Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Skipulags og byggingarnefnd - 78

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
06.10.2021 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sigurjón Vídalín Guðmundsson formaður, Á-lista,
Ari Már Ólafsson nefndarmaður, M-lista,
Kristbjörn Hjalti Tómasson nefndarmaður, S-lista,
Ari B. Thorarensen nefndarmaður, D-lista,
Magnús Gíslason nefndarmaður, D-lista,
Anton Kári Halldórsson skipulagsfulltrúi, Leifur Stefánsson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Ásdís Styrmisdóttir starfsmaður, Sveinn Pálsson byggingafulltrúi.
Fundargerð ritaði: Anton Kári Halldórsson, Skipulagsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2106047 - Hóp - Fyrirspurn v. uppskiptingu lóðar og byggingaráforma
Lagt fram til kynningar lóðablað vegna uppskiptingu lóðarinnar Þykkvaflöt 12.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við uppskiptingu lóðarinnar.
Samþykkt
2. 2105567 - Ástjörn - breyting á deiliskipulagi - Ástjörn 11
Tillaga deiliskipulagsbreytingar var auglýst frá 11. ágúst 2021, með athugasemdafresti til og með 22. september 2021. Deiliskipulagsbreytingin tekur til stækkunar á byggingarreit og fjölgun íbúða úr 20 í 23.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, felur skipulags- og byggingarnefnd, skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna.
Samþykkt
3. 1901275 - Tillaga að deiliskipulagi á Tjarnarstíg Stokkseyri
Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 18. nóvember 2020 með athugasemdafresti til og með 30. desember 2020. Skipulagssvæðið markast af núverandi byggð við Tjarnarstíg, Dalbæjarlandi til norðurs, tjaldsvæði til suðurs og Helgastöðum til austurs. Tillagan felur í sér framlengingu á Tjarnarstíg með 20 nýjum íbúðum á 4 parhúsalóðum, 3 raðhúsalóðum og 3 einbýlishúsalóðum.
Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar, en umsagnir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum. Skipulags- og byggingarnefnd fer yfir innkomnar umsagnir sem leiða ekki til breytinga á tillögunni. Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, felur skipulags- og byggingarnefnd, skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna.
Samþykkt
4. 2107151 - Deiliskipulagsbreyting - Larsenstræti
Húsasmiðjan ehf. óskar eftir því að gerð verði breyting á deiliskipulagi fyrir Larsenstræti. Tillagan gerir ráð fyrir að lóðir nr. 4, 6, 8, 10, 12 og 14 verði sameinaðar í eina lóð. Aðkoma að lóðunum verði sem fyrr frá Larsenstræti en einnig verði gert ráð fyrir aðgangsstýrðri aðkomu að sameinaðri lóð frá Gaulverjabæjarvegi. Sú tenging er einungis hugsuð fyrir þungaflutninga og stórar flutningabifreiðar og ekki æltuð almennri umferð. Erindið var áður tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 11. ágúst, þar sem afgreiðslu var frestað óskað frekari gagna.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
5. 2101098 - Deiliskipulagsbreyting - Eyravegur 26-30
Oddur Hermannsson f.h. Bjarna Kristjánssonar leggur fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Eyraveg 26-30, Selfossi. Lýsing tillögunnar var auglýst til kynningar frá 24. febrúar 2021 með athugasemdafresti til og með 17. mars 2021. Umsagnir bárust frá lögbundnum umsagnaraðilum og brugðist hefur verið við þeim við gerð tillögunnar.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
6. 21051106 - Deiliskipulag - Móskógar L 193753
Tillagan var auglýst frá 30. júní 2021 með athugasemdafresti til og með 11. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust á auglýsingartíma tillögunnar, en umsagnir bárust frá lögboðnum umsagnaraðilum. Tillagan tekur til bygginga á tveimur lóðum, hvor um sig 1ha, sem skipt er úr jörðinni Móskógum. Heimilt verður að byggja íbúðarhús, bílskúr og skemmu á hvorri lóð.
Brugðist hefur verið við umsögn Vegagerðarinnar varðandi aðkomu að lóðunum og útfærsla tengingar unnin í samráði við Vegagerð. Skerpt hefur verið á texta varðandi veitur í samræmi við umsögn Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt og send Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt
Fundargerð
7. 2109018F - Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 75
7.1. 2109289 - Asparland 1-3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Vigra ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 283,0 m2 og 1149,0 m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Einnig staðfesting byggingarstjóra og áritaðir aðaluppdrættir.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.2. 2109310 - Asparland 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Vigra ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 307,6m2 og 1193,5m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Einnig undirritaðir aðaluppdrættir og staðfesting byggingarstjóra.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.3. 2109264 - Asparland 13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Vigra ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 307,6m2 og 1193,5m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Rinnig áritaðir aðaluppdrættir og staðfesting byggingarstjóra.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.4. 2109399 - Björkurstekkur 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Eignir og umsýsla ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 335,6m2 og 1351,8m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.5. 2109266 - Björkurstekkur 34-36 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Sæþórs Pálmasonar sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 356,8m2 og 1540,6m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.6. 2109386 - Björkurstekkur 38 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Einars Björnssonar og Ineta Divra, sækir um leyfi til að byggja parhúshús. Helstu stærðir eru; 358,8m2 og 1365,8m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um leiðréttingu aðaluppdrátta þar sem m.a. komi fram snið milli íbúða.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.7. 2109265 - Björkurstekkur 53-55 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Björgvin Víglundsson fyrir hönd Lagsarnir ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 372,6m2 og 1572,3m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.8. 2109385 - Björkurstekkur 75 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Ingunnar Helgadóttur sækir um leyfi til að byggja einbylishús. Helstu stærðir eru; 201,4m2 og 746,1m3
Afgreiðslu frestað.


Niðurstaða þessa fundar
7.9. 2109277 - Móstekkur 55 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason fyrir hönd Júlíusar Arnars Birgissonar sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 214,6m2 og 870,8m3
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.10. 2109267 - Hásteinsvegur 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson fyrir hönd Kumbaravogs ehf. sækir um leyfi til að byggja parhús. Helstu stærðir eru; 312,6m2 og 1184,4m3
Afgreiðslu frestað.

Niðurstaða þessa fundar
7.11. 2109450 - Kirkjuvegur 18 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Vigfús Þór Hróbjartsson sækir um leyfi til að byggja einbýlishús. Helstu stærðir eru; 271,9 m2 og 863,4 m3.
Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara um tekið verði tilit til athugasemda varðandi merkingu aðaluppdrátta og staðfestingu hönnunarstjóra.

Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi gögn skv. 3. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar liggja fyrir:
- Aðaluppdrættir og skráningartafla, undirritað af hönnuði
- Yfirlýsing byggingarstjóra um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd
- Staðfesting á starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra
- Ábyrgðaryfirlýsing húsasmíða-, múrara-, pípulagninga- og rafvirkjameistara
- Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.

Niðurstaða þessa fundar
7.12. 2109431 - Eyravegur 34b - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Arnar Þór Jónsson fyrir hönd Upprisu ehf. sækir um leyfi til að byggja fjölbýlishús. Helstu stærðir eru; 3611,2m2 og 11198,5m3
Ekki liggja fyrir fullnægjandi gögn skv. 2. mgr.2.4.1 gr. byggingarreglugerðar.
Afgreiðslu frestað.

Niðurstaða þessa fundar
7.13. 2109436 - Eyrargata 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Aðalbjörn Jóakimsson sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýli byggðu úr timbri.
Helstu stærðir 136,9² 313,5³
Afgreiðslu frestað vegna ófullnægjandi gagna.

Niðurstaða þessa fundar
7.14. 2109352 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Seljavegur 4
Jóhanna Sigurjónsdóttir tilkynnir um samþykki nágranna fyrir að setja upp smáhýsi á lóð skv. gr. 2.3.5g og óskar samþykkis sveitarfélagsins til að staðsetja smáhýsið nær lóðarmörkum en 3 m aðliggjandi opnu svæði.
Vísað til samráðsfundar með mannvirkja- og umhverfissviði.

Niðurstaða þessa fundar
7.15. 2109376 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Berghólar 9
Elínborg Gunnarsdóttir og Guðmundur Ingvarsson tilkynna um samþykki nágranna fyrir að setja upp smáhýsi á lóð skv. gr. 2.3.5g.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar.

Niðurstaða þessa fundar
7.16. 2109398 - Tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi - Fagurgerði 9
Róbert Sigurjónsson tilkynnir um samþykki nágranna fyrir að setja upp smáhýsi á lóð skv. gr. 2.3.5g.
Byggingarfulltrúi staðfestir móttöku tilkynningar.

Niðurstaða þessa fundar
7.17. 2109281 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir fjölnota íþróttahús.
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir fjölnota íþróttahús við Engjaveg.
Öryggisúttekt sbr. byggingarreglugerð gr. 3.8.1 hefur verið gerð á nýju fjölnota íþróttahúsi við Engjaveg.
Byggingarfulltrúa staðfestir að mannvirkið uppfyllir öryggis- og hollustukröfur laga um mannvirki og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim.
Byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við að starfsleyfi verði gefið út.

Niðurstaða þessa fundar
7.18. 2109297 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Yogasálir
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir Yogasálir að Eyravegi 35.
Starfsemin er ekki í samræmi við skráða notkun og samþykkta uppdrætti.
Afgreiðslu frestað.

Niðurstaða þessa fundar
7.19. 2109382 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Efnalaug Suðurlands
Heilbrigðiseftirlit Suðurland biður um umsögn vegna endurnýjunar starfsleyfis fyrir efnalaug að Austurvegi 56.
Óskað er umsagnar um hvort starfsemin samrýmist:
a) deiliskipulagi, eða eftir atvikum aðalskipulagi, hvað varðar landnotkun og byggðarþróun
b) samþykktri notkun þeirrar fasteignar sem hún fer fram í.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við endurnýjun starfsleyfisins.

Niðurstaða þessa fundar
7.20. 2107082 - Urriðalækur 14 - Beiðni um umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands biður um umsögn vegna útgáfu starfsleyfis fyrir fótaaðgerðastofu.
Erindið hefur verið grenndarkynnt. Engar athugasemdir bárust.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu starfsleyfis.

Niðurstaða þessa fundar

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 08:45 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica