|
Almenn erindi |
1. 2104601 - Umsögn - tillögu til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030 |
Lagt fram til kynningar. |
Umsögn - tillaga til þingsályktunar um lýðheilsustefnu til ársins 2030, 645. mál.pdf |
|
|
|
2. 21041151 - Umsögn - drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2024 |
Bæjarráð fagnar frumkvæði Fjölskyldusviðs og tekur undir umsögnina. |
Umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2021-2021.pdf |
|
|
|
3. 2010171 - Beiðni um byggingu félagsaðstöðu á Selfossvelli |
Verkefnið er ekki á fjárhagsáætlun ársins en bæjarráð vísar erindinu þó til frekari skoðunar í eigna- og veitunefnd. |
Aðstaða fyrir KÁ á Selfossvelli minnisblað 9.apríl´21.pdf |
|
|
|
4. 2103074 - Stækkun Svarfhólsvallar í 18 holu völl |
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að framlagður samningur verði samþykktur og viðauki vegna hans. Bæjarstjóra er falið að undirrita samninginn. |
samstarfssamningur - GOS - tilbúið 29.mars´21.pdf |
|
|
|
5. 2103361 - Framkvæmdaleyfisumsókn - Neysluvatns- og hitaveitustofnar |
Bæjarráð samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi vegna lagningar neysluvatns- og hitaveitustofna í framhaldi af núverandi stofnlögnum sem lagðar voru árið 2019 |
15184-M22.1401-1.pdf |
Lagning veitustofna í Byggðarhorni.pdf |
|
|
|
6. 2103408 - Planitor - Vöktunarkerfi mála |
Bæjarráð samþykkir gengið verði til samninga við Planitor um vöktunarkerfið. Kostnaður er áætlaður 1,5 m.kr. og mánaðarlegur kostnaður 40.900,- Upptaka Planitor lausnarinnar er stórtskref í aukinni Íbúaþátttöku/íbúalýðræði. Þessi leið er einnig líkleg til að styrkja góða stjórnsýslu með mikilvægu aðhaldi íbúa. |
|
|
|
7. 2103337 - Framkvæmdaleyfisumsókn - Grendarstöðvar í Árborg. |
Bæjarráð samþykkir að veitt verði framkvæmdaleyfi fyrir grenndarstöðvum skv. meðfylgjandi erindi |
Grendarstöðvar yfirlit.pdf |
Kör frá ÍGF_Sunnulækjarskóli.pdf |
Umsókn um framkv leyfi 190321.pdf |
Umsóknareyðublað.pdf |
|
|
|
8. 1801139 - Eftirlit á móttökustað fyrir úrgang í landi Lækjamóta |
Bæjarráð þakkar UST skjót svör en gerir alvarlega athugasemd við greinargerðina, skýringar eru ónógar og erfitt að gera sér glögga grein fyrir þeirri vinnu sem innt var af hendi. Bæjarráð hvetur stofnunina til að vanda betur til verka að þessu leyti þannig að skýrt sé fyrir hvaða vinnu er verið að greiða. |
Urðun að Lækjamótum.pdf |
|
|
|
9. 2103100 - Eignasala Vallholt 38 |
Bæjarráð samþykkir kauptilboðið og felur bæjarstjóra að ganga frá sölunni. |
|
|
|
10. 2102064 - Krafa - miskabætur - Trúnaðarmál |
Bæjarráð samþykkir framlagt samkomulag. |
|
|
|
11. 21041673 - Ljósleiðaravæðing í þéttbýli Árborgar |
Bæjarráð harmar stöðu ljósleiðaramála á Stokkseyri og Eyrarbakka, þar sem búa um 1.200 íbúar. Staðan er orðin íbúum verulegt fótakefli nú þegar mikilvægi öflugra tenginga verður sífellt meira. Öflug nettenging er í dag orðin grunnforsenda þess að hægt sé að stunda fjarvinnu með góðu móti. Sveitarfélagið hefur verið með aðkomu að verkefninu Störf án staðsetningar, sem unnið er á grunni byggðaáætlunar, og er öflug nettenging lykilatriði í að það verkefni skili sem mestum árangri. Bæjarráð hvetur fjarskiptafyrirtækin Gagnaveituna og Mílu til að taka verkefnið föstum tökum. Þessi fyrirtæki hafa lýst yfir vilja sínum til að takast sameiginlega á við verkefni ljósleiðaravæðingar. Bæjarráð minnir í þessu sambandi á viljayfirlýsingu milli Svf. Árborgar og Gagnaveitunnar frá árinu 2018 þar sem lýst er þeirri fyrirætlun að ljúka ljósleiðaratengingum á Eyrarbakka og Stokkseyri á árinu 2021. Bæjarráð Árborgar hvetur einnig ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnamála til þess að tryggja að ljósleiðaravæðing í þéttbýli um allt land verði forgangsmál. Víða um land virðast fjarskiptafyrirtæki draga lappirnar vegna efasemda um markaðsforsendur en það hlýtur að vera sjálfsögð krafa að Fjarskiptasjóður ræki það hlutverk sitt að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta ef ætla má að fjarskiptafyrirtæki muni ekki ráðast í þau verkefni á markaðsforsendum. |
|
|
|
12. 2103314 - Eignasala Kirkjuvegur 18 |
Bæjarráð samþykkir framlagt tilboð frá Vigfúsi Þór Hróbjartssyni og Guðnýju Guðjónsdóttur. |
|
|
|
13. 21041446 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs 2021 |
Bæjarráð fellir niður fastan fund bæjarráðs sem vera átti 22. apríl. Næsti fundur verður haldinn 29. apríl nema eitthvað sérstakar ástæður liggi til annars. |
|
|
|
|
Fundargerðir |
14. 2103024F - Skipulags og byggingarnefnd - 65 |
|
|
|
15. 2103030F - Umhverfisnefnd - 17 |
|
|
|
16. 2103018F - Frístunda- og menningarnefnd - 21 |
|
|
|