70. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 4. mars 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2211216 - Yfirdráttarheimild fyrir Sveitarfélagið Árborg
Lagt er til að heimila framlengingu á óbreyttri yfirdráttarheimild hjá LandsbankaÍslands á reikningum Sveitarfélagsins Árborgar að upphæð allt að kr.
400.000.000 til sveiflujöfnunar í rekstri. Heimildin gildir til 12 mánaða, frá 5. mars
2026.
2. 2602018 - Lántökur 2026 - Sveitarfélagið Árborg
Eftirfarandi er lagt til:Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar
að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 745.000.000,- á
árinu 2026 með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram.
Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem
langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni.
Bæjarstjórn Árborgar hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins
og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk
vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2.
mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum
og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana eldri lána sveitarfélagsins hjá
Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega
þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð
sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359 veitt fullt og
ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita
lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að
móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og
tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir
þörfum hverju sinni.
3. 2602037 - Yfirdráttarheimild fyrir Selfossveitur
Lagt er til við bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar að heimila yfirdráttarheimildhjá Landsbankanum á reikningi Selfossveita að upphæð allt að 50.000.000,- til
sveiflujöfnunar í rekstri.
Eigna- og veitunefnd samþykkti yfirdráttarheimild fyrir Selfossveitur á fundi sínum
24. febrúar sl.
4. 2602019 - Lántökur 2026 - Selfossveitur
Eftirfarandi er lagt til:Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi sínum að veita
einfalda ábyrgð á láni Selfossveitna hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja til
tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í
2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til
láns að höfuðstól allt að kr. 905.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum,
dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim
lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi
skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim
skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni.
Bæjarstjórnin Árborgar hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka
eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að
sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.
Er lánið tekið til endurfjármögnun á afborgunum eldri lána félagsins hjá
Lánasjóðnum og framkvæmda sem fela í sér að vera verkefni sem hefur almenna
efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um
Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til
að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að
félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra
aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr
eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359, veitt fullt og
ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita
lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að
móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og
tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir
þörfum hverju sinni.
Eigna- og veitunefnd samþykkti lántöku fyrir Selfossveitur á fundi sínum 24.
febrúar sl.
5. 2602313 - Lántaka - framkvæmdir við golfvöll Selfoss
Lánaskjal Landsbankans til að ljúka fjármögnun framkvæmda við stækkunSvarfhólsvallar í 18 holur.
Í framhaldi af samþykki bæjarráðs leggur bæjarstjóri til við bæjarstjórn að
samþykkja lánið.
6. 2602013 - Stefna Sveitarfélagsins Árborgar vegna samfélagsröskunar 2026 -2029
Tillaga frá 15. fundi Almannavarnarráðs Árborgar, frá 4. febrúar liður 1. StefnaSveitarfélagsins Árborgar vegna
samfélagsröskunar 2026 - 2029.
Lögð fram drög að uppfærðri stefnu Sveitarfélagsins Árborgar vegna
samfélagsröskunar.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða stefnu Sveitarfélagsins
Árborgar vegna samfélagsröskunar fyrir árin 2026-2029.
7. 2403338 - Ungmennaráð 2024 -2026
Kosning fulltrúa í ungmennaráð Árborgar.8. 2601230 - Breyting á samþykktum fyrir Sorpstöð Suðurlands bs
Síðari umræða.Bæjarstjórn samþykkti að vísa breytingum á samþykktum fyrir SOS til síðari
umræðu á 69. fundi.
9. 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 25. mars nk.Fundargerðir
10. 2601025F - Eigna- og veitunefnd - 51
51. fundur haldinn 27. janúar.11. 2601022F - Velferðarnefnd - 23
23. fundur haldinn 27. janúar.12. 2601018F - Skipulagsnefnd - 56
56. fundur haldinn 28. janúar.13. 2601027F - Ungmennaráð - 11/2025
11. fundur haldinn 26. janúar.14. 2601034F - Bæjarráð - 158
158. fundur haldinn 5. febrúar.15. 2602006F - Bæjarráð - 159
159. fundur haldinn 12. febrúar.16. 2602010F - Ungmennaráð - 12/2025
12. fundur haldinn 9. febrúar.17. 2602017F - Bæjarráð - 160
160. fundur haldinn 19. febrúar.18. 2602025F - Bæjarráð - 161
161. fundur haldinn 26. febrúar.Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri
