Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 168

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
04.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2512182 - Eyrargata 16F - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eggert Guðmundsson hönnuður fyrir hönd Gísla Ragnars Kristjánssonar sækir um leyfi til að endurbyggja hús og breyta núverandi notkun þess í einbýli.
Helstu stærðir eru; 48,8m² og 197,8m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2 og hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
2. 2602322 - Eyrargata 51-53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Eyrar ehf. skilar inn uppfærðum teikningum af innanhús og utanhús breytingum á áður samþykktu byggingarleyfi 1602143
Byggingarfulltrúi samþykkir framlagðan aðaluppdrátt með fyrirvara á að hann verði lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnaeftirlits brunavarna Árnessýslu.
Samþykkt
3. 2602321 - Háeyrarvegur DRE - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Jón Grétar Magnússon aðalhönnurður fyrir hönd Mílu hf. sækir um leyfi til að setja upp spennistöð á lóðinni ásamt fjarskiptamastri.
Helstu stærðir eru 9 m2 og 26,3 m3

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
4. 2601251 - Strandgata 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Paola Ýr Daziani sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi vinnustofu.
Helstu stærðir eru; 13,8m².

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Erindið hefur verið grenndarkynnt án athugasemda. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Skráningartafla - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
5. 2602212 - Suðurleið 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnuður fyrir hönd Byggingafélag Suðurlands ehf. sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 403,5m² & 1.725,7m³
Staðfesting á að lífsferilsgreiningu hafi verið skilað inn til HMS liggur fyrir.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: -Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2602320 - Víkurheiði 6 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Eiríkur Vignir Pálsson hönnuður fyrir hönd Ræktunarsamband Flóa/Skeið ehf. sækir um leyfi til að setja niður starfsmannagáma.
Helstu stærðir eru; 28,8² & 84,7m³

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa fyrir byggingaráformum og er það mat skipulags- og byggingarfulltrúa að málið fái afgreiðslu á grundvelli 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga er varðar að heimilt sé að falla frá kröfum um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
7. 2602319 - Víðivellir 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Anne Bruun Hansen hönnuður fyrir hönd Helga Axel Davíðssonar sækir um leyfi til að byggja viðbygigngu.
Helstu stærðir eru; 39m²

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar og er það mat skipulags- og byggingarfulltrúa að málið fái afgreiðslu á grundvelli 3.mgr. 43.gr. skipulagslaga er varðar að heimilt sé að falla frá kröfum um grenndarkynningu þegar um svo óverulegt frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að skráningartafla á excel formatti og aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnaeftirliti brunavarna Árnessýslu. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
8. 2602226 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Bergrisans bs. vegna starfstöðvar Birkihólar 18
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Bergrisans bs. um ummönnunar heimili vegna sólarhringsþjónustu.
Starfstöð : Birkihólar 18, 800 Selfoss F2284565

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Samþykkt
9. 2603010 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Lyfju að Austurveg 44
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Lyfju hf. vegna endurnýjunar á stafsleyfi fyrir reksturs Lyfja Selfoss.
Starfstöð : Austurvegur 44, 800 Selfoss F2185459

Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
10. 2602225 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Viddavélar ehf vegna mengandi starfsemi að Víkurheiði 11a
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar umsagnar vegna umsóknar Viddavéla ehf. vegna starfsleyfis reksturs fyrir mengandi starfsemi/gámastöðvar.
Starfstöð : Víkurheiði 11a, 800 Selfoss F2507110

Vegna eðli starfsemi Viddavéla ehf, gerir embætti skipulags- og byggingarfulltúa kröfu um að lóðin verði afgirt, með minnst 2,4 m hárri stálklæðningu/ógegnsærri.
Embættið mun gefa jákvæða umsögn, þegar lóð hefur verið afgirt.
Frestað

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica