Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 171

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
22.04.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Jón Þór Jóhannsson f.h. slökkviliðsstjóra, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2604142 - Breiðamýri 2 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Indro Indriði Candi hönnuður fyrir hönd Vegagerðarinnar sækir um leyfi til að breyta innanhús skipulagi í mhl 02 ásamt því að bæta við auka gönguhurðum á austurhlið byggingar.
Helstu stærðir eru; 466,6m² & 2.641,8m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og Eldvarnareftirliti Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2603152 - Eyravegur 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Chamila Manel Salgado Meranjige sækir um leyfi til að breyta núverandi notkun mhl 03 0103 úr veitingahúsi yfir í gistiheimili.

Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr. 169 en var frestað vegna ófullnægjandi gagna.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
3. 2604078 - Eyravegur 25 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Yngvi Karl Sigurjónsson hönnuður fyrir hönd Áorka ehf. sækir um leyfi til að breyta innanhús skipulagi á jarðhæð í mhl 01.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Samþykkt
4. 2604141 - Goðavík 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson hönnuður fyrir hönd Stefán Sæmundssonar sækir um leyfi til að byggja sólskála við hús.
Helstu stærðir eru; 20,5m² & 50,5m³

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
5. 2604153 - Vatnsgeymir svæði 53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Anne Bruun Hansen hönnuður fyrir hönd Sveitarfélagsins Árborg sækir um leyfi til að byggja vatnstank.
Helstu stærðir eru; 561,2m² & 2.756,3m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagæfærður í samræmi við athugasemdir Eldvarnareftirlits Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
6. 2602221 - Víkurheiði 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson hönnuður fyrir hönd Fossbygg ehf. sækir um leyfi til að byggja iðnaðarhús.
Helstu stærðir eru; 2131,8m² og 8406,7m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
7. 2604183 - Móstekkur 24 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Baldur Rúnarsson eigandi af Móstekk 24 og Ingólfur Fannar Arnarsson eigandi af Móstekk 26 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar, lóðarhafi óskar einnig eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg vegna byggingaráforma.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
8. 2604182 - Móstekkur 26 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Ingólfur Fannar Arnarsson eigandi af Móstekk 26 og Baldur Rúnarsson eigandi af Móstekk 24 tilkynna samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar, lóðarhafi óskar einnig eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg vegna byggingaráforma.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
9. 2604166 - Móstekkur 46-48 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Ingi Björn Guðmundsson eigandi af Móstekk 48 óskar eftir samþykki frá Sveitarfélaginu Árborg vegna byggingaráforma á smáhýsi nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Erindinu er vísað til samráðsfundar Mannvirkja og Umhverfissviðs
Vísað í nefnd
10. 2604195 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Skyrland að Eyravegi 1
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Skyrheimar ehf. vegna endurnýjun á starfsleyfi vegna reksturs safns.
Starfstöð : Eyravegur 1 800 Selfoss F2520458

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
11. 2510192 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Drykkja ehf að Hrísmýri 5
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Drykkja ehf. vegna útgáfu á starfsleyfi vegna reksturs innflutnings og heildsölu með víni.
Starfstöð : Hrísmýri 5, 800 Selfoss F218463

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
12. 2604196 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Sveitarfélagið Árborg vegna skammtímadvöl fyrir fullorðna að Birkihólum 16
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborg vegna útgáfu starfsleyfis vegna skammtímavistun fyrir fullorðna.
Starfstöð : Birkihólar 16 800 Selfoss F2284566

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica