Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 97

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
29.08.2024 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir komu fram.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2403229 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2024
Árshlutauppgjör (6 mánaða)
Lagt er fram 6 mánaða árshlutauppgjör sveitarfélagsins.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn og fer yfir uppgjörið. Unnur Edda kemur inn á fundinn kl. 8:10. Unnur Edda yfirgefur fundinn kl. 8:26.
6 mánaða uppgjör 2024.pdf
2. 2408061 - Verklagsreglur vegna gerðar viðauka við fjárhagsáætlun
Á 96. fundi bæjarráðs sem haldinn var 15. ágúst sl. var bæjarstjóra falið að vinna áfram með verklagsreglur vegna viðauka við fjárhagsáætlun og leggja að nýju fyrir bæjarráð.
Kynntar eru verklagsreglur vegna viðauka við fjárhagsáætlun.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur að verklagsreglum vegna gerðar viðauka við fjárhagsáætlun.
NÝ Drög að verklagsreglum vegna viðauka_v2.pdf
3. 2407217 - Rekstrarleyfisumsögn - Brúarstræti 6A - Mar seafood
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 24. júlí, málsnr. 2024-053126, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í flokki II. Tegund A- veitingahús. Mar seafood, að Brúarstræti 6A, Selfossi. Umsækjandi: Selfoss Town Tours ehf., kt. 520121-0800.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
(I) Umsagnarbeiðni-2024053126.pdf
4. 2407216 - Rekstrarleyfisumsögn - Eyravegur 1 - Samúelsson
Erindi frá Sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 24. júlí, málsnr. 2024-053144, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í flokki II - Tegund A-veitingahús, Samúelsson að Eyravegi 1, Selfossi. Umsækjandi: Foss veitingar ehf., kt. 520624-0310.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
(I) Umsagnarbeiðni-2024053144.pdf
5. 2408180 - Þjónustuteymi fyrir Grindvíkinga - hlutverk í grunnskólamálum
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 20. ágúst. Lagt var fram bréf dags. 19. ágúst frá þjónustuteymi fyrir Grindvíkinga til skólastjórnenda grunnskóla sveitarfélaga og bæjar- og sveitarstjóra.
Lagt fram til kynningar.
þjónustuteymi fyrir Grindvíkinga - bréf til skólastjórnenda grunnskóla 19. ágúst 2024.pdf
6. 2408214 - Aðalfundur Arnardrangs hses 2024
Lagt er til að Sveinn Ægir Birgisson, D-lista verði með atkvæðisrétt Sveitarfélagsins Árborgar á aðalfundi Arnardrangs hses, fimmtudaginn 29.ágúst 2024.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að Sveinn Ægir Birgisson, D-lista verði með atkvæðisrétt Sveitarfélagsins Árborgar á aðalfundi Arnardrangs hses.
7. 1911584 - Undirbúningur að nýrri Ölfusárbrú
Formaður bæjarráðs leggur til að meðfylgjandi áskorun verði send Vegagerðinni vegna uppbyggingar nýrrar Ölfusárbrúar.
Bæjarráð Árborgar skorar á Vegagerðina og ÞG verktaka ehf. að ljúka samningum um nýja Ölfusárbrú án tafar. Brýnt er að uppbygging brúarinnar hefjist því þjóðvegurinn gegnum Selfoss annar ekki núverandi umferð. Langar raðir liggja daglega upp að hringtorgi við Biskupstungnabraut og meðfram Austurvegi þar sem umferð er á leið í vesturátt. Ný Ölfursárbrú bætir umferðarflæði og umferðaröryggi í og við Selfoss. Gera má ráð fyrir að uppbygging nýrrar brúar taki um þrjú ár og því er nauðsynlegt að framkvæmdir hefjist í haust.
Fundargerðir
8. 2408002F - Skipulagsnefnd - 32
32. fundur haldinn 14. ágúst.
Fundargerðir til kynningar
9. 2402001 - Fundargerðir stjórnar Bergrisans bs 2024
75. fundur haldinn 12. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
Bergrisinn - 75. stjornarfundur.pdf
10. 2301137 - Fundargerðir stjórnar Arnardrangs hses 2022-2026
15. fundur haldinn 12. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
Arnardrangur - 15. stjornarfundur.pdf
11. 2310498 - Fundargerðir verkefnahóps um sameiginlega atvinnustefnu byggðarþróunarfulltrúa í Árnessýslu
3. fundur haldinn 15. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
3. fundur vinnuhóps - atvinnumálastefna nhl Árn.pdf
12. 2402218 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2024
237. fundur haldinn 20. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
237_fundur_fundargerd.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica