Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulagsnefnd - 58

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
11.03.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Ari B. Thorarensen formaður, D-lista,
Rebekka Guðmundsdóttir nefndarmaður, D-lista,
Axel Sigurðsson nefndarmaður, Á-lista,
Matthías Bjarnason nefndarmaður, B-lista,
Viktor Stefán Pálsson varamaður, S-lista,
Rúnar Guðmundsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson byggingafulltrúi, Vigfús Þór Hróbjartsson skipulagsfulltrúi.
Fundargerð ritaði: Ari B Thorarensen, formaður skipulagsnefndar


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2501350 - Fossnes Iðnaðarlóð;Slátufélag Suðurlands;Tillaga aðalskipulagsbreytingar
Lögð er fram tillaga aðalskipulagsbreytingar sem tekur til svæðisins umhverfis Sláturfélag Suðurlands á Selfossi. Í breytingunni felst að iðnaðarsvæðinu I2 er breytt til að hægt sé að koma fyrir nýjum mannvirkjum fyrir starfsemina. Eins er verslunar- og þjónustusvæðið VÞ5 stækkað en þar eru starfsmannahús, veiðihús og íbúðarhús. Opið svæði OP1 minnkar og iðnaðarsvæðin I15 og I21 færast til og stækka. Skipulagsbreytingin nær til ríflega 10 ha.
Skipulagsnefnd Árborgar synjar framlagðri tillögu vegna hugmynda um uppbyggingu á starfsmannabúðum á svæðinu. Veitt var takmörkuð heimild fyrir uppbyggingu á starfsmannabúðum á svæðinu. Að mati nefndarinnar eru ekki forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu á viðkomandi aðstöðu á svæðinu í takt við fyrri afgreiðslur nefndarinnar.
Hafnað
2. 2603015 - Fossnes; Sláturfélag Suðurlands; Deiliskipulag
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til svæðis I2. Skipulagsreiturinn nær til um 11 ha lands og nær yfir tvær lóðir Sláturfélags Suðurlands. Annars vegar er um að ræða lóð sláturhúss og afurðastöðvar, sem er 9,6 ha að stærð og hins vegar lóð Bjargs, sem er um 1 ha að stærð og er fyrir starfsmannabústaði. Báðar þessar lóðir eru nú þegar byggðar. Samhliða deiliskipulagi þessu er gerð aðalskipulagsbreyting þar sem lóð starfsmannabústaða er breytt í verslunar- og þjónustusvæði í stað iðnaðarsvæðis. Helstu viðfangsefni og markmið skipulagsins eru tilgeind í 2.kafla greinargerðar deiliskipulagsins.
Skipulagsnefnd Árborgar synjar framlagðri tillögu vegna hugmynda um uppbyggingu á starfsmannabúðum á svæðinu. Veitt var takmörkuð heimild fyrir uppbyggingu á starfsmannabúðum á svæðinu. Að mati nefndarinnar eru ekki forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu á viðkomandi aðstöðu á svæðinu í takt við fyrri afgreiðslur nefndarinnar.
Hafnað
3. 2601204 - Jórvík 1 - Deiliskipulagsbreyting
Larsen hönnun leggur fram uppfærða tillögu breytinga á deiliskipulagi íbúðabyggðar í landi Jórvíkur I sem var frestað afgreiðslu á fundi nefndarinnar þann 25.2.2026. Markmið með deiliskipulagsbreytingu er að bæta nýtingu fjölbýlishúsalóða með fjölgun íbúða, stækkun á byggingareit, bilastæðum fækkað og hámarks vegg / mænishæð er hækkuð. Breytingar: Á fjölbýlishúsalóðum F2 er bílastæðum fækkað niður í 1 stæði á íbúð og hámarks vegg / mænishæð hækkar úr 8 m upp í 10 m. Á lóðunum Fossvík 1, 3 og 5 eru byggingareitir stækkaðir og íbúðum fjölgað í samræmi. Á lóðinni Nýja Jórvík 13, er íbúðum fjölgað. Að öðru leiti gilda eldri samþykktir skilmálar. Nýja Jórvík 13 fjölgar úr 12 íbúðum í 20. Fossvík 1 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fossvík 3 fjölgar úr 8 íbúðum í 16. Fossvík 5 fjölgar úr 8 íbúðum í 12. Fjölgun samtals úr 36 íbúðum í 62.
Skipulagsnefnd Árborgar mælist til þess við bæjarstjórn að viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins verði samþykkt. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi. Jafnframt mælist nefndin til þess að breytingin verði sérstaklega kynnt aðliggjandi lóðarhöfum innan hverfisins.
Samþykkt
4. 2603062 - Austurvegur 48; Þjónustumiðstöð N1; Uppbygging innan lóðar
Lögð er fram beiðni frá Festi er varðar uppbyggingu innan lóðar N1 að Austurvegi 48 á Selfossi. Í framlögðum hugmyndum felst uppbygging á aðstöðu fyrir gasgeymslu, þvottabásum og afgirtri sorpaðstöðu þar sem núverandi þvottaplan og gaskútageymsla er staðsett í dag.
Skipulagsnefnd mælist til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa. Skipulags -og Byggingarfulltrúa falið að annast afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd mælist til þess að hönnuðir taki til skoðunar vistvænni byggingarinnar m.t.t. blágrænna ofanvatnslausna t.d. með gróðurþaki.
Samþykkt
5. 2603068 - Fossnes og Mýrarland - Breyting á Deiliskipulagi; Breiðamýri 8-10
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagbreytingu sem tekur til lóðar Breiðumýrar 8. Nýverið var unnin breyting á deiliskipulagi svæðisins þar sem lóðin var stækkuð á kostnað lóðar 10 sem var samhliða felld út úr skipulaginu. Eftir beiðni frá Eimskip Ísland ehf tilvonandi lóðarhafa lóðarinnar hefur verið óskað eftir frekari stækkun á lóðinni með þeim hætti að allt það svæði sem tók til lóðar 8-10 verði að lóð 8 eftir breytingu. Samtals verður lóðin 14.139 fm eftir breytingu. Samhliða er byggingarreitur lóðarinnar færður í 10 metra fjarlægð frá lóðarmörkum til að að veit enn meira svigrúm fyrir þá starfsemi sem áætluð er innan lóðar. Breytingunum er ætlað að veita Eimskip aukið svigrúm til uppbyggingar innan lóðarinnar til framtíðar.

Skipulagsnefnd Árborgar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Jafnframt mælist nefndin til þess að samhliða verði gerð breyting sem tekur til lóðar Breiðumýrar 5 með þeim hætti að hún verði sameinuð Huldumýri 6. Við það dettur út botnlangi sem þjónustar eftir síðustu breytinngar á skipulaginu eingöngu lóð 5. Aðkoma verður því eingögnu frá Huldumýri 6 eftir breytingu. Mælist nefndin til þess að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
Erindi til kynningar
6. 2206093 - Víkurheiði II-Deiliskipulag
Lögð eru fram til umræðu, vinnslutillaga deiliskipulags fyrir II áfanga athafnasvæðis við Víkurheiði.
Lagt fram til umræðu.
Til kynningar
7. 2603069 - Rannsókn á staðargæðum hverfa á Selfossi.
Lögð er fram til kynningar niðurstöður rannsóknar á staðargæðum nýlegra íbúðarhverfa við Austurbyggð, Gráhellu og Hagaland sem unnin var að Ásdísi Hlökk Theodórsdóttir.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
Til kynningar
8. 2503461 - Tjaldstæði í Hellislandi - Deiliskipulag
Lögð er fram til kynningar vinnslutillaga vegna nýs tjaldsvæðis á Selfossi.
Lagt fram til kynningar.
Til kynningar
Fundargerðir
9. 2602023F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 168
Lögð er fram til kynningar fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 168.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica