Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 171

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
28.05.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2603314 - Útboð á gatnasópun
Niðurstöður útboðs gatnahreinsunar hjá Sveitarfélaginu Árborg.
Kynntar voru niðurstöður opnunar tilboða í gatnahreinsun í Árborg. Tilboð barst frá einum aðila Hreinsitækni ehf. sem nemur kr. 6.108.494-.

Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda svo fremi sem þeir uppfylli kröfur útboðsgagna.
Samþykkt
2. 2605126 - Fundarboð og kjörbréf - aðalfundur Öldrunarráð Ísland 2026
Erindi frá Öldrunarráði Íslands, dags. 12. maí, þar sem boðað er til aðalfundar Öldrunarráðs Íslands sem haldinn verður 29. maí nk., aðildarfélög eru beðin um að tilkynna þátttöku á aðalfund með því að senda kjörbréf.
Lagt fram fundarboð aðalfundar Öldrunarráðs Íslands sem haldið verður föstudaginn 29.maí nk. kl. 11:00 í Grænumörk á Selfossi. Bæjarráð samþykkir að Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, formaður öldungaráðs verði fulltrúi Árborgar á fundinum og til vara, Sveinn Ægir Birgisson.
Samþykkt
3. 2511325 - Sveitarstjórnarkosningar 2026
Kosningaskýrsla Sveitarfélagsins Árborgar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026 lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4. 2605296 - Aðalfundur SASS 2026 - 25. júní
Lagt er fram fundarboð aðalfundar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 21. maí 2026. Fundurinn er haldinn 25. júní n.k. og á Sveitarfélagið Árborg 15 fulltrúa á aðalfundinum.
Lagt fram til kynningar. Fulltrúar Sveitarfélagsins Árborgar verða kosnir á fyrsta fundi bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030.
5. 2504124 - Úthlutunar- og útboðsskilmálar fyrir íbúðalóðir við Hjalladæl á Eyrarbakka
Lagt er til að lóðir 15-19, 21-23 og 25-27 við Hjalladæl á Eyrarbakka auglýstar til úthlutunar í samræmi við reglur Sveitarfélagsins Árborgar um úthlutun lóða.
Fram kom í minnisblaði bæjarritara að vegna mistaka hafi tilboðseyðublað ekki fylgt útboðsgögnum og því engin gild tilboð borist í lóðirnar. Bæjarráð samþykkir því að auglýsa lóðirnar Hjalladæl 15-19, 21-13 og 25-27 lausar til úthlutunar í samræmi við reglur Sveitarfélagsins Árborgar um úthlutun lóða.

Arnar Freyr Ólafsson, B-lista leggur fram eftirfarandi bókun:
Með vísan í byggingaréttargjald á Eyrarbakka og Stokkseyri þá legg ég til að byggingarréttargjald verði fellt niður á Eyrarbakka og Stokkseyri vegna þess að markaðsverð er lægra en á Selfossi og því hamlandi á uppbyggingu á Ströndinni.
Samþykkt
6. 2605312 - Fundargerðir Hverfisráðs Stokkseyrar 2026-2030
Fundargerð frá 1. fundi Hverfisráðs Stokkseyrar, sem haldinn var 21. maí sl, lögð fram, þar sem tilteknum málum er vísað til sveitarfélagsins.
Einnig er lagt fram minnisblað Ungmennafélags Stokkseyrar, dags. 11. apríl 2026.

Fundargerðin lögð fram.

Bæjarráð þakkar hverfisráði Stokkseyrar fyrir ítarlega fundargerð frá 21. maí sl. og felur bæjarritara að vísa erindum hennar til viðeigandi fagsviða til umfjöllunar og eftirfylgni. Lagt er til að bæjarfulltrúar í hverfisráðum fylgi málefnum eftir.

Í fundargerðinni er m.a. óskað eftir úrbótum er varða umferðaröryggi (hraðakstur, merkingar, hraðahindranir og gangbrautir), viðhaldi gatna og gönguleiða. Auk þess er óskað eftir að hlúð verði að umhverfismálum, óskað eftir meiri rækt við græn svæði og tiltekt sem og upplýsingum um framvindu fráveitumála. Enn fremur er óska eftir bættum frístundasamgöngum og aðgengi barna að þeim, upplýsingum um nýtingu og viðgerðir opinberra mannvirkja (m.a. Stjörnusteina og íþróttahúss), auknum stuðningi við viðburði og frístundastarf. Að síðustu var óskað eftir upplýsingum um skipulagsmál og skólaþing að hausti.

Bæjarráð leggur áherslu á að erindin verði tekin til efnislegrar skoðunar og óskað er eftir að niðurstöður og viðbrögð liggi fyrir eftir því sem við á.
Samþykkt
7. 2209043 - Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga 2022 - 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð Byggðasafns Árnesinga frá 18. maí 2026.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:05 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica