Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 162

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
05.03.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir áheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2601408 - Upplýsingar frá mannauðsdeild 2026
Upplýsingar frá mannauðsdeild út febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs kemur inn á fundinn kl.8:20
2. 2601091 - Húsnæðisbreytingar Árbær
Lagt er fram minnisblað sviðsstjóra fjölskyldusviðs, dags. 27. febrúar 2026, um breytingar á húsnæði leikskólans Árbæjar og frekari uppbyggingu á húsnæði fyrir leikskóla við Norðurhóla 5.
Sviðstjóri fjölskyldusviðs fer yfir tillögu þess efnis að unnin verði ítarlegri greining á fyrirhuguðum breytingum á húsnæði leikskólans Árbæjar í samstarfi við starfshóp um leik- og grunnskóla ásamt rekstraraðilum. Bæjarráð samþykkir tillöguna og að hluti þess fjármagns, kr. 8.000.000- sem var áætlað í breytingar í Árbæ verði nýtt til að bæta innra skipulag leikskólans.

Bæjarráð samþykkir einnig að færa fjármagn sem áætlað var í stækkun á leikskólanum Árbæ innan fjárfestingaráætlunar yfir á framkvæmdir við Norðurhóla 5 þar sem fyrirhugað er að færanlegar kennslustofur við Stekkjarskóla verði færðar í sumar. Aukið fjármagn verði nýtt til að bæta við einni færanlegri einingu við húsnæðið. Þá verði fjölgun um tvær deildir og í heildina sex deilda leikskóli að Norðurhólum 5 frá og með haustinu 2026. Sviðstjóra fjölskyldusviðs er falið að vinna áfram að málinu í samstarfi við mannvirkja- og umhverfissvið.
Samþykkt
Heiða Ösp Kristjánsdóttir, sviðstjóri fjölskyldusviðs fer af fundinum kl.8:41
3. 2602317 - Stofnframlög - Félagslegar leiguíbúðir í Árborg
Beiðni Leigubústaða Árborgar ses um stofnframlag vegna kaupa á félagslegri íbúð í Sveitarfélaginu Árborg.
Bæjarráð samþykkir umsókn Leigubústaða Árborgar ses. um stofnframlag að fjárhæð kr. 6.933.128,- til kaupa á einni íbúð á Selfossi. Ekki er þörf á viðauka þar sem gert er ráð fyrir fjármagni í stofnframlög í fjárhagsáætlun 2026. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samningi við Leigubústaði Árborgar ses. um stofnframlag og er bæjarstjóra veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita samninga og skjöl vegna stofnframlags fyrir hönd sveitarfélagsins.
Samþykkt
4. 2403122 - Mannauðsstefna Sveitarfélagsins Árborgar
Lagt er til við bæjarráð að samþykkja uppfærða Mannauðsstefnu Sveitarfélagsins Árborgar ásamt nýrri stefnu um velferð og viðveru starfsfólks sveitarfélagsins Árborgar, sem er telst hluti af mannauðsstefnu sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir stefnurnar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða mannauðsstefnu Sveitarfélagsins Árborgar ásamt nýrri stefnu um velferð og viðveru starfsfólks Sveitarfélagsins Árborgar, sem er hluti mannauðsstefnunnar.
Samþykkt
5. 2603007 - Ósk um færslu á starfsdögum frístundaklúbba
Minnisblað frá forstöðumönnum frístundaklúbbanna Kotsins, Klettsins og Kópsins, þar sem óskað er eftir að færa til starfsdaga vegna fyrirhugaðar fræðsluferðar starfsfólks frístundaklúbbanna til Danmerkur í apríl 2026.
Ekki náðist að taka málið fyrir á síðasta fundi fræðslu- og frístundanefndar og því er málið til afgreiðslu í bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir tilfærslu á starfsdögum vegna fræðsluferðar starfsfólks í samræmi við samþykkt fyrir frístundaheimilin. Lögð er áhersla á að foreldrar verði upplýstir um breytinguna sem fyrst.
Samþykkt
Fundargerðir
6. 2602021F - Eigna- og veitunefnd - 52
52. fundur haldinn 24. febrúar.
7. 2602007F - Skipulagsnefnd - 57
57. fundur haldinn 25. febrúar.
8. 2602026F - Fræðslu- og frístundanefnd - 26
26. fundur haldinn 25. febrúar.
Fundargerðir til kynningar
9. 2602011 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026
993. fundur haldinn 18. febrúar.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 993.pdf
10. 2601407 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2026
252. fundur haldinn 24. febrúar.
Lagt fram til kynningar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:10 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica