7. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2026 - 2030
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 18. nóvember 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2610229 - Gjaldskrár 2027
Gjaldskrár 2027 teknar til fyrri umræðu.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að gjaldskránum verði vísað til síðari
umræðu með breytingum á tillögum umhverfisnefndar, á gjaldskrá um
meðhöndlun úrgangs, og tillögu eigna- og veitunefndar, á gjaldskrá fráveitugjalda,
með það fyrir sjónum að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki að jafnaði ekki um
meira en 2,5%.
2. 2610228 - Fjárhagsáætlun 2027-2030
Fyrri umræða fjárhagsáætlunar 2027-2030.
3. 2611120 - Útsvarsprósenta 2027
Lögð fram tillaga að útsvarsprósentu fyrir árið 2027.
4. 2107030 - Samkomulag um Austurbyggð II
Tillaga frá 17. fundi bæjarráðs frá 5. nóvember 2026, liður 3. Samkomulag um
Austurbyggð II.
Á 52. fundi eigna- og veitunefndar sem haldinn var 24. febrúar 2026 var lagður
fram samningur vegna tengingar við hitaveitu í 2. áfanga Austurbyggðar II, ásamt
viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II. Nefndin samþykkti
samning um teningar við hitaveitu og vísaði viðauka II við samkomulag um
íbúabyggð í Austurbyggð II til bæjarstjórnar.
Á 167. fundi bæjarráðs sem haldinn var 16. apríl 2026 var afgreiðslu viðauka II
við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II frestað.
Bæjarstjóri leggur til að ný lokadrög að viðauka II við samkomulag um íbúabyggð
í Austurbyggð II verði samþykktur.
5. 2005200 - Samkomulag um íbúðabyggð í Laugardælalandi - Árbakkaland
Tillaga frá 18. fundi bæjarráðs 12. nóvember 2026, liður 5. Samkomulag um
íbúðabyggð í Laugardælalandi - Árbakkaland.
Lögð eru fram drög að viðauka við samkomulag, dags. 30. maí 2020, sem
upphaflega var milli Austurbæjar fasteignafélags ehf. og Auðhumlu svf. annars
vegar sem landeigenda og Sveitarfélagsins Árborgar hins vegar, vegna
uppbyggingar á landi landeiganda. Greint er frá aðilaskiptum í viðaukanum.
Bæjarráð vísar viðaukanum milli Landsbyggðar hf. og Ásavaðs ehf., sem
landeigenda annars vegar, og Sveitarfélagsins Árborgar hins vegar til samþykktar
í bæjarstjórn.
6. 2609030 - Símafrí í grunnskólum Árborgar
Tillaga frá 4. fundi fræðslu- og frístundanefndar frá 11. nóvember 2026 sl. liður 1.
Símafrí í grunnskólum Árborgar.
Reglur um símafrí í grunnskólum og frístundarheimilum lagðar fram til
staðfestingar.
Fræðslu- og frístundanefnd vísar beiðni um viðbótarfjármagn fyrir grunnskóla
Árborgar til að efla búnað til félagslegrar þátttöku að upphæð 500.000,- til
bæjarráðs.
Bæjarráð bókaði eftirfarandi á fundi sínum 12. nóvember sl. Bæjarráð tekur vel í
beiðni um viðbótarfjármagn til að efla búnað til félagslegrar þátttöku í tengslum
við símafrí í grunnskólum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirbúa viðauka og
vísa inn á dagskrá bæjarráðs, sé fjármagn ekki til staðar innan deilda.
Fræðslu- og frístundanefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leiti og vísar reglunum í
heild sinni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja reglurnar.
Fundargerðir
7. 2610007F - Eigna- og veitunefnd - 4
4. fundur haldinn 13. september 2026.
8. 2609037F - Skipulagsnefnd - 6
6. fundur haldinn 14. október 2026.
9. 2610010F - Fræðslu- og frístundanefnd - 3 - 2026
3. fundur haldinn 14. október 2026.
10. 2610016F - Bæjarráð - 15
15. fundur haldinn 22.október 2026.
11. 2610019F - Ungmennaráð - 9/2026
9. fundur haldinn 19. október 2026.
12. 2610026F - Bæjarráð - 16
16. fundur haldinn 28. október 2026.
13. 2610023F - Eigna- og veitunefnd - 5
5. fundur haldinn 27. október 2026.
14. 2610024F - Skipulagsnefnd - 7
7. fundur haldinn 28. október 2026.
15. 2610032F - Bæjarráð - 17
17. fundur haldinn 5. nóvember 2026.
16. 2611001F - Ungmennaráð - 10/2026
10. fundur haldinn 2. nóvember 2026.
17. 2611010F - Bæjarráð - 18
18. fundur haldinn 12. nóvember 2026.
Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

