Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Velferðarnefnd - 24

Haldinn á 3. hæð Ráðhúss,
17.03.2026 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Helga Lind Pálsdóttir formaður, D-lista,
Margrét Anna Guðmundsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Lieselot Michele Maria Simoen nefndarmaður, Á-lista,
Ellý Tómasdóttir nefndarmaður, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir nefndarmaður, S-lista,
Sigþrúður Birta Jónsdóttir deildarstjóri, Heiða Ösp Kristjánsdóttir Gestur.
Fundargerð ritaði: Sigþrúður Birta Jónsdóttir, deildarstjóri velferðarþjónustu


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
Samþykkt að taka mál á afbrigðum
1. 2511417 - Heildarendurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð
Lagt er til smávægilegar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á reglurm um fjárhagsaðstoð.
Samþykkt
2. 2603008 - Félagsleg ráðgjöf - barnateymi
Trúnaðarmál.
Skráð í trúnaðarbók.
3. 2603182 - Áfrýjun til velferðarnefndar
Trúnaðarmál.
Erindi til kynningar
Gunnar Eysteinn kemur inn á fundinn klukkan 16.15.
4. 2603029 - Fyrirspurn Velferðarnefndar Árborgar um frístundaaksturs í Árborg
Að beiðni nefndarinnar var óskað eftir kynningu frá deildarstjóra frístundaþjónustu um frístundakstur hjá sveitarfélaginu Árborg með meðfylgjandi spurningar að leiðarljósi.
Velferðarnefnd þakkar deildarstjóra frístundarþjónustu kynningu á frístundarakstri hjá Svf. Árborg og óskar eftir því að fá til kynningar niðurstöður spretthóps og foreldrakönnunar sem er í vinnslu.
Gunnar Eysteinn víkur af fundi 16.53.
4. 2603071 - Reglur um heimgreiðslur
Sviðsstjóri fylgir eftir minnisblaði og reglum er varðar heimgreiðslur fyrir börn 12-30 mánaða í sveitarfélaginu Árborg. Óskað er eftir umsögn velferðarnefndar.
Velferðarnefnd tekur jákvætt í tillögur um reglur um heimgreiðslur í Svf. Árborg. Heimgreiðslur geta komið til móts við þá foreldra sem bíða þess að barn fái úthlutað leikskólaplássi í Svf. Árborg.

Nefndarfulltrúi S-lista leggur fram eftirfarandi bókun:

Þessi tillaga frá meirihluta D- og Á-lista sýnir svo ekki verður um villst að það styttist í kosningar. Það er einkennilegt að tillaga um heimgreiðslur skyldi ekki koma fram í fjárhagsáætlunarvinnunni sl. haust og sett inn í fjárhagsáætlun ársins 2026 sem samþykkt var í desember sl. Það þykja ekki góðir stjórnsýsluhættir að þurfa að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun svo skömmu eftir að hún er samþykkt. Undirrituð hefur áhyggjur af því að áætlun um kostnað vegna heimgreiðslna sé allt of lág þar sem að það muni fleiri sækja um greiðslur heldur en gert er ráð fyrir í áætlun.

Þrátt fyrir að seint sé í rassinn gripið þá er það þó jákvætt að tveimur mánuðum fyrir kosningar skuli meirihlutanum skyndilega verða umhugað um fjölskyldur sem bíða eftir þjónustu fyrir ung börn sín.

Svf. Árborg hefur því miður dregist verulega aftur úr nágrannasveitarfélögunum þar sem ekki er þörf á að bjóða upp á heimgreiðslur í dag því þar eru í boði næg leikskólapláss og enginn biðlisti. Auk þess er farið að bjóða upp á gjaldfrjálsa leikskóla, ungu fólki munar aldeilis um minna.

Ungir foreldrar sem hafa lokið fæðingarorlofi sínu eru ekki að biðja um heimgreiðslur, þeir þurfa að komast aftur til vinnu sinnar til þess að ná endum saman. Heimgreiðslur eru ákveðin uppgjöf, plástur á sár en engin raunveruleg lausn á skorti á þjónustu við ungar barnafjölskyldur. Það er þó vissulega eilítil sárabót að þær fjölskyldur sem búa við tekjuskerðingu vegna skorts á þjónustu, skuli fá smáræðis stuðning frá sveitarfélaginu.

Arna Ír Gunnarsdóttir nefndarfulltrúi S-lista
6. 2603144 - Beiðni um fleiri leyfi í dagdvöl og dagþjálfun mars 2026
Lagt er fyrir beiðni Velferðarþjónustu til félags- og húsnæðismálaráðuneytis um fjölgun leyfa í dagdvöl og dagþjálfun í sveitarfélaginu.
Velferðarnefnd þakkar fyrir kynningu á stöðu dagdvalar og dagþjálfunar aldraðra í Sveitarfélaginu Árborg.

Í minnisblaði velferðarþjónustu kemur fram að aðstaða dagdvala í Árborg rúmar fleiri einstaklinga í þjónustu en núverandi samningar við Sjúkratryggingar Íslands gera ráð fyrir.

Með það að markmiði að tryggja samfellu í þjónustu, draga úr biðlistum, mæta vaxandi þörf í málaflokki aldraðra og stuðla að því að aldraðir geti búið á eigin heimili eins lengi og unnt er leggur Velferðarnefnd áherslu á mikilvægi þess að Sjúkratryggingar Íslands taki til endurskoðunar beiðni um fjölgun leyfa með hliðsjón af vaxandi þjónustuþörf, íbúafjölgun í sveitarfélaginu og eftirspurn um þjónustu frá nágrannasveitarfélögum.

Þá bendir Velferðarnefnd á að sú þjónustan sem veitt er í dagdvölum Árborgar styður við markmið stjórnvalda sem sett er fram í stefnunni Gott að eldast.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica