
4. 2605016 - Grashagi 24 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum-smáhýsi
Aleksandrs Semjonovs & Liene Laugale eigendur af Grashaga 24 og Guðmundur Egill Sigurðsson eigandi af Grashaga 2 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar og smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
5. 2605124 - Grundartjörn 5a - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Kornel Chorazyczewski eigandi af Grundartjörn 5a og Halla Eiríksdóttir eigandi af Grundartjörn 5 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar einnig leitar eigandi eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
6. 2605114 - Móstekkur 91 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Skjólgirðing
Sævar Ingi Ásgeirsson eigandi af Móstekk 91 og eigendur af Móstekk 89b, 93 & 105 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðinar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
Samþykkt
7. 2604243 - Stekkjarland 1b - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Skjólgirðing
Sesselía Söring Þórisdóttir eigandi af Stekkjarland 1b og Birgir S. Ellertsson eigandi af Stekkjarland 1a tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
Samþykkt
8. 2604241 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Sigga Kalla ehf. vegna gististaðar að Smáratúni 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Siggi Kalla ehf. um starfsleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - G íbúðir.
Heiti staðar: Sænska húsið, Smáratún 1, 800 Selfossi F2340665, rýmisnúmer 01 - 0001, 0101, 0102, 0201 & 0202 hámarksfjöldi gesta er 30.

Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags Árborgar fyrir miðsvæði M6 er gert ráð fyrir að heimild sé fyrir verslunar -og þjónustutengdum rekstri innan svæðisins en þó með þeim fyrirvara að tekið sé til viðkomandi reksturs innan deiliskipulags og/eða með grenndarkynningu innan hverfisins. Ekkert deiliskipulag er í gildi sem tekur til lóðarinnar og mælist því byggingarfulltrúi til þess að framlagðar umsagnarbeiðnir er varðar útgáfur starfs- og rekstrarleyfis fyrir starfseminni verður send til grenndarkynningar innan hverfisins í takt við stefnumörkun aðalskipulags. Fornsenda jákvæðrar umsagnar byggingarfulltrúa er niðurstaða grenndarkynningar. Komi fram athugasemdir við kynningu málsins skal það tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd Árborgar. Skipulagsdeild annast grenndarkynningu málsins.

Samþykkt
9. 2605081 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Húsasmiðjunnar að Larsenstræti 6
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Húsasmiðjan ehf. um breytingar á starfsleyfi vegna flutnings starfsemi frá Eyravegi yfir á Larsenstræti 6.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist öryggisúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu tímabundis starfsleyfi til 09.11.2026 en þá fellur öryggisúttekt úr gildi.
Samþykkt
10. 2604305 - Rekstrarleyfisumsögn - fyrir gistingu í flokki II - Smáratún 1 Selfossi fyrir Sænska Húsið
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Siggi Kalla ehf. um rekstrarleyfi til gistinga í flokki II, Tegund: G - Íbúðir.
Heiti staðar: Sænska húsið, Smáratún 1, 800 Selfossi F2340665, rýmisnúmer 01 - 0001, 0101, 0102, 0201 & 0202 hámarksfjöldi gesta er 30.

Samkvæmt stefnumörkun aðalskipulags Árborgar fyrir miðsvæði M6 er gert ráð fyrir að heimild sé fyrir verslunar -og þjónustutengdum rekstri innan svæðisins en þó með þeim fyrirvara að tekið sé til viðkomandi reksturs innan deiliskipulags og/eða með grenndarkynningu innan hverfisins. Ekkert deiliskipulag er í gildi sem tekur til lóðarinnar og mælist því byggingarfulltrúi til þess að framlagðar umsagnarbeiðnir er varðar útgáfur starfs- og rekstrarleyfis fyrir starfseminni verður send til grenndarkynningar innan hverfisins í takt við stefnumörkun aðalskipulags. Fornsenda jákvæðrar umsagnar byggingarfulltrúa er niðurstaða grenndarkynningar. Komi fram athugasemdir við kynningu málsins skal það tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd Árborgar. Skipulagsdeild annast grenndarkynningu málsins.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica