3. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2026 - 2030
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 2. september 2026 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2501080 - Erindisbréf bæjarráðs Árborgar
Tillaga frá 2. fundi bæjarráðs frá 18. júní sl. liður 2. Erindisbréf bæjarráðs Árborgar. Tillaga að nýju erindisbréfi bæjarráðs lögð fram til umræðu. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindisbréf ráðsins og vísar því áfram til afgreiðslu bæjarstjórnar. - 2301178 - Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir
Tillaga frá 3. fundi skipulagsnefndar frá 26. ágúst sl. liður 1. Deiliskipulag hesthúsasvæðis - Hestamannafélagið Sleipnir. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi hesthúsasvæðis á Selfossi að lokinni auglýsingu. Tillagan var auglýst frá 13. maí 2026, með athugasemdafresti til 26. júní 2026. Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni, Landsneti, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Minjastofnun. Þá barst nokkur fjöldi athugasemda og ábendinga frá einstaklingum, auk forsvarsmanna Fagralands ehf, sem er landeigandi í nálægri, verðandi íbúðarbyggð. "Fyrri tillaga deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði ÍÞ2 á Selfossi var felld úr gildi með úrskurði ÚUA þess efnis þann 21. apríl 2026. Að mati Úrskurðarnefndar var ekki fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti. Meginmarkmið deiliskipulagsins er að setja fram heildstæða stefnu fyrir allt hesthúsahverfið, bæði núverandi svæði og stækkun þess til suðurs. Deiliskipulagið byggir í megindráttum á núverandi fyrirkomulagi með áherslu á bættar reiðleiðir og þjálfunarsvæði. Á svæði til suðurs verður gert ráð fyrir nýjum lóðum og þannig fjölgar notendum innan hesthúsasvæðisins. Kröfur um bættan aðbúnað hesta og manna hafa aukist á undanförnum árum og munu skilmálar um byggingu nýrra húsa og breytingar á eldri húsum taka mið af því. Deiliskipulagið nær til alls hesthúsahverfisins, sem er núverandi keppnis- og, hesthúsasvæði og stækkaðs hesthúsasvæðis, samtals um 27 ha. Deiliskipulagsmörkin ná einnig yfir hluta af opnu svæði milli Langholts og hesthúsahverfis vegna fyrirhugaðs reiðstígs þar. Stækkun núverandi svæðis er um 7 ha að stærð. Á nýja svæðinu næst Dísastaðarlandi er gert ráð fyrir 19 nýjum hesthúsum meðfram Bæjartröð. Lóðir eru af þremur stærðum, og er gert ráð fyrir að innan þeirra verði heimilt að byggja stakstæð hús eða parhús. Hestagerði eru staðsett sunnan við hús beggja megin götu til að tryggja sól og skjól frá ríkjandi vindáttum. Auk 19 hefðbundinna hesthúsa er gert ráð fyrir tveimur stærri lóðum fyrir hesthús með litlum reiðskemmum. Skilmálar eru settir fyrir byggingu nýrra hesthúsa og eins eru settir fram skilmálar um mögulega endurbyggingu eldri húsa. Byggingarmagn á keppnissvæði er aukið umtalsvert, bæði fyrir fipokeppnishöll en einnig fyrir minni hús til þjálfunar og fyrir áhorfendastúkur. Deiliskipulagið er í samræmi við Aðalskipulag Árborgar 2020-2036, þar sem svæðið er skilgreint með landnotkunina ÍÞ2 hesthúsasvæði." Að mati skipulagsnefndar hefur verið brugðist við þeim annmörkun sem Úrskurðarnefnd Umhverfis- og auðlindamála var með til umfjöllunar í úrskurði sínum sem felldi fyrri gildistöku skipulagsins úr gildi. Bætt hefur verið við kafla innan greinargerðar skipulagsáætlunar sem tekur til mats á umhverfisáhrifum tillögunnar er varðar lyktarmengun, rykmyndun, hljóðvist, umferðarálag og sjónræn áhrif auk þess sem lögð er fram valkostagreining. Innan valkostagreiningar er tekið til valkostar A sem er núllkostur eða óbreytt ástand. Valkostur B tekur til uppbyggingar samkvæmt deiliskipulagi. Við samanburð valkosta liggur fyrir að áhrif hesthúsastarfsemi á svæðinu eru þegar til staðar í núverandi ástandi. Valkostur B felur í sér aukna nýtingu svæðisins, en breytir ekki grundvallareðli starfseminnar né landnotkun svæðisins. Með tilkomu deiliskipulagsins eru hins vegar settir skýrari og strangari skilmálar en áður um frágang, umgengni og umhverfisþætti, sem stuðla að því að draga úr grenndaráhrifum og gera þau fyrirsjáanlegri og viðráðanlegri. Að mati nefndarinnar hefur því verið brugðist við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust við tillöguna með fullnægjandi hætti innan hennar. Skipulagsnefnd Árborgar mælist því til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í Bdeild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati skipulagsnefndar þarf að horfa til lengri framtíðar með áframhaldandi uppbyggingu hesthúsasvæðis sveitarfélagsins og telur ástæðu til að meta innan aðalskipulags möguleika á nýrri staðsetningu svæðisins til framtíðar til að tryggja hestamönnum framtíðar svæði með bættum reiðleiðum um sveitarfélagið. - 2604235 - Víkurheiði - AT5; Endurskoðun deiliskipulags
Tillaga frá 3. fundi skipulagsnefndar frá 26. ágúst, liður 2. Víkurheiði - AT5; Endurskoðun deiliskipulags.
Lögð er fram tillaga að nýju og endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir athafnasvæði AT5, í Víkurheiði. Endurskoðaðir verða núverandi skilmálar á núgildandi deiliskipulagi sem tekur til tæplega 46ha svæðis, sem liggur að svæðum ÍB 23 og ÍB 27 auk flugvallarsvæðis. Þá verður bætt við núverandi deiliskipulagssvæði nýju svæði, tæplega 24 ha að stærð, þar sem bætt verður við blönduðum stærðum af athafnalóðum. Við gerð nýs endurskoðaðs skipulags verður sérstaklega horft til að uppfæra skilmála er varða t.d. lausamuni á lóðum, frágang lóða, girðingar, afskermingar, og frágangs gróðurs. Við gildistöku nýs deiliskipulags sem mun taka til allt að tæplega 70 ha svæðis, mun eldra deiliskipulag með síðari breytingum, falla úr gildi. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. - 2608064 - Opið svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi; Skátasvæði aukið b.magn 2026
Tillaga frá 3. fundi skipulagsnefndar frá 26. ágúst, liður 5. Opið svæði OP1; Óveruleg breyting á aðalskipulagi; Skátasvæði aukið byggingarmagn 2026. Lögð er fram breyting á Aðalskipulagi Sveitarfélagsins Árborgar 2020 2036 er varðar skilmála fyrir opin svæði OP1. Í breytingunni felst að skilgreint er aukið byggingarmagn á svæði sem ætlað er sem aðstaða fyrir skátafélagið Fossbúa. Samhliða er unnið að gerð deiliskipulags sem tekur til viðkomandi svæðis. Gerð var breyting 2025 sem tók einnig til aukins byggingarmagns innan svæðisins. Viðnánari hönnun aðstöðunnar kom í ljóst að þörf var á enn auknu byggingarmagni til að tryggja aðstöðu skátafélagsins til framtíðar. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu muni aukast í allt að 280 m2. Samhliða breytingu á aðalskipulagi mun verða gerð samsvarandi breyting á gildandi deiliskipulagi. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi veitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. - 2608051 - Efnistökusvæði E2; Óverulega breyting á aðalskipulagi
Tillaga frá 3. fundi skipulagsnefndar frá 26. ágúst sl. liður 9. Efnistökusvæði E2; Óverulega breyting á aðalskipulagi. Lögð er fram tillaga óverulegrar breytingar á aðalskipulagi Árborgar er varðar skilgreiningu efnistökusvæði E2. Í breytingunni felst að bætt er við punkti sem tekur til efnistöku úr Eyrarbakkafjöru. Engin breyting er gerð á skilgreindri heimild til efnistöku. Samhliða er unnið að tilkynningarskýrslu vegna hugsanlegs mats á umhverfisáhrifum í samræmi við 1.viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent Skipulagsstofnun til samþykktar. - 2606112 - Endurskoðun Aðalskipulags Árborgar - (2026-2038) 2028-2040
Tillaga frá 3. fundi skipulagsnefndar frá 26. ágúst sl. liður 10. Endurskoðun Aðalskipulags Árborgar - (2026-2038) 2028-2040. Samkvæmt skipulagslögum nr. 123/2010, gr.35(endurskoðun aðalskipulags), skal sveitarstjórn/bæjarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum meta hvort ástæða sé til að endurskoða gildandi aðalskipulag.
Lagt er fram minnisblað/samantekt skipulagssviðs með helstu áherslum er varða hugsanlega heildarendurskoðun á gildandi Aðalskipulagi Árborgar 2020-2036. Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkt verði að hefja vinnu við endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins. Ein forsenda endurskoðunar aðalskipulags er m.a. sú mikla uppbygging sem átt hefur sér stað í sveitarfélaginu undanfarin ár og hvert skuli stefna í áframhaldandi uppbyggingu sveitarfélagsins. Tilgangur endurskoðunar aðalskipulags er að gefa sem gleggsta mynd af stöðu sveitarfélagsins og stefnu bæjarstjórnar í skipulagsmálum með víðtæku samráði við íbúa um skipulag sveitarfélagsins til næstu ára. Jafnframt telur nefndin mikilvægt að við endurskoðun aðalskipulags verði horft til lengri framtíðar en gildistíma aðalskipulagsins er viðkemur áætlana- og forsendurgerð m.t.t. uppbyggingar á íbúðarsvæðum og þjónustu auk skilgreiningar á helstu umferðarleiðum innan sveitarfélagsins í heild.
Fundargerðir
7. 2606025F - Bæjarráð - 33. fundur haldinn 2. júlí.
8. 2607002F - Bæjarráð - 4
4. fundur haldinn 9. júlí.
9. 2607008F - Bæjarráð - 5
5. fundur haldinn 16. júlí.
10. 2608006F - Bæjarráð - 6
6. fundur haldinn 13. ágúst.
11. 2608010F - Bæjarráð - 7
7. fundur haldinn 20. ágúst.
12. 2608013F - Bæjarráð - 8
8. fundur haldinn 27. ágúst.
Bragi Bjarnason
bæjarstjóri

