|
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista, Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista, Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2510456 - Ársreikningur Árborgar 2025 |
Bæjarráð samþykkir að vísa ársreikningi Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 til endurskoðunar og til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kom á fundinn undir þessum dagskrárlið og yfirgaf fundinn kl. 8:18. |
|
|
|
| 2. 2303295 - Menningarstefna Sveitarfélagsins Árborgar |
Margrét Blöndal, deildarstjóri menningar- og upplýsingadeildar, kemur inn á fundinn og fer yfir uppfærða menningarstefnu. Bæjarráð samþykkir stefnuna fyrir sitt leyti og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana.
Margrét Blönddal, mætir til fundarins kl. 8:21 og yfirgefur fundinn kl. 8:32. |
|
|
|
| 3. 2604123 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 - lýðræðisleg þátttaka barna |
| Bæjarráð vísar erindinu til skoðunar hjá ungmennaráði, grunnskólum sveitarfélagsins og til nánari skoðunar og útfærslu á fjölskyldusviði. |
| Bréf til sveitarfélagsins Árborgar.pdf |
|
|
|
| 4. 2107030 - Samkomulag um Austurbyggð II |
| Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðauka II við samkomulag um íbúabyggð í Austurbyggð II og leggur til við bæjarstjórna að samþykka viðaukann við samkomulagið. |
|
|
|
| 5. 2604175 - Endurskoðun byggðaáætlunar |
| Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
| 6. 2604171 - Vinnuhópur um frístundaakstur |
| Bæjarráð er sammála um að farið verði í endurskipulagningu frístundaaksturs með það að markmiði að bæta aðgengi, auka öryggi barna og tryggja betri samræmingu við daglegt skipulag skóla-, frístunda- og íþróttastarfs. Bæjarráð vísar verkefninu til frekari vinnslu innan fjölskyldusviðs. Tillaga að endurskipulagningu, ásamt kostnaðargreiningu, verði lögð fyrir bæjarráð, fræðslu- og frístundanefnd og velferðarnefnd. Tillagan komi fram sem fyrst til að breytingar geti tekið gildi á nýju skólaári. Bæjarráð skal vísa tillögunum til umsagnar í hverfisráðum sveitarfélagsins. |
|
|
|
| 7. 2604173 - Þjónustusamningur við skátafélagið Fossbúa 2026-2030 |
| Bæjarráð samþykkir samninginn. Jafnframt er bæjarstjóra veitt umboð til að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarfélagsins, ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir styrknum í fjárhagsáætlun 2026. |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 8. 2604006F - Skipulagsnefnd - 60 |
|
|
|
| 9. 2604013F - Velferðarnefnd - 25 |
|
|
|
|
| Fundargerðir til kynningar |
| 10. 2601211 - Fundargerðir stjórnar SASS 2026 |
| Lagt fram til kynningar. |
| 634. fundargerð SASS_060326.pdf |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 8:56 |