Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 134

Haldinn í Suðursal, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
20.12.2021 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu: Eggert Valur Guðmundsson formaður, S-lista,
Tómas Ellert Tómasson bæjarfulltrúi, M-lista,
Gunnar Egilsson bæjarfulltrúi, D-lista,
Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2107031 - Kæra - deiliskipulagsbreyting, byggingarreitur Fagurgerði 12 -
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindismála.
Fulltrúi frá Lögmönnum Suðurlandi kemur á fundinn kl. 17:00


Sigurður Sigurjónsson, lögmaður, fór yfir tildrög máls og stöðu þess.
 
Gestir
Sigurður Sigurjónsson lögmaður - 17:00
2. 2112262 - Viðræður um fjárhagsstöðu UMF. Selfoss, handknattleiksdeildar - Covid19
Beiðni framkvæmdastjórnar UMF.Selfoss um fund vegna fjárhagsstöðu UMF.Selfoss/handknattleiksdeildar, vegna Covid19.
Fulltrúar UMF.Selfoss koma á fundinn kl. 17:30.

Fulltrúar UMF Selfoss mættu til fundar við bæjarráð og fóru yfir neikvæð áhrif Covid-19 á fjármál handknattleiksdeildar UMF Selfoss.
Bæjarráð vísar erindinu til frekari umræðu á næsta fundi bæjarráðs og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram í samráði við stjórn UMF Selfoss.
 
Gestir
Guðmundur Kristinn Jónsson UMF Selfoss - 17:45
Viktor Pálsson UMF Selfoss - 17:45
Þórir Haraldsson UMF Selfoss - 17:45
3. 2111453 - Greiðsluþátttaka annara sveitarfélaga - Vinaminni dagdvöl
Tillaga frá 29. fundi félagsmálanefndar, frá 2. desember, liður 9. Greiðsluþátttaka annara sveitarfélaga - Vinaminni dagdvöl.

Félagsmálanefnd styður tillögu að kostnaðar aðkomu annara sveitarfélaga sem landfræðilega geta nýtt sér sértæka dagdvöl fyrir aldraða. Félagsmálanefnd vísaði málinu til frekari afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð samþykkir breytingu á þann veg að fasti kostnaðurinn í dagdvöl Vinaminni deilist á kostnað vegna hvers rýmis en að ekki verði áskriftargjald á sveitarfélög sem ekki eru að nýta rýmin.
4. 21101624 - Reglur um daggæslu í heimahúsum
Ályktun stjórnar Samtaka dagforeldra á Suðurlandi, dags. 7. desember, vegna breytinga á reglum sveitarfélagsins um daggæslu í heimahúsum sem samþykkt var í bæjarstjórn 1. desember sl.
Tómas Ellert Tómasson, M-lista, vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarráð fellst á að fyrirvarinn sé skammur og samþykkir að veittur verði aðlögunartími varðandi aldur barna vegna niðurgreiðslu út febrúar 2022.
Ályktun stjórnar Samtaka dagforeldra á Suðurlandi.pdf
5. 21044178 - Uppbyggingarteymi félags- og atvinnumála í kjölfar COVID-19
Stöðuskýrsla nr. 17.
Lagt fram til kynningar.
Stöðuskýrsla uppbyggingarteymis 10.12.2021 - RA.pdf
6. 2112242 - Umsögn SÍS um fjárlagafrumvarp ársins 2022
Umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. desember, til Alþingis- og nefndarsviðs um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2022.
Lagt fram til kynningar.
Umsögn um frv. til fjárlaga fyrir árið 2022.pdf
7. 2112135 - Áherslur fyrir Suðurland - umsögn SASS vegna frumvarps til fjárlaga 2022
Umsögn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 12. desember, um fjármálastefnu 2022 - 2026 og fjárlagafrumvarp ríkisins 2022.
Lagt fram til kynningar.
Fjárlaganefnd fjárlög 2022 12 12 2021.pdf
8. 2102210 - Skýrsla frá Byggðasafni Árnesinga um Búðarstíg 22 árin
Skýrsla frá Byggðasafni Árnesinga um kaup Byggðasafns Árnesinga á Búðarstíg 22 á Eyrarbakka og yfirlit um framkvæmdir.
Lagt fram til kynningar.
211215Skýrsla um kaup og framkvæmdir að Búðarstíg 22 á Eyrarbakka.pdf
9. 2111253 - Verkfallslisti
Auglýsing um skrá yfir störf hjá Sveitarfélaginu Árborg sem eru undanþegin verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir framlagðan lista yfir störf sem verkfall nær ekki til.
Verkfallslisti Sveitarfélagsins Árborgar 2022.pdf
10. 2112293 - Beiðni frá bæjarfulltrúa D-lista - Sýnataka vegna Covid19 í Krónunni
Beiðni frá bæjarfulltrúa D-lista vegna sýnatöku Covid19 í kjallara Krónunnar.
Bæjarráð mælist til þess við Heilbrigðisstofnun Suðurlands að leita allra leiða til að breyta fyrirkomulagi sýnatöku þannig að ekki skapist sú örtröð í Þóristúni og á Eyrarvegi sem verið hefur að undanförnu og veldur umferð og íbúum talsverðum óþægindum. Bæjarráð telur ljóst að sýnatökustaðurinn í Krónunni anni ekki öllu því álagi sem þangað er beint.
Sýnitaka vegna Covid19 í kjallara Krónunnar.pdf
11. 2105523 - Nafn á nýtt hjúkrunarheimili á Selfossi
Gert er ráð fyrir að starfsemi geti hafist í nýju hjúkrunarheimili á Selfossi í febrúar næstkomandi. Því er orðið tímabært að sveitarfélagið velji nafn á hjúkrunarheimilið.
Bæjarráð leggur til að nafnið Ljósheimar verði nafnið á nýju hjúkrunarheimili enda á það sér sögulegan bakgrunn á Selfossi.
12. 2112300 - Styrkbeiðni - Rekstur Sigurhæða 2022
Styrkumsókn frá Sigurhæðum -þjónustu við þolendur kynbundis ofbeldis á Suðurlandi að upphæð kr. 2.200.036.-
Bæjarráð frestar því að taka afstöðu til erindisins og vísar því til umfjöllunar í félagsmálanefnd.
Styrkumsókn - Sigurhæðir.pdf
13. 21044901 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2021
10 mánaða frávikagreining.
Lagt fram til kynningar.
10 mánaða Rekstraryfirlit málaflokka samanburður 01.01.21..31.10.21.pdf
Fundargerðir
14. 2111017F - Almannavarnarráð - 1
1. fundur haldinn 9. október.
15. 2111019F - Almannavarnarráð - 2
2. fundur haldinn 2. nóvember.
16. 2111041F - Almannavarnarráð - 3
3. fundur haldinn 4. desember.
17. 2112004F - Fræðslunefnd - 39
39. fundur haldinn 8. desember.
18. 2112007F - Eigna- og veitunefnd - 56
56. fundur haldinn 8. desember.
19. 2112011F - Frístunda- og menningarnefnd - 29
29. fundur haldinn 13. desember.
20. 2112001F - Skipulags og byggingarnefnd - 83
83. fundur haldinn 15. desember.
Fundargerðir til kynningar
21. 2101401 - Fundargerðir stjórnar SASS 2021
576. fundur haldinn 3. desember.
576. fundur stj. SASS.pdf
22. 2103023 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2021
904. fundur haldinn 10. desember.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 904.pdf
23. 2111171 - Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs. 2021
Aðalfundur haldinn 24. nóvember.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð Aðalfundar Bergrisans bs. 24.11.21.pdf
Bergrisi húsnæðissjálfseignarstofnun (1).pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:40 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica