Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 8

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
27.08.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaformaður, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
Formaður leitar afbrigða og óskar eftir því að mál nr. 2506051, Útboð - akstur fyrir Sveitarfélagið Árborg verði tekið á dagskrá. Samþykkt samhljóða og kemur málið inn á dagskrá sem liður fimm.


Dagskrá: 
Almenn erindi
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri kemur inn á fundinn kl.8:10
1. 2608147 - Málefni fjölskyldusviðs 2026-2030
Heiða Ösp Kristjánsdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn og fer yfir helstu áherslur og verkefnið sviðsins.
Bæjarráð þakkar Heiðu Ösp fyrir yfirferðina á verkefnum fjölskyldusviðs og helstu áherslum veturinn 2026-2027.
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fer af fundinum kl.8:55
2. 2606021 - Húsnæði undir frístundastarf - Eyravegur 42
Drög að leigusamningi við Eik fasteignafélag hf, vegna Eyravegar 42 og skilalýsing.
Á 4. fundi bæjarráðs , sem haldinn var 9. júlí s.l. var bæjarstjóra falið að gera drög að leigusamningi vegna Eyrarvegar 42, á Selfossi, sem lagður yrði fyrir bæjarráð. Bæjarráð fól bæjarstjóra einnig að gera viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna leigu húsnæðisins.

Bæjarráð fer yfir drög að leigusamningi og skilalýsingu og felur bæjarstjóra að klára samningagerð og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs ásamt viðauka. Ekki er þörf á auknu fjármagni í fjárhagsáætlun 2026 en gera þarf viðauka vegna tilfærslu fjármuna innan viðkomandi málaflokks.
Samþykkt
3. 2608141 - Rekstrarsamningur - Vallarsamningur Umf. Selfoss 2026-2030
Drög að rekstrarsamningi við Umf. Selfoss - vallarsamningur 2026 - 2030.
Bæjarráð samþykkir framlagðan rekstrarsamning við Umf. Selfoss fyrir árin 2026-2030. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins.

Í fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir fjármunum vegna samningsins og er ekki þörf á viðauka.
Samþykkt
4. 2606314 - Rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar
Kynnt verða tilboð í rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar.
Á 4. fundi bæjarráðs sem haldinn var 9. júlí sl. samþykkti bæjarráð að heimila bæjarstjóra að leita verðtilboða í rýni á stjórnsýslu Sveitarfélagsins Árborgar.

Verðkönnun var sett á vef sveitarfélagsins 11. ágúst og rann tilboðsfrestur út 21. ágúst sl. Tilboð bárust frá fjórum aðilum.

Í verðkönnun sveitarfélagsins vegna rýninnar kom fram að við mat á tilboðum yrði horft til þess hvaða tilboð teldist hagkvæmast fyrir sveitarfélagið að teknu tilliti til allra matsþátta. Hagstæðasta tilboðið yrði metið á grundvelli heildarmats á reynslu og hæfni ráðgjafa til að sinna verkefninu, fyrirhugaðri verkefnaáætlun, aðferðafræði, áætluðum tímafjölda og verði.

Bæjarráð hefur yfirfarið tilboðin og metið hagstæðasta tilboðið. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við eiganda hagstæðasta tilboðins. Bæjarstjóra er falið að undirrita samninginn f.h. sveitarfélagsins með fyrirvara um að viðauki verði samþykktur vegna verkefnisins. Bæjarráð felur bæjarstjóra að leggja fram drög að viðauka fyrir bæjarráð og kynna samning fyrir bæjarráði þegar hann liggur fyrir.
Samþykkt
5. 2506051 - Útboð - akstur fyrir Sveitarfélagið Árborg
Bæjarstjóri kynnir niðurstöðu samninga.
Á 140. fundi bæjarráðs 13. maí sl. kom fram að tvö tilboð hefðu borist í útboðinu og bæjarstjóra var falið að semja við lægstbjóðanda, að því gefnu að hann stæðist allar útboðskröfur.

Tilboði lægstbjóðanda, Icelandbus ehf. var tekið. GTS ehf. kærði þá niðurstöðu til kærunefndar útboðsmála. Við kæruna fór samningagerð í biðstöðu, beiðni sveitarfélagsins um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar var hafnað í ákvörðun kærunefndar, dags. 25. júní 2026. Í ákvörðuninni kom einnig fram að tilboð Icelandbus ehf. uppfyllti ekki allar kröfur útboðsins.

Sveitarfélagið afturkallaði töku tilboðs á grundvelli ákvörðunar kærunefndarinnar og tók tilboði GTS ehf., sú niðurstaða var kynnt á 3. fundi bæjarráðs 2. júlí sl. IcelandBus ehf. kærði töku tilboðs GTS ehf. til kærunefndar útboðsmála. Samningagerð fór þá aftur í biðstöðu og óskaði sveitarfélagið eftir því að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt. Með ákvörðun kærunefndar frá 29. júlí 2026, var stöðvun samningsgerðar aflétt, þar sem sveitarfélaginu hafi verið heimilt að afturkalla upphaflega ákvörðun sína um val á tilboði þar sem kærunefndin taldi tilboð Icelandbus ehf. ekki uppfylla skilyrði.

Sveitarfélagið Árborg og GTS ehf. undirrituðu í framhaldinu samning í kjölfar útboðs 31. júlí 2026.
Fundargerðir
6. 2608004F - Velferðarnefnd - 1
1. fundur haldinn 18. ágúst.
Fundargerðir til kynningar
7. 2608126 - Fundargerðir Byggðasafns Árnesinga bs 2026 - 2030
1. fundur haldinn 20. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
260820 stjórnarfundur hjá Byggðasafni Árnesinga nr 1.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:05 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica