5. fundur bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2026 - 2030
Fundur bæjarstjórnar Árborgar verður haldinn miðvikudaginn 30. september 2026 í
Grænumörk 5, Selfossi, kl.16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
1. 2609109 - Tjald- og skógræktarsvæði AF6 SL1; óveruleg breyting á aðalskipulagi
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 5. Tjald- og skógræktarsvæði AF6 SL1; óveruleg breyting áaðalskipulagi.
Samhliða afgreiðslu nýs deilsikipulags sem tekur til tjald- og skógræktarsvæðis í landi Hellis er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfæringar á landnotkun innan svæðisins. Afþreyingarog ferðamannasvæði sem liggur næst aðliggjandi íbúðarbyggð er breytt í skógræktarsvæði. Samsvarandi stærð skógræktarsvæðis á norðurhluta svæðisins er breytt í afþreyingar- og ferðamannasvæði.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega
breytingu á aðalskipulagi. Niðurstaða sveitarfélagsins verði auglýst og málið sent HMS til samþykktar.
2. 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 6. Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting.Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hásteinsvegar 30 eftir auglýsingu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma tillögunnar og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Tillagan felur í sér að endurskoðun á forsendum uppbyggingar og notkun á lóðinni. Samkvæmt gildandi deiliskipulagi lóðarinnar er heimilt að byggja 5 íbúða raðhús ásamt samsvarandi fjölda bílskúra, hámarks nýtingarhlutfall lóðar er
skilgreint 0,28. Ekki eru gerðar breytingar á nýtingarhlutfalli lóðar eða fjölda bílastæða. Helstu breytingar sem gerðar eru á skilmálum deiliskipulagsins eru eftirfarandi:
- Heimild fyrir einnar hæðar raðhúsi með 5 íbúðum og 5 stakstæðum bílskúrum fellur niður og í stað verður heimilt að reisa 5 stakstæð tveggja hæða hús sem staðsett eru innan nýrra byggingarreita.
- Heimilt verður að vera með gististarfsemi í flokki I og II á lóðinni samkvæmt
reglugerð nr. 1277/2016 í samræmi við aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036.
- Afstöðu og fyrirkomulagi bílastæða verður breytt, en bílastæðafjöldi helst óbreyttur.
- Settir eru fram skilmálar um lágmarks gólfkóta vegna sjávarflóðahættu og koma þeir fram í skilmálum og á skipulagsuppdrætti.
- Settir eru fram skilmálar um arkitektúr, efnisnotkun, lóðarhönnun og frágang innan lóðar.
Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða deiliskipulagsbreytingu eftir auglýsingu. Að mati nefndarinnar hefur verið brugðist við þeim umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðra gagna þar sem
við á. Tengingum við Hásteinsveg er fækkað í takt við umsögn Vegagerðarinnar. Ekki er talin ástæða til að bregðast sérstaklega við ábendingu Heilbrigðiseftirlits þar sem lóðin tengist eftir sem áður fráveitukerfi þorpsins. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda eftir yfirferð HMS á tillögunni.
Bæjarstjóri leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða deiliskipulagsbreytingu í samræmi við framangreinda afgreiðslu skipulagsnefndar.
3. 2503461 - Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 7. Tjaldsvæði í Hellislandi - Deiliskipulag.Lögð er fram uppfærð tillaga sem tekur til nýs deiliskipulags tjald- og skógræktarsvæðis í landi Hellis eftir kynningu. Samhliða er lögð fram tillaga að óverulegri breytingu aðalskipulags sem tekur til færslu á landnotkun innan
svæðisins. Sú breyting er m.a. til að bregðast við ábendingum íbúa í grennd við svæðið þar sem skógræktarsvæði er skilgreint þar sem áður var gert ráð fyrir tjaldsvæði næst íbúðabyggðinni. Auk hefðbundins tjaldsvæðis sunnan megin á svæðinu gerir skipulagið ráð fyrir að á norður hluta svæðisins verði blandað skógræktar- og útisvistarsvæði sem gæti nýst sem tjaldsvæði í tengslum við stærri viðburði í sveitarfélaginu, s.s. Landsmótum UMFÍ og sumarhátíðum á Selfossi. Á nútíma tjaldsvæðum eru flestir gestir í einhverskonar ferðavögnum. Því er í skipulagi almennings tjaldsvæðisins sýnd möguleg niðurröðun reita fyrir hverskyns vagna, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna o.s.frv og er tekið tillit til leiðbeininga HMS er varðar brunavarnir á tjaldsvæðum í því tilliti. Gert er ráð fyrir tveim þjónustuhúsum á svæðinu, sem þjóni sitthvoru hluta svæðum. Annarsvegar allt að 50m² þjónustuhús eða gámahýsi við viðburðartjaldsvæði og hins vegar allt að 200m²
þjónustuhús við sjálft tjaldsvæðið. Þá er gert ráð fyrir svæði fyrir allt að 15 lítil gistihús að hámarki 20m² hvert.
Athugasemdir bárust við kynningu málsins frá íbúum og hefur verið brugðist við þeim athugasemdum inn í uppfærðri tillögu deiliskipulagsins þar sem við á s.s. með fyrrgreindri færslu á milli skógræktarsvæða og afþreyingar- og
ferðamannasvæða.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði samþykkt til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan gildandi
aðalskipulags sveitarfélagsins og framlagðri óverulegri breytingu á aðalskipulagi sem tekur til tilfærslna á landnotkunarreitum innan skipulagssvæðisins.
4. 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 10. Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag.Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2 innan aðalskiplags Árborgar eftir auglýsingu. Skipulagsreiturinn nær til um 9,9 ha lands sem nær yfir lóð Sláturfélags Suðurlands og svæði fyrir nýjan aðkomuveg. Lóð sláturhúss og afurðastöðvar er 9,6 ha að stærð og er nú þegar byggð að hluta. Sláturfélag Suðurlands hyggst byggja nýtt sláturhús/afurðastöð fyrir stórgripaslátrun, vestan við núverandi byggingar. Núverandi byggingarmagn á iðnaðarlóðinni skv. fasteignaskrá er um 4.565 m2 og er gert ráð fyrir að stækkunin geti orðið allt að 6.000 m2 þar sem um 2000 - 2500 m2 verða byggðir í fyrsta áfanga. Auk nýrra húsa er gert ráð fyrir endurnýjun á núverandi húsnæði sláturhússins.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan framlagðar gagna og
samantektar málsaðila á umsögnum sem bárust og viðbrögðum við þeim.
Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í Bdeild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting
Tillaga frá 4. fundi skipulagsnefndar frá 16. september sl. liður 11. Grænamörk,Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga er varðar breytingar á skilmálum aðalskipulags Árborgar 2020-2036, fyrir íbúðarbyggðina ÍB17 á Selfossi. Um er að ræða íbúðarbyggð sem afmarkast af Hörðuvöllum, Árvegi, Þórsmörk, Heiðmörk og Austurvegi.
Skipulagssvæðið sem aðalskipulagsbreyting nær til er tæpir 6 ha. Megin breytingin fellst í að gerð er ítarlegri grein fyrir í samantektartöflu fyrir Mörk og Grænumörk, fjölgun íbúða á svæðinu, auk fjölda hæða. Samhliða breytingu aðalskipulags verður unnið nýtt deiliskipulag fyrir svæðið.Tillagan var samþykkt til auglýsingar á fundi bæjarstjórnar þann 22.6.2026 með fyrirvara um samþykki HMS. Lögð er fram afgreiðsla HMS þar sem gerðar eru athugasemdir við tillöguna og auglýsingu hennar. Samhliða eru lögð fram uppfærðum gögnum í takt við athugasemdir HMS.
Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn Árborgar að framlögð tillaga að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar verði samþykkt í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á grundvelli uppfærðra
gagna og viðbragða vinnsluaðila skipulagsbreytingar sem lögð er fram samhliða samþykkt tillögunnar. Mælist nefndin til þess að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar.
Samþykkt samhljóða.
Áheyrnarfulltrúi Ingunn Guðmundsdóttir áheyrarfulltrúi Viðreisnar leggur fram
sérbókun:
Ég legg til að afgreiðslu tillögunnar verði frestað og henni vísað til endurskoðunar aðalskipulags sem þegar hefur verið ákveðið að fara í. Þá verði fjallað um deiliskipulag á reitnum samhliða eins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leggur til í athugasemdum við tillöguna. Enn fremur er mikilvægt að samhliða umfjöllun um breytingartillöguna sé fjallað um aðliggjandi lóðir og umferðarskipulag þ.e. Heilbrigðisstofnunar, lögreglu, sjúkraflutninga, slökkviliðs og björgunarsveitar.
6. 2606025 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030
Bæjarstjóri leggur til að næsti fundur verði 21. október 2026, en fundur sem ætti að vera 7. október n.k. falli niður vegna fjármálaráðstefnu sveitarfélagsins.Fundargerðir
7. 2609008F - Ungmennaráð - 6/2026
6. fundur haldinn 7. september.8. 2609005F - Eigna- og veitunefnd - 3
3. fundur haldinn 8. september.9. 2609004F - Fræðslu- og frístundanefnd - 2 - 2026
2. fundur haldinn 9. september.10. 2609013F - Bæjarráð - 11
11. fundur haldinn 17. september.Bragi Bjarnason,
bæjarstjóri

