Skipulags og byggingarnefnd - 82 |
Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi, 01.12.2021 og hófst hann kl. 08:15 |
|
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista, Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista, Kristbjörn Hjalti Tómasson nefndarmaður, S-lista, Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista, Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista, Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir starfsmaður, Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði. |
|
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson, Skipulagsfulltrúi |
|
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir með afbrigðum að bæta máli nr. 8 á dagsrká fundarins. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
Almenn afgreiðslumál |
1. 2111192 - Gagnheiði 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að byggingarleyfisumsókn verði grenndarkynnt í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt verði fyrir eigendum fasteignanna Eyravegur 51, 53 og 55, Gagnheiði 18, 19, 23 og 25. |
|
|
|
2. 21046847 - Deiliskipulagsbreyting - Jórvík 1 |
Skipulags- og byggingarnefnd þakkar Ragnari fyrir hugleiðingar og athugasemdir, og svarar eftirfarandi: Markmið deiliskipulagsbreytingar: Varðandi tölur um fjölda íbúða þá virðist sem blandað sé saman íbúðafjölda alls svæðisins við íbúðafjölda á svæðunum sem breytingin nær til. Fjöldi íbúða á svæðunum sem breytingin nær til er 144 en verður eftir breytingu 228. Fjöldi íbúða alls svæðisins fyrir breytingu er 296 en verður 368. Þetta kemur nokkuð skýrt fram í skýringatexta á uppdrætti. Vægi bíla í skipulagi er minnkað á þann hátt að bílastæðum er ekki fjölgað jafn mikið og fjölda íbúða. Varðandi göngu- og hjólaleiðir: Ekki er verið að breyta legu göngustíga í breytingartillögunni. Vegna grenndargáma: Ekki er verið að breyta neinu varðandi grenndargáma. Farið var sérstaklega yfir þörf fyrir grenndargáma á svæðinu. Í greinargerð skipulagsins er fjallað um möguleikann á að setja upp fleiri grenndargáma þar sem akvegir þvera græn svæði ef þurfa þykir í framtíðinni. Staðsetning húsa á lóðum: Ekki um að ræða neina breytingu á þætti er varðar staðsetningu húsa á lóðum í breytingatillögu. Vegna Hljóðvistar: Ekki var talin þörf á hljóðvistargreiningu við gerð skipulags Jórvíkur og Björk 2. Það byggir á þeirri reynslu við vinnslu Björkurstykkis, skoðaði EFLA þau mál og töldu einungis þörf á að skoða hljóðvist meðfram Suðurhólum, og tók það skipulag mið af því. Jórvíkursvæðið og Björk 2 liggja ekki meðfram Suðurhólum og því var ekki gerð frekari hljóðvistargreining. Við skipulag Bjarkar 2 var stuðst við fjarlægðarmörk varðandi fjarlægð frá Hólastekk eins og Suðurhóla. Fullyrðingar sem koma fram í athugasemd um þau mál eru því rangar og hafa ekki með breytinguna að gera. Umferðargreining: Rétt er að ekki var gerð sérstök umferðargreining fyrir hverfið, frekar en Björkurstykkið eða önnur skipulögð íbúðahverfi. Hins vegar er í athugasemd dregin röng ályktun að umferð frá hverfinu fari öll á Suðurhóla. Strangt til tekið tengist hverfið ekki við Suðurhóla heldur Hólastekk sem mun taka að einhverju leyti við hlutverki Suðurhóla. Í skipulaginu er einnig gert grein fyrir tenginum við Björk 2 og fleiri tengingum þaðan við Hólastekk. Ályktun sem kemur fram í athugasemd um 1-3 bíla pr. íbúð er kannski vafasöm og hugsanlega ýkt þar sem að einmitt í gegnum skipulag (fjölda bílastæði) er ekki gert ráð fyrir fleiri en einum bíl á hverja íbúð undir 80 m². Verslun- og þjónusta: Hægt er að taka undir áhyggjur sem koma fram í athugasemd af engri þjónustu í úthverfum bæjarins en bent á að ekki hefur verið ásókn í þá lóð sem hefur verið í boði fyrir þjónustu. Skipulagsnefnd telur að kanna þurfi sérstaklega ábendingar er varða samþjöppun verslunar á Miðbæ og Austurveg, og hvaða lausnir gætu hentað til að stemma stigu við auknu umferðarálagi á hverfi og á miðkjarna Selfoss. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir deiliskipulagsbreytinguna fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við og 41. gr. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda tillöguna Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi 42. gr . skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsfulltrúa er falið að auglýsa niðurstöðu bæjarstjórnar í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
|
Samþykkt |
|
|
|
3. 2111390 - Deiliskipulagsbreyting - Frístundamiðstöð |
Skipulagsnefnd samþykkir að gerð verði breyting á gildandi deiliskipulagi, og er skipulagsfulltrúa falið að koma málinu í farveg. |
Samþykkt |
|
|
|
4. 2109308 - Deiliskipulagstillaga - Austurvegur Vallholt |
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að gerð tillögunnar. |
Samþykkt |
|
|
|
5. 2111411 - Deiliskipulagsbreyting óveruleg - Austurbyggð II |
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga, sem óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sjálfs, leggur skipulagsnefnd til að fallið verði frá grenndarkynningu. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til varðveislu og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda. |
Samþykkt |
|
|
|
7. 2111417 - Eyrarbakki - Ósk um lóð undir flutningshús |
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa og formanni skipulags- og byggingarnefndar að leita lausna í málinu í samráði við umsækjanda. |
Samþykkt |
|
|
|
8. 2109436 - Eyrargata 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi |
Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir innkomna athugasemd og umsögn vegna byggingarleyfisumsóknar. Nefndin tekur undir þau megin atriði sem þar koma fram að æskilegt sé að umrædd bygging verði í meira samræmi við byggðina á Eyrarbakka. Nefndin hafnar því fyrirliggjandi umsókn um byggingarleyfi og beinir því til umsækjanda að endurhanna byggingunna m.t.t núverandi byggðar í nágrenni lóðarinnar á Eyrarbakka og í samræmi við verndarsvæði í byggð í samræmi við fyrirliggjandi umsögn.
|
Hafnað |
|
|
|
|
Fundargerðir |
6. 2111402 - Dalbæjarland Stokkseyri - Óveruleg breyting á deiliskipulagi |
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt í samræmi við 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga, sem óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi. Þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins sjálfs, leggur skipulagsnefnd til að fallið verði frá grenndarkynningu. Skipulagsfulltrúa er falið að senda Skipulagsstofnun tillöguna til varðveislu og auglýsa í B-deild Stjórnartíðinda. |
|
|
|
9. 2111013F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 79 |
9.1. 2111170 - Björkurstekkur 58 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um skil á greinargerð hönnunarstjóra skv. gr. 4.1.3 ásamt mæli- og hæðarblaði, orkurammaútreikngum, og yfirliti hönnunarstjóra um ábyrgarsvið hönnuða.
Byggingsstjóri og iðnmeistararar hafa verið skráðir.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Gögn vegna fyrirvara við samþykkt byggingaráforma.
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.2. 2111191 - Austurvegur 1-5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Fyrir liggur samþykki eigenda annarra eignarhluta í húsinu.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdráttu, undirritaður af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.3. 2111192 - Gagnheiði 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vísað til skipulags- og byggingarnefndar.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.4. 2111193 - Skógarflöt - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Fyrirhugðuð staðsetning húss er ekki í samræmi við samþykkt deiliskipulag frá 2006.
Erindinu hafnað.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.5. 2111325 - Miðtún - Dæluhús - Umsókn um byggingarleyfi. L232688
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.6. 2111337 - Björkurstekkur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um skil á greinargerð hönnunarstjóra skv. gr. 4.1.3 ásamt mæli- og hæðarblaði, gátlista og yfirliti hönnunarstjóra um ábyrgarsvið hönnuða.
Ábyrgðaryfirlýsing byggingarstjóra liggur fyrir.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Gögn vegna fyrirvara við samþykkt byggingaráforma
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
-- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.7. 2111249 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir endurnýtingu úrgangs til landmótunnar á Stokkseyri
Svæðið er efnistöku/efnislosunarsvæði á gildandi aðalskipulagi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.8. 2111303 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir ÞH Blikk ehf Gagnheiði 37
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin sé í samræmi við samþykkta notkun hússins og gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfisins.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.9. 2111319 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir bókakaffi Eyravegi 15b
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi og samþykktri notkun húsnæðisins og gerir ekki athugasemdir við að starfsleyfi verði gefið út.
Niðurstaða þessa fundar
|
9.10. 2111343 - Umsókn um stöðuleyfi - Björkurstekkur 1c
Óskað er eftir að gámurinn verði staðsettur við gangstætt utan lóðar.
Samþykkt með fyrirvara um samþykki samráðsfundar með Mannvirkja- og umhverfissviði.
Niðurstaða þessa fundar
|
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:36 |
|