59. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 26
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 4. júní 2025 í Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2410015 - Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag
Tillaga frá 45. fundi skipulagsnefndar frá 28. maí sl. liður 1. Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag.
Deiliskipulagstillaga tekin til afgreiðslu í kjölfar auglýsingar skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010: Deiliskipulagið tekur til svæðis undir öryggisfangelsi á Stóra Hrauni L215875, nærri Eyrarbakka í Árborg, skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð. StóraHraun er landspilda um 250 ha. að stærð, sem liggur í og við gatnamót að Eyrarbakka og Stokkseyri, og upp með Eyrarbakkavegi, og er áætlað að nýta hluta landsins undir nýtt öryggisfangelsi. Bygging í fyrsta áfanga mun skapa rými fyrir vistun allt að 100 fanga, með stækkunarmöguleikum upp í 128 fanga. Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036. Deiliskipulagstillagan var auglýst í Dagskránni og Lögbirtingarblaði, auk þess sem tillagan var aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar frá 13. mars, með athugasemdafresti til og með 30. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, auk athugasemda frá landeigenda Efra-Sels.
Helstu atriði umsagna snéru að fráveitumálum, vatnasvæðum, votlendismálum, fuglavernd, auk nokkurra athugasemda frá landeiganda Efra-Sels.
Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir, og hefur sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagið. - 2410079 - Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 45. fundi skipulagsnefndar frá 28. maí sl. liður 2. Austurvegur 61 - 63. - Deiliskipulagsbreyting.
Kristinn Ragnarsson f.h. Reyrus ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð.
Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga. - 2505340 - Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald
Tillaga frá 131. fundu bæjaráðs frá 30. maí sl. liður 3. Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.
Lögð fram endurskoðuð drög á samþykktum um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald og vísar málinu til umræðu og samþykktar í bæjarstjórn. - 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Tillaga frá 131. fundu bæjarráðs frá 30. maí sl. liður 8. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 2.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.
Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 261.341.742,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 261.341.742,- og lækkar því rekstrarniðurstaða í A hluta um 774.890 þúsund krónur eftir að viðauki er samþykktur.
Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 261.341.742,- og verður því rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð neikvæð um 179.805 þúsund krónur.
Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé og útdeilingu úr veikinda- og kjarasamnings launapotti. - 2403338 - Kosning fulltrúa frá Sunnulækjarskóla í ungmennaráð Árborgar
Fulltrúi frá Sunnulækjarskóla.
Fundargerðir - 2505002F - Eigna- og veitunefnd - 41
41. fundur haldinn 6. maí. - 2505010F - Bæjarráð - 129
129. fundur haldinn 15. maí. - 2504024F - Skipulagsnefnd - 44
44. fundur haldinn 14. maí. - 2505018F - Bæjarráð - 130
130. fundur haldinn 22. maí. - 2505019F - Eigna- og veitunefnd - 42
42. fundur haldinn 20. maí. - 2505017F - Fræðslu- og frístundanefnd - 20
20. fundur haldinn 21. maí. - 2505027F - Bæjarráð - 131
131. fundur haldinn 30. maí.