Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 65

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
19.11.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir varamaður, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Matthías Bjarnason varamaður, B-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.

Forseti bæjarstjórnar setur fundinn og býður sérstaklega velkomna fulltrúa ungmennaráðs Árborgar.

Fulltrúar ungmennaráðs:
Atli Dagur Guðmundsson,
Björgvin Gunnar Héðinsson,
Elín Eyrún Herbertsdóttir,
Eva Karen Friðriksdóttir,
Guðrún Birna Kjartansdóttir,
María Friðmey Jónsdóttir,
Milena Eva Markowska,
Rannveig Helga Kjartansdóttir,
Sunneva Dís Eiríksdóttir.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2511173 - Tillaga frá UNGSÁ - Heimavist FSu
Tillaga frá UNGSÁ um að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hefji viðræður við ríkið um uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Guðrún Birna Kjartansdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að sveitarfélagið sýni frumkvæði og hefji viðræður við ríkið um uppbyggingu nýrrar heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Núverandi heimavist skólans er staðsett að Austurvegi 28 á Selfossi. Þar eru einungis 18 herbergi á efri hæð hússins fyrir nemendur, en á neðri hæðinni dvelja farandverkamenn. Takmarkað pláss veldur því að ekki allir nemendur, sem þurfa á heimavist að halda, fá þar inni. Þetta er óviðunandi staða fyrir jafn fjölmennan skóla og FSu.

Margir nemendur þurfa að aka allt að klukkutíma á hverjum degi til að sækja skólann. Þrátt fyrir möguleikann á heimavist velja margir að keyra frekar, þar sem aðstæður á vistinni eru ófullnægjandi og plássið af skornum skammti. Þetta er miður, því Suðurland er víðfeðmt svæði og mikilvægt er að skólinn sé raunhæfur kostur fyrir nemendur hvaðanæva að af landinu.

Með uppbyggingu nýrrar og stærri heimavistar myndi aðgengi að menntun aukast, skólasókn batna og fleiri nemendur gætu nýtt sér nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Á lóð skólans er nægilegt rými til að byggja slíka viðbót.

Ungmennaráð Árborgar lagði fram þessa tillögu á bæjarstjórnarfundi á síðasta ári, en hingað til hefur ekkert gerst í málinu. Við hvetjum því sveitarfélagið eindregið til að beita sér fyrir málinu og hefja formlegar viðræður við ríkið um byggingu nýrrar, vandaðrar heimavistar á lóð skólans.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar.
Tillaga 1 - Heimavist FSu.pdf
2. 2511174 - Tillaga frá UNGSÁ - samræmd einkunnagjöf í grunnskólum og Safnskóli
Tillaga frá UNGSÁ um að samræma einkunnakerfi í grunnskólum sveitarfélagsins.
Björgvin Gunnar Héðinsson tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að samræma einkunnakerfi í grunnskólum sveitarfélagsins

Einkunnagjöf er mat á þeirri hæfni og þekkingu sem nemandi hefur öðlast í námi. Mikilvægt er að samræma einkunnagjöf í grunnskólum sveitarfélagsins, þar sem hún getur verið mismunandi milli skóla. Slíkur munur getur leitt til þess að nemendur fá ólíkar einkunnir fyrir sama árangur, sem skapar ójafnræði og getur haft áhrif á framtíðarnám þeirra.

Sem dæmi úr ungmennaráðinu þá gekk einn meðlimur í Vallaskóla á sama tíma á meðan annar var í Sunnulækjarskóla. Báðum aðilum gekk vel í námi og í einu prófi fengu báðir allt rétt. Þrátt fyrir það var einkunnin ekki sú sama ? einn fékk B og hinn A. Þessi litli munur hafði áhrif á útskriftareinkunnina og varð til þess að B nemandinn þurfti að taka einum fleiri áfanga en A nemandinn í framhaldsskóla.

Til að tryggja jafnræði og áreiðanleika í námsmati er lagt til að bæjarstjórn Árborgar skoði það að samræma einkunnagjöf milli grunnskólanna. Eins og við höfum rætt áður á á bæjarstjórnarfundum er einn möguleiki að koma á fót Safnskóla. Safnskóli myndi koma í veg fyrir þetta ósamræmi og ójafnræði milli grunnskólanna í sveitarfélaginu. Á meðan á undirbúningi og framkvæmdum stendur væri jafnframt hægt að efla samstarf með því að halda fleiri fundi milli kennara og skólastjórnenda, þar sem bornar væru saman leiðir, verkefni og matsviðmið.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar.
Tillaga 2 - samræmd einkunnagjöf og safnskóli.pdf
3. 2511175 - Tillaga frá UNGSÁ - menningarhús í Árborg
Tillaga UNGSÁ um að stofnað verði menningarhús í Árborg.
Sunneva Dís Eiríksdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að Árborg stofni menningarhús í Árborg.

Við sölu menningarsalarins er kjörið tækifæri að skoða möguleika á að koma á legg menningarhúsi eða viðburðarsal í sveitarfélaginu.

Það vantar stað þar sem hægt væri að halda alls konar viðburði. Menningarhús gæti meðal annars nýst fyrir tónleika, námskeið, fyrirlestra, leik-, söng-, dans- og aðrar listsýningar, störf kóra, skóla og félagsmiðstöð. Til dæmis þá setur Fjölbrautaskóli Suðurlands upp söngkeppni NFSu á hverju ári og þurfa að fá utanaðkomandi aðila til þess að setja upp svið en með menningarhúsi gæti nemendafélagið nýtt sér aðstöðuna. Það myndi hagnast bæði ungmennunum í Árborg sem eru í námi við skólann og um leið styðja við rekstur menningarhússins.

Það myndi lífga upp á menningarlíf sveitarfélagsins og býr til tækifæri fyrir alls konar menningarstarf. Með menningarhúsi er frekar tækifæri fyrir aðkeypta afþreyingu og þurfa þá íbúar ekki alltaf að fara til Reykjavíkur eða annarra staða til þess að njóta menningar og viðburða. Menningarsalur hefur þann möguleika að vera hornsteinn menningarlífs nærsamfélagsins okkar innan sveitarfélagsins Árborgar. Þetta myndi styrkja ímynd Árborgar, efla samheldni og gera sveitarfélagið að enn betri stað til þess að búa í.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til bæjarráðs.
Tillaga 3 - stofnun menningarhúss.pdf
4. 2511176 - Tillaga frá UNGSÁ - þjónusta á Eyrarbakka og Stokkseyri
Tillaga frá UNGSÁ um jöfn tækifæri íbúa á þjónustu á Stokkseyri og Eyrarbakka.
Elín Eyrún Herbertsdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ég stend hér í dag sem íbúi Stokkseyrar, sem hluti af þeirri samfélagsheild sem Árborg á að vera. En um leið er ég rödd ungmennanna og íbúanna sem búa á þeim stöðum sem oft gleymast þegar ákvarðanir eru teknar.

Það er mikilvægt að tala hreint út: það er ójafnvægi innan sveitarfélagsins. Þjónustan er ekki jöfn. Tækifærin eru ekki jöfn. Og tilfinningin sem margir íbúar Stokkseyrar og Eyrarbakka hafa er sú að þeirra rödd skipti minna máli en annarra.

Við sjáum það á mörgum sviðum. Sundlaugin á Stokkseyri hefur verið lokuð stóran hluta ársins og það hefur mikil áhrif á samfélagið, bæði börn, ungmenni og eldri íbúa sem hafa misst mikilvægan samkomustað og hreyfimöguleika.
Við sjáum það líka í skólamálum: nemendur í Barnaskólanum Á Eyrarbakka og Stokkseyri þurfa oft að sætta sig við minna, t.d. var ekki gert ráð fyrir bókasafni í skólahúsnæðið á Eyrarbakka, BES var ekki veitt styrk fyrir nýjum ipödum sem nýttir hefðu verið í kennslu og svo margt meira.

Við sjáum það einnig í samgöngum, Árborgarstrætó gengur sjaldan, oft á óþægilegum tímum, og það gerir ungu fólki erfitt fyrir að taka þátt í tómstundum eða félagslífi í öðrum hluta sveitarfélagsins. Í staðinn hefur áætlun Árborgarstrætó verið breytt svo hægt sé að nýta vagninn sem frístundabíl fyrir yngsta stig grunnskólanna á Selfossi og vil ég benda á að það er nú þegar frístundabíll sem gengur innanbæjar á Selfossi og áður innanbæjar Stokkseyrar og Eyrarbakka; þær ferðir voru lagðar niður.

Þetta eru ekki smáatriði heldur eru þetta dæmi um hvernig mismunun í þjónustu hefur áhrif á daglegt líf fólks.

Við trúum því ekki að þetta sé af illvilja, heldur af vana. Það hefur einfaldlega verið sjálfsagt að leggja mesta áherslu á stærsta byggðarkjarnann. En nú er kominn tími til að við breytum þeim vana.

Við þurfum að tryggja að þjónusta, uppbygging og tækifæri dreifist jafnt. Að börn og ungmenni á Stokkseyri og Eyrarbakka hafi sömu aðstöðu, sömu möguleika og sömu framtíðarsýn og jafnaldrar þeirra annars staðar í Árborg.

Þetta snýst ekki bara um sundlaugina og strætó, heldur virðingu.

Við vitum að við getum gert betur. Við vitum að Árborg getur orðið sveitarfélag sem stendur saman, þar sem allir staðir eru jafnir, ekki bara á korti, heldur í verki.

Við erum ekki að biðja um neitt óraunhæft. Við erum einfaldlega að biðja um sanngirni.

Um að rödd Stokkseyrar og Eyrarbakka fái að heyrast og að hún sé tekin alvarlega.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til bæjarráðs og fræðslu- og frístundanefndar.
Tillaga 4 - áminning um ströndina.pdf
5. 2511177 - Tillaga frá UNGSÁ - leikvellir í Árborg
Tillaga frá UNGSÁ um endurbætur o.fl. vegna leikvalla í Árborg.
Rannveig Helga Kjartansdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráðið fór nýverið í vettvangsferð til að skoða leikvelli í sveitarfélaginu og meta ástand þeirra. Markmiðið var að fá heildaryfirsýn yfir aðstöðu barna og ungmenna og greina hvar helst væri þörf á endurbótum eða viðbótum við leiktæki.

Við komumst að því að sumir leikvellir eru í mjög góðu ástandi, á meðan aðrir eru orðnir gamlir og þarfnast endurnýjunar. Hér fyrir neðan er stutt yfirlit yfir helstu athuganir:

- Leikvellir sem eru í góðu standi og þurfa ekki frekari endurbætur á leiktækjum eru í Álalæk, Löngumýri, Dælengi, Miðtúni, leikvöllurinn inn í grundarhverfinu og síðan á milli Hólatjarnar og Gráhellu.
- Leikvellir sem þarfnast mikilla endurbóta, þar sem fá eða gömul leiktæki eru til staðar, eru meðal annars við Miðengi, Fossveg og fyrir aftan Rauðholt. Þar mætti bæta við nýjum leiktækjum, fjölga rólum og setja upp nýja kastala eða klifurgrindur til að gera svæðin meira aðlaðandi fyrir börn.
- Á Aparóló við Hólana er góð aðstaða til hreyfingar, en vantar fjölbreytni í leiktækjum eftir að kastalinn var fjarlægður.

Við fórum einnig yfir stöðuna á leikvöllum á Stokkseyri og Eyrarbakka. Þar er staðan svipuð og á Selfossi, sum svæði bjóða upp á ágæta aðstöðu, en víða er þörf á uppfærslum og fjölbreyttari leiktækjum.

- Á Stokkseyri eru leikvellirnir í ágætu ástandi en mætti vel lífga upp á þá með nýjum leiktækjum og skemmtilegri umgjörð.
- Á Eyrarbakka er skólalóðin hins vegar frekar óspennandi, þar sem hún samanstendur aðallega af fótboltavelli og körfuboltavelli. Annar leikvöllur í þorpinu er til staðar en þar eru fá og fremur óspennandi leiktæki, þar mætti bæta við til að gera svæðið meira aðlaðandi fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur.

Það má því segja að margir leikvellir í Árborg þarfnist endurnýjunar, viðhalds eða fjölgunar leiktækja til að verða áhugaverðari og aðgengilegri fyrir börn á öllum aldri.

Ungmennaráð Árborgar leggur því til að bæjarstjórn taki til endurskoðunar ástand og búnað leikvalla sveitarfélagsins með það að markmiði að bæta aðstöðu og fjölbreytni.
Við leggjum til að:
- Gerð verði heildarskoðun á öllum leikvöllum sveitarfélagsins, þar á meðal á Stokkseyri og Eyrarbakka.
- Forgangsraðað verði endurbótum eftir þörf og öryggismati.
- Bætt verði við fjölbreyttum leiktækjum þar sem vantar, s.s. rólum, kastölum, snúningstækjum og klifurgrindum.
- Aðgengi, lýsing og snyrtimennska á leiksvæðum verði bætt til að gera þau aðlaðandi og örugg.

Árborg er stórt og ört vaxandi sveitarfélag og mikilvægt er að öll börn hafi aðgang að öruggum, hvetjandi og fjölbreyttum leiksvæðum, óháð því hvar þau búa. Með því stuðlum við að aukinni útiveru, hreyfingu, félagsfærni og vellíðan barna og ungmenna í sveitarfélaginu.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til eigna- og veitunefndar.
Tillaga 5 - leikvellir í Árborg.pdf
6. 2511178 - Tillaga frá UNGSÁ - Árborg barnvænt sveitarfélag
Tillaga frá UNGÁ um að Sveitarfélagið Árborg verði barnvænt sveitarfélag.
María Friðmey Jónsdóttir tekur til máls f.h. ungmennaráðs og leggur fram eftirfarandi tillögu:

Ungmennaráð Árborgar leggur til að Sveitarfélagið Árborg verði barnvænt sveitarfélag.

Barnvæn sveitarfélög er verkefni hjá Unicef sem styður sveitarfélög við að innleiða lög um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi.
Það myndi hafa jákvæð áhrif á samfélagið og við teljum að barnvænt sveitarfélag gæti stuðlað að því að börn geti tekið virkan þátt í samfélaginu og starfsemi innan sveitarfélagsins. Verkefnið leggur mikla áherslu á að ungmenni sveitarfélagsins fái að taka þátt í ákvörðunum sem varða líf þeirra og samfélag sem styrkir lýðræðisvitund og þátttöku ungs fólks. Samstarf við UNICEF sýnir að sveitarfélagið tekur ábyrgð á stöðu barna og vill vera í fararbroddi í málefnum barna og mannréttinda sem styrkir og bætir jákvæða ímynd sveitarfélagsins út á við. Samstarf við UNICEF þýðir einnig að þau styðja við stefnumótun og aðgerðir sem byggja á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sveitarfélagið fær þannig tól og stuðning til að skapa öruggara, sanngjarna og barnvænna samfélag. UNICEF á Íslandi veitir fræðslu, ráðgjöf og verkfæri til að hjálpa sveitarfélögum að ná markmiðum sínum, bæði starfsfólki og kjörnum fulltrúum.

Barnvænt sveitarfélag hjálpar sveitarfélaginu að greina veikleika og styrkleika í þjónustu við börn og leiðir til markvissara ákvarðanataka og betri nýtingar á fjármagni. Þegar sveitarfélög leggja áherslu á börn og ungmenni eykur á lífsgæði, félagslega samheldni og dregur úr félagslegum vandamálum til lengra tíma.

Við í Ungmennaráðinu hvetjum bæjarstjórn eindregið til að samþykkja þessa tillögu og gera Árborg að fyrirmynd og leiðandi sveitarfélagi sem sýnir í verki framtakssemi, framsýni og metnað til jákvæðra breytinga.

Umræður um 1.-6. dagskrárlið fara fram undir þessum dagskrárlið.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Bragi Bjarnason, - D-lista, Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista, Guðrún Birna Kjartansdóttir, ungmennaráði, Elín Eyrún Herbertsdóttir, ungmennaráði, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Matthías Bjarnason, B-lista og María Friðmey Jónsdóttir, ungmennaráði, taka til máls.

Brynhildur Jónsdóttir, varaforseti, tekur við stjórn fundarins kl. 17:13.

Kjartan Björnsson, D-lista, tekur til máls.

Kjartan Björnsson, forseti bæjarstjórnar, tekur á ný við stjórn fundarins kl. 17:20.

Sigurður Vídalín Guðmundsson, S-lista, tekur til máls.

Að loknum umræðum samþykkir bæjarstjórn samhljóða að vísa tillögunni til fræðslu- og frístundanefndar og velferðarnefndar.

Gert er hlé á fundinum kl. 17:30. Fundarhlé lokið kl. 17:38.
Tillaga 6 - barnvænt sveitarfélag.pdf
7. 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir
Tillaga frá 52. fundi skipulagsnefndar frá 5. nóvember, liður 1. Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir.

Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til hesthúsasvæðisins á Selfossi. "Meginmarkmið deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs. Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa. Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipo-keppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er með landnotkunina ÍÞ2. Með gildistöku þessa deiliskipulags falla allar eldri skipulagsáætlanir fyrir svæðið úr gildi."
Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Náttúruverndarstofnun og Vegagerðinni. Þá barst nokkur fjöldi athugasemda frá íbúum í næsta nágrenni við hesthúsahverfið, og einnig frá fyrrverandi landaeiganda hesthúsasvæðis og núverandi uppbyggingaraðila íbúðasvæðis á aðliggjandi landi, auk skipulagsnefndar hestamannafélagsins Sleipnis.
Helstu athugasemdir varða, nálægð svæðis við væntanlega íbúðabyggð, auk þess sem lýst er yfir áhyggjum af lyktarmengun.
Að mati skipulagsnefndar hefur verið brugðist við þeim umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan tillögunnar og í samantekt athugasemda og svara við innsendum umsögnum. Að mati nefndarinnar er tillagan í takt við heimildir aðalskipulags sveitarfélags þar sem svæðið er skilgreint sem hesthúsasvæði ÍÞ2. Aðliggjandi landeigendum og lóðarhöfum hafi mátt vera ljós skilgreining svæðisins innan núgildandi og eldra aðalskipulags sveitarfélagsins. Bendir nefndin á að innan deiliskipulags fyrir Austurbyggð II er vísað er til eldra aðalskipulags þar sem svæðið er merkt Ú11 og Ú13. Innan greinargerðar aðliggjandi deiliskipulags er enn fremur vísað til þess að skilgreind íbúðarbyggð liggi sunnan hesthúsahverfisins og að gengið verði á viðkomandi opið svæði til sérstakra nota fyrir hesthúsasvæði til að stækka íbúðarsvæðið. Hlutaðeigandi landeiganda aðliggjandi lands var því vel ljóst um fyrirhugaða notkun svæðisins þegar lagt var fram deiliskipulags sem tekur til íbúðarbyggðar ÍB13. Ekkert í stefnumörkun aðalskipulags sveitarfélagsins gefur til kynna að viðkomandi svæði sé víkjandi eða að önnur landnotkun en hesthúsasvæði sé áætlað innan viðkomandi svæðis. Þetta hafi landeiganda, lóðarhöfum og íbúðareigendum innan deiliskipulagssvæði Austurbyggðar II mátt vera það ljóst við skipulagningu og gildistöku deiliskipulags viðkomandi íbúðarbyggðar sem liggur að hesthúsasvæðinu. Auk þess bendir nefndin á að með gildistöku deiliskipulags er útbúið verkfæri til að bæta úr ýmsum aðstöðumálum innan svæðisins s.s. er varðar frágang taðþróa, lausafjármuni innan svæðisins, uppbyggingu grunninnviða o.s.fr.

Mælist nefndin til þess við bæjarstjórn Árborgar að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með 3 atkvæðum af 5.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Matthías Bjarnason, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati bæjarstjórnar hefur verið brugðist við athugasemdum og umsögnum sem bárust vegna tillögunnar innan uppfærðrar tillögu og innan samantektar á athugasemdum og svörum.
Umsögn HSL 19.5.2025, Hesthúsahverfi dsk.pdf
Umsögn Vegagerðarinnar 9.5.2025, Hesthúsahverfi dsk.pdf
Umsögn Náttúruverndarstofnunar 13.5.2025, Hesthúsasvæði, dsk.pdf
Umsögn Brunavarna Árnessýslu 4.4.2025 - Hesthúsa DSK.pdf
Ums_MÍ_Svæði Hestamannafélagsins Sleipnis, Selfossi_ Deiliskipulag, Mál_ 470_2025.pdf
DSK Hesthúsasvæðis. Sleipnis - Athugasemdir f.h. Stjórn húsfélags Austurhóla 2, Rebekka Þráinsdóttir 20.5.2025.pdf
Athugasemdir Hesthúsaeigenda við Bæjartröð við auglýsta deiliskipulagstillögu - texti.pdf
Athugasemd v.auglýsingar - Hesthúsahv.dsk Skipulagsnefnd Sleipnis dags. 20.5.2025.pdf
Athugasemdir hesthúsaeigenda við Bæjartröð við auglýsta deiliskipulagstillögu - undirritað.pdf
DSK Hesthúsasvæðis. Sleipnir - Móttmæli Gabríel W. Guðmdundsson f.h. Húsfélags Austurhóla 10. dags. 20.5.2025..pdf
Athugasemdir Fagralands ehf, Hesthúsasvæði, DSK - Logos lögmannsþjónusta.pdf
Hesthúsasvæði DSK - Uppdráttur 15.2.2023.pdf
Hesthusasvaedi-02_DSK.pdf
2025-1020-Hesthusasvaedi-skilmalar-04.pdf
8. 2510347 - Deiliskipulagsbreyting - Byggðarhorn 54 (Litla Kot)
Tillaga frá 52. fundi skipulagsnefndar frá 5. nóvember, liður 5. Deiliskipulagsbreyting - Byggðarhorn 54 (Litla Kot).

Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi búgarðabyggðar, Byggðarhorns Búgarðar. Breytingin nær til lóðar númer 54 sem hefur fengið heitið Litla Kot. Lóðinni verður skipt í tvær lóðir, Litla Kot I og Litla Kot II. Aðkoma að lóðum er frá hreimreið, sem tengjast Byggðarhornsvegi (3081) sem er héraðsvegur. Nú þegar er búið að byggja íbúðarhús á lóðinni og mun það tilheyra Litla Koti I. Á hvorri lóð fyrir sig er heimilt að byggja íbúðarhús og útihús. Heildarbyggingarmagn lóðar fyrir breytingu er 800 m2 fyrir íbúðarhús og 1200 m2 fyrir útihús og verður samanlagt heildarbyggingarmagn beggja lóða eftir breytingu 800 m2 fyrir íbúðarhús og 1000 m2 fyrir útihús.

Skipulagsnefnd mælist til þess að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi og verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum á svæðinu auk þess sem leitað verði umsagna.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða deiliskipulagsbreytingu á Byggðarhorni 54 (Litla Kot) og að málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

deilisk09_03_Breyting-2025-Litla Kot.pdf
9. 2511014 - Reglur um val og útnefningu heiðursborgara í Sveitarfélaginu Árborg
Tillaga frá 149. fundi bæjarráðs frá 6. nóvember, liður 3. Reglur um val og útnefningu heiðursborgara í Sveitarfélaginu Árborg.

Lögð eru fram drög að reglum um val og útnefningu heiðursborgara Sveitarfélagsins Árborgar ásamt minnisblaði bæjarstjóra og bæjarritara, dags. 3. nóvember 2025.

Bæjarráð tekur vel í að settar verði reglur um val á heiðursborgara í Sveitarfélaginu Árborg og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Bragi Bjarnason, D-lista.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað.

Frestunartillaga er borin upp til atkvæða. Tillagan er felld með 6 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. 2 fulltrúar B-lista sitja hjá. 2 fulltrúar S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, greiða atkvæði með tillögunni.

Tillaga bæjarráðs til bæjarstjórnar um að samþykkja reglur um val og útnefningu heiðursborgara Sveitarfélagsins Árborgar er borin undir atkvæði og samþykkt með 8 atkvæðum, 5 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og 2 atkvæðum B-lista. 2 fulltrúar S-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, sitja hjá.
Drög - Reglur um val og útnefningu heiðursborgara Sveitarfélagsins Árborgar.pdf
10. 2511093 - Reglur um þjónustu frístundaheimila í Svf. Árborg
Reglur um þjónustu frístundaheimila í Svf. Árborg
Endurskoðaðar reglur um þjónustu frístundaheimila lagðar fram til staðfestingar.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir reglurnar samhljóða á 24. fundi.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.

Til máls tekur Brynhildur Jónsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Reglur um þjónustu frístundaheimila í Árborg - samþykktar reglur.pdf
11. 2511226 - Samþykktir Listasafns Árnesinga 2025
Fyrri umræða. Lagt er til að vísa samþykktum Listasafns Árnesinga til síðari umræðu.
Til máls tekur, Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Samþykkt fyrir Listasafn Árnesinga samþykktar á aðalfundi 14.10.2025.pdf
35. fundur HÁ haustfundur 14.10.2025.pdf
12. 2511227 - Samþykktir Héraðsskjalasafns Árnesinga 2025
Fyrri umræða. Lagt er til að vísa samþykktum Héraðsskjalasafns Árnesinga til síðari umræðu.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Samþykktir Héraðsskjalasafns Árnesinga samþykktar á aðalfundi 14.10.2025.pdf
35. fundur HÁ haustfundur 14.10.2025.pdf
13. 2511228 - Samþykktir Byggðasafns Árnesinga 2025
Fyrri umræða. Lagt er til að vísa samþykktum Byggðasafns Árnesinga til síðari umræðu.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Samþykkt fyrir Byggðasafn Árnesinga samþykktar á aðalfundi 14.10.2025.pdf
35. fundur HÁ haustfundur 14.10.2025.pdf
14. 2203180 - Reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkt verði að afnema vísitölutengingu viðmiðunarfjárhæða í 1. gr. reglna um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Sveitarfélaginu Árborg út kjörtímabilið 2022-2026.
Bæjarstjóra og bæjarritara falið að leggja til breytingar á reglunum fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026 sem myndu taka gildi á nýju kjörtímabili.

Til máls taka Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, B-lista.

Gert er hlé á fundinum kl. 18:48. Fundarhlé lokið kl. 18:52.

Forseti leggur til að málinu verði frestað til næsta bæjarstjórnarfundar.

Tillaga um frestun er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
15. 2510388 - Fjárhagsáætlun 2026-2029
Fyrri umræða.
Bragi Bjarnason, D-lista fylgir fjárhagsáætlun 2026-2029 úr hlaði.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, og Matthías Bjarnason, B-lista, taka til máls.

Lagt er til að fjárhagsáætlun fyrir 2026 og 3ja ára áætlun verði vísað til síðari umræðu.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Greinargerð fjárhagsáætlunar 2026 á pdf.pdf
Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2026-2029 (uppfært 14. nóv 2025).pdf
Fjárhagsáætlun 2026-2029_fyrri umræða_til birtingar.pdf
16. 2511222 - Útsvarsprósenta 2026
Lögð fram tillaga að útsvarsprósentu fyrir árið 2026.
Lagt til að útsvarsprósenta fyrir árið 2026 verði óbreytt, 14,97% af útsvarsstofni.

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 9 atkvæðum, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, sitja hjá.

Útsvarsprósenta Sveitarfélagsins Árborgar 2026.pdf
Fundargerðir
17. 2510037F - Bæjarráð - 149
149. fundur haldinn 6. nóvember.
18. 2510036F - Eigna- og veitunefnd - 47
47. fundur haldinn 4. nóvember.
19. 2510016F - Skipulagsnefnd - 52
52. fundur haldinn 6. nóvember.
20. 2511005F - Bæjarráð - 150
150. fundur haldinn 13. nóvember.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:54 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica