Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 182

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
04.11.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2608210 - Fossnes 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd GT ehf. sækir um leyfi til að setja upp hleðsluhús. Erindinu var vísað af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr 178 til skipulagsnefndar vegna misræmis við skilmála deiliskipulags.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Málið er afgreitt á grundvelli 3.mgr. 43. skipulagslaga nr.123/2010 þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp og innsýn. Er því ekki talin þörf á grenndarkynning. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
2. 2609095 - Hásteinsvegur 34 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ívar Hauksson hönnuður fyrir hönd Guðbjörgu Önnu Guðmundsdóttur sækir um leyfi til að breyta núverandi notkun mhl 02 0101 úr bílskúr yfir í gestahús. Erindið var áður á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa nr 179 og var vísað til skipulagsnefndar sem setti erindið í grenndarkynningu.
Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Erindið hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlit Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. -Skráningartöflu verði skilað inn á .xlsm - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2610218 - Móstekkur 155 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd HS. Hús ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 190,7m² og 793,2m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2610225 - Móstekkur 157 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd HS. Hús ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 190,7m² og 793,2m³.
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
5. 2511149 - Stóra-Hraun - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi (L10)
Björn Guðbrandsson hönnuður fyrir hönd Framkvæmdasýsluna - Ríkiseignir sækir um leyfi til að byggja fangelsi. Um er að ræða mhl 10 sem hýsir meðal annars inntaksrými.
Helstu stærðir eru; 33,1m² og 106,9m³.


Framkvæmdin er í umfangsflokki 3. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að ahugasemdir verði lagfærðar í samræmi við umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
5. 2610272 - Goðavík 9 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - smáhýsi
Hrund Baldursdóttir & Óskar Marelsson eigendur af Goðavík 9 & eigendur að Goðavík 7 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna smáhýsis nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar smáhýsi enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5 f. og leiðbeiningum HMS nr. 9.7.6 um smáhýsi.
Samþykkt
6. 2610271 - Goðavík 9 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Skjólgirðing
Hrund Baldursdóttir & Óskar Marelsson eigendur af Goðavík 9 & eigendur að Goðavík 7 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við áform er varðar skjólgirðingu enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingareglugerðar gr. 2.3.5.e, leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. um skjólveggi og girðingar.
Samþykkt
7. 2609055 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hrafnasel að Byggðarhorni 19
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Gesthús Selfossi ehf. um starfsleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - C minna Gistiheimili.
Heiti staðar: Hrafnasel, Byggðarhorn Búgarður 19, 801 Selfossi F2340842, matshlutanúmer 01, 02, 04 hámarksfjöldi gesta er 13.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
8. 2611013 - Rekstrarleyfisumsögn - gisting í flokki II - Austurvegur 2d Selfossi
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar umsagnar vegna umsóknar Elísabetar S. Jóhannsd. Sörensen vegna útgáfu rekstrarleyfis vegna reksturs Austurvegur 2d.
Heiti staðar: Austurvegur 2d, Austurvegur 2d 800 Selfoss F2514188 mhl 01 rýmisnúmer 0101.
Hámarksfjöldi gesta er 4.

Skipulags- og Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gefur hann jákvæða umsögn vegna útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
9. 2608187 - Rekstrarleyfisumsögn - Hrafnasel, Byggðarhorn Búgarður 19, 801 Selfoss
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Gesthús Selfossi ehf. um rekstrarleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - C minna Gistiheimili.

Heiti staðar: Hrafnasel, Byggðarhorn Búgarður 19, 801 Selfossi F2340842, matshlutanúmer 01, 02, 04 hámarksfjöldi gesta er 13.

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu rekstrarleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica