Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 3

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
02.07.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Heiðrún Kristmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
Formaður leitaði afbrigða og óskaði eftir að taka inn mál nr. 2506051, útboð á akstri fyrir Sveitarfélagið Árborg. Samþykkt samhljóða og fer málið á dagskrá undir lið 8.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2604222 - Samþykktir Héraðsnefnd Árnesinga 2026
Síðari umræða. Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja samþykktirnar.
Bæjarráð, sem fer með sömu heimildir og bæjarstjórn í sumarleyfi bæjarstjórnar, samþykkir samhljóða samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga.
Samþykkt
2. 2606217 - Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2030
Lagt fram til kynningar minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2030, dags. 12. júní 2026.
Lagt fram til kynningar.
Forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2027-2031.pdf
3. 2606021 - Húsnæði undir frístundastarf og starfsemi mannvirkja- og umhverfissviðs
Lagt er fram minnisblað Braga Bjarnasonar, dags. 29. júní 2026, vegna tilboða sem bárust í húsnæði undir starfsemi á vegum sveitarfélagsisn, í samræmi við bókun frá 1. fundi bæjarráðs sem haldinn var 4. júní sl. og auglýsingu sem birt var á heimasíðu sveitarfélagsins 5. júní sl.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Samþykkt
4. 2506340 - Samkomulag - vegna barna með fjölþættan vanda
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 23. júní þar sem vakin er athygli á á því að mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt reglugerð sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda. Með nýrri reglugerð hefur ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt þann hóp barna sem fellur undir samkomulagið og sent reikninginn á sveitarfélög landsins.
Bæjarráð Sveitarfélagsins Árborgar lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.

Bæjarráð telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegs rökstuðnings og feli í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taki þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.
Samþykkt
Tölvupóstur - Vegna samkomulags við ríkið varðandi börn með fjölþættan vanda.pdf
Drög að reglugerð um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins.pdf
5. 2606316 - Beiðni um nýtt stöðugildi á stjórnsýslu- og fjármálasvið
Minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálastjóra, dags. 29. júní 2026, kynnt. Í minnisblaðinu er óskað eftir viðbótarstöðugildi á sviðið frá og með 1. september 2026.
Lagt fram minnisblað sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs dags. 29. júní er varðar beiðni um nýtt stöðugildi á stjórnsýslu- og fjármálasviði.

Bæjarráð samþykkir að bætt verði við nýju stöðugildi lögfræðings í lögfræðiþjónustu á stjórnsýslu- og fjármálasviði. Ekki er þörf á viðauka vegna stöðugildisins fyrir árið 2026 þar sem gert er ráð fyrir fjármagninu í lögfræðiþjónustu innan sviðsins.
Samþykkt
6. 2606299 - Evrópsk Samgönguvika 16. - 22. september 2026
Erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 20. maí þar sem kynnt er Evrópsk Samgönguvika er haldin verður dagana 16. - 22. september nk. Þema samgönguviku árið 2026 er Samgöngur fyrir öll þar sem m.a. er horft til vistvænna samgangna þvert á kynslóðir, aðgengismál ólíkra hópa og innan sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar. Bæjarráð hvetur stofnanir sveitarfélagsins, íbúa og fyrirtæki að taka þátt í Evrópskri samgönguviku og hvetja til vistvænna samgangna.
Tölvupóstur - Þátttaka í Evrópskri samgönguviku - ætlar þitt sveitarfélag að taka þátt.pdf
Samgönguvika 2026 - hvatt til þátttöku.pdf
7. 2606310 - Breyting á rekstri landsbyggðarvagna
Erindi frá Vegagerðinni dags. 10. júní sem var sent á SASS varðandi breytingar á fyrirhugaðri þjónustu landsbyggðarvagna.
Bæjarráð Árborgar lýsir yfir vonbrigðum að verið sé að fækka og fella út akstursleiðir almenningssamgangna á Suðurlandi. Mikilvægt sé að halda stöðugleika í akstursleiðum og tíðni ferða til að auka nýtingu. Það sé þó eðlilegt að aðlaga tímatöflur og leiðarkerfi til samræmis við reynslu og ábendingar notenda.

Bæjarráð Árborgar tekur einnig undir bókun sveitarstjórnar Bláskógarbyggðar um að ekki hafi verið haft samráð við sveitarfélögin vegna fyrirhugaðra breytinga og mikilvægi þess að aksturleiðin haldi sér milli Reykholts og Selfoss. Sú leið kom í stað skólaaksturs FSu og því erfið staða fyrir þá nemendur sem vilja nýta sér almenningssamgöngur til að komast í skólann.
Samþykkt
20260610_BRÉ_SASS-Landsbyggðarvagnar.pdf
8. 2506051 - Útboð á akstri fyrir Sveitarfélagið Árborg
Ákvörðun um val á tilboði GTS kynnt bæjarráði.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir
9. 2605002F - Stjórn Leigubústaða Árborgar ses - 29
29. fundur haldinn 7. maí.
10. 2605005F - Velferðarnefnd - 26
26. fundur haldinn 11. maí.
11. 2605017F - Skipulagsnefnd - 62
62. fundur haldinn 19. júní.
12. 2605019F - Velferðarnefnd - 27
27. fundur haldinn 29. maí.
13. 2606006F - Eigna- og veitunefnd - 1
1. fundur haldinn 9. júní.
14. 2606008F - Fræðslu- og frístundanefnd - 1 - 2026
1. fundur haldinn 10. júní.
15. 2606018F - Umhverfisnefnd - 1
1. fundur haldinn 19. júní.
Fundargerðir til kynningar
16. 2602155 - Fundargerðir stjórnar Bergrisans bs 2026
94. fundur haldinn 15. maí 2026.
Lagt fram kynningar.
94. stjórnarfundur Bergrisans.pdf
17. 2604231 - Fundargerðir aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs 2026
218. fundur haldinn 5. maí.
219. fundur haldinn 8. maí.

Lagt fram kynningar.
Fundur 218 - 5.5.2026.pdf
Fundur 219 - 8.5.2026.pdf
18. 2601211 - Fundargerðir stjórnar SASS 2026
636. fundur haldinn 8. maí.
637. haldinn 5. júní.

Lagt fram kynningar.
636. fundargerð SASS_080526_undirrituð.pdf
637. fundargerð SASS_050626_undirrituð.pdf
19. 2605068 - Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands hf 2026
Aðalfundur haldinn 27. maí.
Lagt fram kynningar.
Fundargerð aðalfundar EFS 2026.pdf
20. 2601407 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2026
255. fundur haldinn 4. júní.
Lagt fram kynningar.
255. fundur fundargerd.pdf
21. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
1000. fundur haldinn 9. júní.
Lagt fram kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 1000.pdf
22. 2606301 - Aukaaðalfundur Bergrisans 2026
Aukaaðalfundur haldinn 15. júní.
Lagt fram kynningar.
Fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans 15.6.2026.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:50 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica