| Bæjarstjórn - 71 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 25.03.2026 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar, Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Ari B. Thorarensen varamaður, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir varaforseti bæjarstjórnar, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir varamaður, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista, Rósa Sif Jónsdóttir ritari. |
|
Fundargerð ritaði: Rósa Sif Jónsdóttir, ritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2503078 - Erindisbréf samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Sveitarfélaginu Árborg |
Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Ellý Tómasdóttir, B-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðu að Árborg segi sig frá þátttöku í starfandi notendaráði á vegum Bergrisans bs.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum erindisbréf hópsins og að Helga Lind Pálsdóttir verði formaður. |
| Lokaeintak erindisbréf fyrir samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks í Árborg.pdf |
|
|
|
| 2. 2507008 - Aðalskipulag Árborgar 2020-2036 - Breyting svæði M10 (Tryggvagata) |
Ari Björn Thorarensen, D-lista og Bragi Bjarnason, D-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingu á svæði M10 (Tryggvagata) í aðalskipulagi Árborgar 2020-2036, með vísan til 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, í samræmi við tillögu skipulagsnefndar Árborgar, en um óverulega breytingu er að ræða. Breytingarnar fela í sér að fallið verði frá því að kröfur séu settar um stúdentaíbúðir og verslanir á jarðhæð bygginganna auk þess sem fjöldi íbúða er aukinn um 5 íbúðir, úr 40 í 45. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna og senda að nýju til samþykktar hjá Skipulagsstofnun. |
| 112930 Gátlisti Tryggvagata M10.pdf |
| 112930-01-GRG-V01-Tryggvagata M10.pdf |
|
|
|
| 3. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting |
Ari Björn Thorarensen, D-lista, Arnar Freys Ólafsson, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum breytingar á deiliskipulagi svæðisins, í samræmi við bókun frá 58. fundi skipulagsnefndar frá 11. mars sl. Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að fara með málið í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og kynna það sérstaklega aðliggjandi lóðarhöfum innan hverfisins. |
| Fossvík 1 - 2. hæð.pdf |
| Fossvík 1 - 1. hæð.pdf |
| Jórvík1 - breyting á deiliskipulagi 1 áfangi_2.pdf |
|
|
|
| 4. 2603071 - Reglur um heimgreiðslur |
Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista, Ellý Tómasdóttir, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, Ari Björn Thorarensen, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, taka til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum reglurnar og gjaldskrá fyrir heimgreiðslur.
Fjármagn er til staðar í verkefnið fyrstu mánuði heimgreiðslna, viðauki verður lagður fram vegna verkefnisins á fundi bæjarstjórnar.
Ellý Tómasdóttir, B-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa B-lista: Framsókn í Árborg lagði ríka áherslu á heimgreiðslur í aðdraganda síðustu kosninga undir yfirskriftinni „Mætum fjölskyldunni“, með það að markmiði að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Við fögnum því að heimgreiðslur til foreldra ungra barna séu að verða að veruleika í sveitarfélaginu þó að það hefði mátt koma fyrr. Um er að ræða nauðsynlegt fyrsta skref í ljósi þess að ekki fækkar á biðlista eftir leikskólaplássi með fjölgun íbúa í sveitarfélaginu. Þetta er góð byrjun en það er enn langt í land.
Mikilvægt er að tryggja að úrræðið sé fjármagnað frá upphafi svo það veiti þann stuðning við barnafjölskyldur sem að er stefnt.
Framsókn leggur jafnframt áherslu á fjölgun leikskólaplássa í sveitarfélaginu. Sér í lagi í ljósi þess að plássum hjá dagforeldrum hefur fækkað á kjörtímabilinu. Að lokum leggjum við til að áfram verði unnið markvisst að eflingu leikskólastigsins þannig að börn komist fyrr inn í leikskóla.
Undir þetta rita Ellý Tómasdóttir og Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúar B lista
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa S-lista: Þessi tillaga frá meirihluta D- og Á-lista sýnir svo ekki verður um villst að það styttist í kosningar. Það er einkennilegt að tillaga um heimgreiðslur skyldi ekki koma fram í fjárhagsáætlunarvinnunni sl. haust og sett inn í fjárhagsáætlun ársins 2026 sem samþykkt var í desember sl. Það þykja ekki góðir stjórnsýsluhættir að þurfa að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun svo skömmu eftir að hún er samþykkt. Undirrituð hafa auk þess áhyggjur af því að áætlun um kostnað vegna heimgreiðslna sé allt of lág þar sem að það muni fleiri sækja um greiðslur heldur en gert er ráð fyrir í áætlun.
Svf. Árborg hefur því miður dregist verulega aftur úr nágrannasveitarfélögunum þar sem ekki er þörf á að bjóða upp á heimgreiðslur í dag því, þar eru í boði næg leikskólapláss og enginn biðlisti. Auk þess er farið að bjóða upp á gjaldfrjálsa leikskóla, ungu fólki munar aldeilis um minna.
Ungir foreldrar sem hafa lokið fæðingarorlofi sínu eru fæstir að biðja um heimgreiðslur, þeir þurfa að komast aftur til vinnu sinnar til þess að ná endum saman og geta staðið við skuldbindingar sínar. Heimgreiðslur eru ákveðin uppgjöf, plástur á sár en engin raunveruleg lausn á skorti á þjónustu við ungar barnafjölskyldur. Það er þó vissulega eilítil sárabót að þær fjölskyldur sem búa við mikla tekjuskerðingu vegna skorts á þjónustu, skuli fá smáræðis stuðning frá sveitarfélaginu.
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi S-lista Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista
Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls og leggur fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa D- og Á-lista:
Bæjarfulltrúar D- og Á-lista lýsa yfir ánægju með nýsamþykktar reglur um heimgreiðslur í Sveitarfélaginu Árborg. Heimgreiðslurnar auka valmöguleika foreldra ungra barna í samfélaginu sem kjósa að vera lengur heima með barni eða hafa ekki önnur dagvistunarúrræði áður en það fær leikskólapláss. Markmiðið er að áfram verði í boði dagvistunarúrræði hjá dagforeldrum en einnig að halda áfram fjölgun leikskólaplássa í Árborg.
Sveitarfélagið Árborg er með þessari ákvörðun að fylgja fordæmi fjölda sveitarfélaga sem bjóða upp á heimgreiðslur sem valmöguleika fyrir foreldra ungra barna, sem er jákvætt.
Til næstu ára er það síðan sameiginlegt verkefni ríkis og sveitarfélaga að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. Bragi Bjarnason, D-lista Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista Kjartan Björnsson, D-lista Sveinn Ægir Birgisson, D-lista Brynhildur Jónsdóttir, D-lista Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista Ari Björn Thorarensen, D-lista
|
| Reglur um heimgreiðslur 9.pdf |
| Gjaldskrá heimgreiðslna.pdf |
| Bókun frá Velferðarnefndarfundi 17. mars..pdf |
| Bókun frá fræðslu- og frístundanefndarfundi 24. mars..pdf |
|
|
|
| 5. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026 |
Lagt er til að fulltrúar Sveitarfélagsins Árborga á aðalfundum Byggðasafns Árnesinga, Héraðsskjalasafns Árnesinga og Listansafns Árnesinga verði:
Aðalmenn: 1 Bragi Bjarnason D-lista 2 Kjartan Björnsson D-lista 3 Sveinn Ægir Birgisson D-lista 4 Brynhildur Jónsdóttir D-lista 5 Þórhildur D. Ingvadóttir D-lista 6 Álfheiður Eymarsdóttir Á-lista 7 Helga Lind Pálsdóttir D-lista 8 Fjóla St. Kristinsdóttir D-lista 9 Arnar Freyr Ólafsson B-lista 10 Ellý Tómasdóttir B-lista 11 Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista 12 Sigurjón Vídalín Guðmundsson S-lista
Varamenn: 1 Ari Thorarensen D-lista 2 Guðmundur Ármann Pétursson D-lista 3 Jóhann Jónsson D-lista 4 Björg Agnarsdóttir D-lista 5 Gísli Rúnar Gíslason D-lista 6 Axel Sigurðsson Á-lista 7 Ólafur Ibsen Tómasson D-lista 8 Viðar Arason D-lista 9 Guðrún Rakel Svandísardóttir B-lista 10 Matthías Bjarnason B-lista 11 Björgvin G. Sigurðsson S-lista 12 Ástfríður M. Sigurðardóttir S-lista
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
| Tillaga að fulltrúum á aðalfund Lista-, Byggða- og Héraðsskjalasafns..pdf |
|
|
|
| 6. 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026 |
| Tillagan er borin undur atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 7. 2602021F - Eigna- og veitunefnd - 52 |
|
|
|
| 8. 2602007F - Skipulagsnefnd - 57 |
|
|
|
| 9. 2602026F - Fræðslu- og frístundanefnd - 26 |
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls undir lið 3. - Matsferil - upplýsingar um innleiðingu. Brynhildur Jónsdóttir,-lista, tekur til máls undir lið 4. - Biðlistar í leikskólum 2026. |
|
|
|
| 10. 2602034F - Bæjarráð - 162 |
|
|
|
| 11. 2603008F - Bæjarráð - 163 |
|
|
|
| 12. 2603006F - Skipulagsnefnd - 58 |
|
|
|
| 13. 2603015F - Bæjarráð - 164 |
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista tekur til máls undir lið 1 - Vor í Árborg.
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 |
|