Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 42

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
20.05.2025 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Jóhann Jónsson nefndarmaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir varamaður, S-lista,
Matthías Bjarnason varamaður, B-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri.
Fundargerð ritaði: Sveinn Ægir Birgisson, formaður eigna- og veitunefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2402245 - Norðurhólar 3 - Jötunheimar viðbygging
Farið yfir verðkönnun á fullnaðarhönnun viðbyggingar leikskólans Jötunheima
Sviðsstjóra falið að undirrita samninga við lægstbjóðanda svo fremi sem hann uppfyllir kröfur verðkönnunargagna.
EV_minnisblað_Jötunheimar_140525.pdf
2. 2505211 - Bygging kennslusundlaugar við Sundhöll Selfoss
Farið yfir drög af kostnaðaráætlun vegna byggingar nýrrar kennslusundlaugar við Sundhöll Selfoss
Nefndin leggur til að ráðist verði í fullnaðarhönnun á nýrri kennslusundlaug við Sundhöll Selfoss, ásamt búningsklefum og tæknirými. Áætlað er að sundlaugarkarið sé 25 metrar að lengd, 17,5 metrar að breidd og um 1,5 metri að dýpt. Þá verði hægt að skipta sundlauginni í sjö sundbrautir.

Nefndin leggur einnig til að hönnuð verði yfirbygging yfir sundlaugarkarið. Með því verði opið fyrir þann möguleika að byggja yfir sundlaugina til framtíðar.
Erindi til kynningar
3. 2505200 - Fjárfestingaráætlun 2025-2034
Farið yfir drög að tíu ára fjárfestingaráætlun
Lögð er fram til kynningar drög að tíu ára framkvæmdaráætlun Sveitarfélagsins Árborgar.
4. 2408171 - Fjárfestingaáætlun 2025-2028
Farið yfir stöðu framkvæmda í fjárfestingaráætlun 2025
Farið yfir stöðu nýframkvæmda 2025.
5. 2504170 - Ársreikningur Árborgar 2024
Farið yfir ársreikning fráveitu og vatnsveitu.
Heildarrekstur Fráveitu Árborgar árið 2024 er jákvæður um 679 millj.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 431 millj.kr. Mismunurinn er því jákvæður um 248 millj.kr miðað við fjárhagsáætlun sem er afar ánægjulegt fyrir rekstur fráveitunnar.
Heildarrekstur Vatnsveitu Árborgar árið 2024 er jákvæður um 661 millj.kr. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir um 540 millj.kr. Mismunurinn er því jákvæður um 107 millj.kr. miðað við fjárhagsáætlun sem er afar ánægjulegt fyrir rekstur vatnsveitunnar.
Fráveita og Vatnsveita Árborgar eru í eigu Sveitarfélagsins Árborgar og eru hluti af B-hluta reikningsskilum sveitarfélagsins.
6. 2505205 - Fjárhagsáæætlun 2025
Farið yfir rekstrarniðurstöðu fyrstu þrjá mánuði ársins
Farið yfir 3 mánaða rekstrarniðurstöðu.
7. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Farið yfir næstu skref varðandi byggingu 3.áfanga Stekkjaskóla-íþróttahús
Lagðar fram frumhugmyndir til kynningar fyrir nefndina.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:48 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica