Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Velferðarnefnd - 2

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
29.09.2026 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu: Linda Björk Hilmarsdóttir formaður, D-lista,
Margrét Anna Guðmundsdóttir varaformaður, D-lista,
Alexander Egan nefndarmaður, D-lista,
Ellý Tómasdóttir nefndarmaður, B-lista,
Margrét Björk Ólafsdóttir nefndarmaður, S-lista,
Þorsteinn Haukur Harðarson áheyrnarfulltrúi, C-lista,
Sigþrúður Birta Jónsdóttir deildarstjóri.
Fundargerð ritaði: Sigþrúður Birta Jónsdóttir, Deildarstjóri velferðarþjónustu


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2601276 - Félagsleg ráðgjöf - barnateymi
Trúnaðarmál.
Skráð í trúnaðarbók.
2. 2511417 - Endurskoðun á reglum Árborgar um fjárhagsaðstoð
Lagt er til samþykktar smávægilegar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð.
Velferðarnefnd samþykkir samhljóða breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu.
Samþykkt
Hekla Dögg og Arndís Tómasdóttir komu inn á fund og kynntu dagskrárlið 3.
3. 2601289 - Staða húsnæðislausra í Sveitarfélaginu Árborg á árinu 2025
Lögð er fyrir velferðarnefnd skýrsla vinnuhóps um stöðu heimilislausra í Árborg með tilliti til uppbyggingu smáhýsa.
Velferðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu A, að hafin verði vinna við að koma upp sértæku smáhýsaúrræði fyrir fólk í heimilisleysi í Sveitarfélaginu Árborg. Málinu er því vísað til bæjarráðs.
Samþykkt
Erindi til kynningar
Heiða Ösp Kristjánsdóttir kom inn og kynnti dagskrárlið 4.
4. 2609192 - Gjaldskrárumræða fyrir árið 2027
Fjallað er um þær gjaldskrár sem heyra undir starfssemi Velferðarþjónustu.
Sviðsstjóri kom inn á Velferðarnefnd og fór yfir gjaldskrár. Velferðarnefnd felur fjölskyldusviði að vinna gjaldskrár út frá umræðum á fundinum.
5. 2609053 - Fræðsludagur fjölskyldusviðs 2026
Lagt er til kynningar efni um fræðsludag fjölskyldusviðs Árborgar sem haldin var í upphafi hausts.
Velferðarnefnd þakkar fyrir kynningu á fræðsludegi fjölskyldusviðs Árborgar.
Guðbjörg Pálsdóttir og Margrét Elísa komu inn á fund og kynntu dagkrárlið 6.
6. 2609223 - Kynning á áherslum stuðningsþjónustunnar
Stuðningsþjónustan kynnir helstu áherslur í starfsemi sinni.
Stuðningsþjónusta Árborgar kynnt. Velferðarnefnd þakkar fyrir góða kynningu og góð störf fyrir þágu sveitarfélagsins.
Ellý Tómasdóttir og Arnar Helgi komu inn á fund og kynntu dagskrárlið 7.
7. 2609241 - Stöðuskýrslu vegna verkefnis Elju
Kynnt er staða virkniverkefnisins Elju og framtíðarsýn þess.
Velferðarnefnd þakkar fyrir góða kynningu og tekun undir mikilvægi verkefnisins.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica