1. 2107118 - Björkurstekkur 29-31 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Grjótlist ehf. skilar inn uppfærðum aðaluppdrætti vegna breytinga á innra skipulagi.
Byggingarfulltrúi samþykkir framlagðan uppdrátt vegna breytinga á innra skipulagi.
Samþykkt
2. 2608210 - Fossnes 7 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Halldórsson hönnunarstjóri hönnuður fyrir hönd GT ehf. sækir um leyfi til að setja upp hleðsluhús.
Erindinu er vísað til skipulagsnefndar
Vísað í nefnd
3. 2406292 - Miðstræti 7-9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Hákon Ingi Sveinbjörnsson hönnuður fyrir hönd Sigtún þróunarfélags ehf. skilar inn uppfærðum aðaluppdrætti sem sýnir minnkun á fyrr samþykktum bílakjallara meðal annars.
Erindinu er frestað þar sem að Skipulags- og Byggingarfulltrúi óska eftir staðsetningu á áætluðum bílastæðakjöllurum á Miðstræti 1-25 sem sýnir heildar bílastæðafjölda í samræmi við kröfur deiliskipulags.
Frestað
4. 2410202 - Norðurbraut 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Haralds Ólasonar skilar inn uppfærðum aðaluppdrætti sem sýnir breytingar á innra skipulagi.
Byggingarfulltrúi samþykkir framlagðan uppdrátt vegna breytinga á innra skipulagi með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa.
Samþykkt
5. 2609033 - Lyngmói 8 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, skjólveggur
Sóley Jónsdóttir & Ólafur Jóhannsson eigendur af Lyngmóa 8 & eigendur að Tjarnarmóa 7 og Lyngmóa 6 tilkynna um samþykki á byggingaráformum vegna skjólgirðingar nær lóðarmörkum en 3 metrar.
Erindinu er frestað þar sem að það vantar samþykki frá lóðarhöfum Tjarnarmóa 5
Frestað
6. 2609054 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Byggðasafn Árnesinga
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Byggðasafn Árnesinga vegna útgáfu á starfsleyfi fyrir safn og útleigu á sal að Búðarstíg 22. Starfstöðvar : Búðarstígur 22 Eyrarbakka F2200019, Eyrargata 50 Eyrarbakka F2200119 & F2200120, Kirkjubær Eyrarbakka F2200389 & F2200390 og Túngötu 59 F 2200330.
Skipulags- og Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttekt þar með gefur hann jákvæða umsögn vegna útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
7. 2609055 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Hrafnasel að Byggðarhorni 19
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Gesthús Selfossi ehf. um starfsleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - C minna Gistiheimili. Heiti staðar: Hrafnasel, Byggðarhorn Búgarður 19, 801 Selfossi F2340842, matshlutanúmer 01, 02, 04 hámarksfjöldi gesta er 13.
Skipulags- og byggingarfulltrúi leggjast gegn útgáfu starfsleyfis þar sem að það samræmist ekki skipulagi.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Gesthús Selfossi ehf. um rekstrarleyfi vegna reksturs gistingar í flokki II - C minna Gistiheimili. Heiti staðar: Hrafnasel, Byggðarhorn Búgarður 19, 801 Selfossi F2340842, matshlutanúmer 01, 02, 04 hámarksfjöldi gesta er 13.
Skipulags- og byggingarfulltrúi leggjast gegn útgáfu rekstrarleyfis þar sem að það samræmist ekki skipulagi.