Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Eigna- og veitunefnd - 4

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
13.10.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Ragnar Óskarsson nefndarmaður, D-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson nefndarmaður, S-lista,
Ingunn Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Jóhann Jónsson varamaður, D-lista,
Atli Marel Vokes sviðsstjóri, Sigurður Ólafsson deildarstjóri, Hákon Garðar Þorvaldsson veitustjóri.
Fundargerð ritaði: Atli Marel Vokes, Sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
Svanhildur Gunnlaugsdóttir landslagsarkitekt hjá Landform kemur inn á fundinn
1. 2610107 - Vallaskóli - lóðarhönnun og framkvæmdir
Farið yfir lóðarhönnun og kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda við lóð Vallaskóla á Selfossi
Nefndin þakkar góða kynningu á hönnun lóðar við Vallaskóla á Selfossi.

Nefndin leggur til að við gerð fjárfestingaráætlunar 2027-2030 verði gert ráð fyrir nauðsynlegu fjármagni til lóðarframkvæmda við Vallaskóla á Selfossi. Jafnframt er lagt til að framkvæmdum verði hagað í samræmi við þá áfangaskiptingu sem lögð hefur verið fram af hönnuðum verkefnisins, þannig að uppbygging og framkvæmdir geti farið fram með markvissum og hagkvæmum hætti. Nefndin telur mikilvægt að tryggt verði fjármagn til verkefnisins í takt við framvindu og forgangsröðun samkvæmt áætlun hönnuða og þarfa skólasamfélagsins.
Svanhildur víkur af fundi kl.08:37
2. 2606017 - Umferðaröryggisaðgerðir 2026 - Gangbrautarljós á Austurvegi fyrir framan ráðhúsið
Farið yfir minnisblað Eflu verkfræðistofu varðandi virkni gangbrautarjósa ásamt kostnaðaráætlun.
Nefndin samþykkir tillögu Vegagerðarinnar varðandi uppsetningu gangbrautarljósa á Austurvegi með það að markmiði að auka umferðaröryggi og bæta aðstæður gangandi vegfarenda. Nefndin vísar framkvæmdinni til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
3. 2610110 - Fjárfestingaráætlun 2027-2030
Farið yfir fyrstu drög að fjárfestingaráætlun 2027-2030
Nefndin hefur farið yfir fyrirliggjandi drög að fjárfestingaráætlun og vísar þeim til áframhaldandi vinnu. Við frekari úrvinnslu verði tekið tillit til þeirra athugasemda og ábendinga sem fram komu á fundinum áður en áætlunin verður lögð fram til endanlegrar afgreiðslu.
Erindi til kynningar
4. 2402245 - Norðurhólar 3 - Jötunheimar viðbygging
Farið yfir ársfjórðungsskýrslur og verkfundagerðir verkeftirlits.
Lagt fram til kynningar.
5. 2603184 - Dælustöð Vatnsveitu og nýr miðlunargeymir
Farið yfir minnisblað byggingastjóra um stöðu verksins ásamt verkfundargerðum.
Lagt fram til kynningar.
6. 2406376 - Staða orkuöflunar
Farið yfir stöðu orkuöflunar í sveitarfélaginu.
Minnisblað veitustjóra varðandi vatnsveitumál lagt fram til kynningar.
7. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Farið yfir frumhönnunarskýrslu hönnunarteymis.
Nefndin hefur farið yfir drög að frumhönnunarskýrslu hönnuða vegna 3. áfanga Stekkjaskóla og lýsir ánægju sinni með framlagða vinnu. Nefndin telur að vel hafi tekist til við undirbúning verkefnisins og fagnar því sérstaklega að notendasamráð hafi verið haft í hávegum við mótun lausna og áherslna í hönnunarvinnunni.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica