Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 70

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
04.03.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir varaforseti bæjarstjórnar,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2211216 - Yfirdráttarheimild fyrir Sveitarfélagið Árborg
Lagt er til að heimila framlengingu á óbreyttri yfirdráttarheimild hjá Landsbanka Íslands á reikningum Sveitarfélagsins Árborgar að upphæð allt að kr. 400.000.000 til sveiflujöfnunar í rekstri. Heimildin gildir til 12 mánaða, frá 5. mars 2026.
Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og lagði eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.

Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."
2. 2602018 - Lántökur 2026 - Sveitarfélagið Árborg
Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi bæjarstjórnar að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 745.000.000,- á árinu 2026 með þeim lánaskilmálum sem býðst á þeim tíma sem lántaka fer fram. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni.

Bæjarstjórn Árborgar hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Bæjarstjórnin samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til endurfjármögnunar afborgana eldri lána sveitarfélagsins hjá Lánasjóðnum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.

Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir þörfum hverju sinni.

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, og Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista, taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, bæjarfulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.

Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."
3. 2602037 - Yfirdráttarheimild fyrir Selfossveitur
Lagt er til við bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar að heimila yfirdráttarheimild hjá Landsbankanum á reikningi Selfossveita að upphæð allt að 50.000.000,- til sveiflujöfnunar í rekstri.

Eigna- og veitunefnd samþykkti yfirdráttarheimild fyrir Selfossveitur á fundi sínum 24. febrúar sl.

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með samtals 7 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og atkvæði Sigurjóns Vídalíns Guðmundssonar, S-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, bæjarfulltrúar B-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og leggja fram eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.

Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."
4. 2602019 - Lántökur 2026 - Selfossveitur
Eftirfarandi er lagt til:
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Selfossveitna hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ábyrgðin nær til láns að höfuðstól allt að kr. 905.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni.

Bæjarstjórnin Árborgar hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.

Er lánið tekið til endurfjármögnun á afborgunum eldri lána félagsins hjá Lánasjóðnum og framkvæmda sem fela í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn Árborgar skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félaginu að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Braga Bjarnasyni, bæjarstjóra, kt. 250481-5359, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Sveitarfélagsins Árborgar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns eftir þörfum hverju sinni.

Eigna- og veitunefnd samþykkti lántöku fyrir Selfossveitur á fundi sínum 24. febrúar sl.

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Álfheiður Eymarsdóttir, Á-lista og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, taka til máls.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samtals með 8, þ.e. 5 atkvæðum D-lista, 1 atkvæði Á-lista og 2 atkvæðum S-lista. Fjóla St. Kristinsdóttir og D-lista, bæjarfulltrúar B-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna.

Arnar Freyr Ólafsson, f.h. beggja fulltrúa B-lista, gera grein atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Fjárhagsstaða Árborgar er að þyngjast á ný í kjölfar þess að viðvarandi taprekstur er á A sjóði Sveitarfélagsins amk. 600 mkr. á árinu 2025.
Ljóst er að núverandi meirihluti finnur ekki aðrar lausnir en að auka við skuldsetningu sveitarfélagsins sem koma fram í fjölmörgum viðaukum undanfarin misseri. Ekki er séð fyrir endann á taprekstri fyrr en í fyrsta lagi 2028.
Á þeim tímapunkti verður nýr meirihluti starfandi og er því ærið verkefni að vinda ofan af hallarekstri núverandi meirihluta sem hefur þó skattlagt
íbúa sveitarfélagsins fram úr hófi á kjörtímabilinu.

Við munum því sitja hjá í afgreiðslu allra fjármögnunarsamninga sem eru samtals 2.313 mkr. og eru til afreiðslu á fundi Bæjarstjórnar í dag."

Fjóla St. Kristinsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð situr hjá við afgreiðslu þeirra fjögurra lánamála sem hér liggja fyrir þar sem nauðsynlegt er að tryggja greiðsluhæfi sveitarfélagsins og standa við skuldbindingar þess. Hins vegar telur undirrituð að málin sýni skýrt að fjármálastjórn meirihlutans hefur ekki skilað þeim árangri sem haldið hefur verið fram.

Samanlagt sýna þessi mál að áfram er verið að fjármagna afborganir eldri lána að einhverjum hluta með nýrri lántöku og halda úti verulegum yfirdráttarheimildum.

Á sama tíma hefur gjaldtaka á íbúa og atvinnulíf aukist verulega á kjörtímabilinu. Sala byggingarréttar og lands hefur skilað umtalsverðum einskiptistekjum. Aukaálag á útsvar skilaði miklum umframtekjum auk þess sem sveitarfélagið fékk aukið fjármagn frá jöfnunarsjóði vegna málaflokks fatlaðs fólks.

Þrátt fyrir þessa verulegu tekjuaukningu blasir nú við að áfram þarf að fjármagna afborganir með nýrri lántöku og framlengja háar yfirdráttarheimildir. Sú staða vekur eðlilega upp spurningar um forgangsröðun og raunverulegan árangur í rekstri.

Af þeim ástæðum getur undirrituð ekki lýst yfir stuðningi við framlagðar tillögur, þótt hún sitji hjá við afgreiðslu þeirra eins og áður sagði af ábyrgð gagnvart rekstri sveitarfélagsins."


Sigurjón Vídalín GUðmundsson, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
5. 2602313 - Lántaka - framkvæmdir við golfvöll Selfoss
Lánaskjal Landsbankans til að ljúka fjármögnun framkvæmda við stækkun Svarfhólsvallar í 18 holur.

Í framhaldi af samþykki bæjarráðs leggur bæjarstjóri til við bæjarstjórn að samþykkja lánið.

Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, B-lista, Ellý Tómasdóttir, D-lista taka til máls.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson leggur fram breytingartillögu um að málinu sé frestað.

Breytingartillagan borin undir atkvæði. Breytingartillagana er felld með 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á lista, en samþykkt með atkvæði Fjólu St. Kristinsdóttur, D-lista, atkvæðum bæjarfulltrúa S-lista og B-lista.

Tillaga um að samþykkja lán, vegna breytinga á fjármögnun uppbyggingar golfvallarins sem koma í stað áætlaðra greiðslna til Golfklúbbs Selfoss úr eldri samningum.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt með samtals 6 atkvæðum, þ.e. 5 atkvæðum D-lista og 1 atkvæði Á-lista. Bæjarfulltrúar B-lista og bæjarfulltrúar S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðsluna. Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista greiddi atkvæði á móti tillögunni.

Fjóla St. Kristinsdóttir gerir grein fyrir atkvæði sínu og leggur fram eftirfarandi bókun:

"Undirrituð greiðir atkvæði gegn tillögu um lántöku Sveitarfélagsins Árborgar vegna fjármögnunar framkvæmda við Svarfhólsvöll.

Þótt markmið framkvæmdanna séu jákvæð og starfsemi Golfklúbbs Selfoss mikilvæg fyrir samfélagið, eins og aðrar íþróttir þá tel ég að með þessari ákvörðun sé verið að stíga nýtt og fordæmisgefandi skref í fjárhagslegri aðkomu sveitarfélagsins að einstökum félagasamtökum. Hér er sveitarfélagið að taka lán í eigin nafni til að fjármagna og endurfjármagna skuldbindingar íþróttafélags. Slíkt fyrirkomulag hefur að mínu viti ekki verið viðhaft áður með þessum hætti.

Með þessari ákvörðun er hætta á að skapist væntingar hjá öðrum félagasamtökum um sambærilega fyrirgreiðslu. Án skýrrar og formlegrar stefnumótunar um slíka aðkomu getur sveitarfélagið staðið frammi fyrir kröfum um jafnræði sem erfitt verður að víkja frá.

Ég tel að áður en ráðist er í lántöku sem þessa þurfi að fara fram heildstæð umræða um hlutverk sveitarfélagsins í fjármögnun verkefna félagasamtaka, setja skýr viðmið og meta langtímaáhrif þessa á fjárhagslega stöðu sveitarfélagsins.

Ábyrg fjármálastjórn kallar á varfærni þegar ný og fordæmisgefandi leið er farin. Af þeim sökum get ég ekki stutt tillöguna."
6. 2602013 - Stefna Sveitarfélagsins Árborgar vegna samfélagsröskunar 2026 - 2029
Tillaga frá 15. fundi Almannavarnarráðs Árborgar, frá 4. febrúar liður 1. Stefna Sveitarfélagsins Árborgar vegna samfélagsröskunar 2026 - 2029.

Lögð fram drög að uppfærðri stefnu Sveitarfélagsins Árborgar vegna samfélagsröskunar.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærða stefnu Sveitarfélagsins Árborgar vegna samfélagsröskunar fyrir árin 2026-2029.

Bragi Bjarnason, D-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista tekur til máls.

Stefna Árborgar vegna samfélagsröskunar 2026-2029 borin undir atkvæði og er samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
7. 2403338 - Ungmennaráð 2024 -2026
Kosning fulltrúa í ungmennaráð Árborgar.

Kjartan Björnsson óskar eftir að víkja á fundi undir þessum lið. Brynhildur Jónsdóttir tekur við fundarstjórn kl. 17:32.

Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristjánsdóttir, D-lista, og Sveinn Ægir Birgisson, D-lista.

Lagt er til að eftirtaldir verði kjörnir í ungmennaráð Árborgar:

UMFS: Steinn Steinarr Steinarsson
UMFS vara: Ásta Björk Óskarsdóttir
Önnur æskulýðsfélög: María Friðmey Jónsdóttir
Önnur æskulýðsfélög vara: Óskar Dagur Kristjánsson
Ungmennaþing: Eva Karen Friðriksdóttir
Ungmennaþing: Guðrún Birna Kjartansdóttir
Ungmennaþing: Óðinn Freyr Hallsson
Ungmennaþing vara: Milena Markowska
Ungmennaþing vara: Elínbjört Heiða Sigurðardóttir
Zelsíuz: Rannveig Helga Kjartansdóttir
Vallaskóli: Örn Hreinsson
BES: Kristrún Birna Guðmundsdóttir
Sunnulækjarskóli: Davíð Bogi Sigmundsson

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 10 atkvæðum.

Kjartan Björnsson kemur aftur inn á fundinn kl. 17:39 og tekur við stjórn fundarins.
Fulltrúar í Ungmennaráð Árborgar 2026.pdf
8. 2601230 - Breyting á samþykktum fyrir Sorpstöð Suðurlands bs
Síðari umræða.

Bæjarstjórn samþykkti að vísa breytingum á samþykktum fyrir SOS til síðari umræðu á 69. fundi.

Tillaga frá 68. fundi bæjarstjórnar um að vísa til síðari umræðu að samþykkja tillögu að breytingum á samþykktum fyrir SOS til síðari umræðu.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Fundargerð aukaaðalfundar 16.01.2026.pdf
Samantekt breytinga á samþykktum.pdf
9. 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 25. mars nk.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Fundargerðir
10. 2601025F - Eigna- og veitunefnd - 51
51. fundur haldinn 27. janúar.
11. 2601022F - Velferðarnefnd - 23
23. fundur haldinn 27. janúar.
12. 2601018F - Skipulagsnefnd - 56
56. fundur haldinn 28. janúar.
13. 2601027F - Ungmennaráð - 11/2025
11. fundur haldinn 26. janúar.
14. 2601034F - Bæjarráð - 158
158. fundur haldinn 5. febrúar.
15. 2602006F - Bæjarráð - 159
159. fundur haldinn 12. febrúar.
16. 2602010F - Ungmennaráð - 12/2025
12. fundur haldinn 9. febrúar.
17. 2602017F - Bæjarráð - 160
160. fundur haldinn 19. febrúar.
18. 2602025F - Bæjarráð - 161
161. fundur haldinn 26. febrúar.
Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, tekur til máls.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:49 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica