Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 148

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
30.10.2025 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir varaformaður, Á-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson varaáheyrnarfulltrúi, S-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri.
Fundargerð ritaði: Bragi Bjarnason, bæjarstjóri
Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista boðaði forföll og Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista kom inn á fundinn í hennar stað.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2503321 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2025
Lagt fram milliuppgjör út ágúst 2025.
Lagt fram milliuppgjör út ágúst 2025.
2. 2510236 - Beiðni um viðauka í fjárhagsaðstoð
Tillaga frá 20. fundi velferðarnefndar frá 21. október liður 5.
Beiðni um viðauka í fjárhagsaðstoð.

Lagt er fram minnisblað vegna beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 fyrir deild fjárhagsaðstoð. Kostnaður hefur farið umfram áætlun, vegna aukningar á framfærslustyrks til einstaklinga. Samkvæmt lögum ber sveitarfélaginu að tryggja einstaklingum, sem uppfylla skilyrði reglna Sveitarfélagsins Árborgar um fjárhagsaðstoð, framfærslustyrk. Um er að ræða lögbundna og óhjákvæmilega útgjaldaábyrgð sveitarfélagsins.

Velferðarnefnd Árborgar tekur undir framkomna beiðni og leggur til við bæjarráð að gerður verður viðauki sem nemur kr. 33.6 m.kr. - við fjárhagsáætlun 2025 vegna fjárhagsaðstoðar. Um er að ræða lögbundna þjónustu samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Bæjarráð tekur undir með Velferðarnefnd Árborgar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2025, þar sem gert hefur verið ráð fyrir auknu fjármagni vegna fjárhagsaðstoðar.
Samþykkt
3. 2510201 - Beiðni um viðauka í barnavernd
Tillaga frá 20. fundi velferðarnefndar frá 21. október sl. liður 6. Beiðni um viðauka í barnavernd 2025.

Lagt er fram minnisblað vegna beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 fyrir deild barnaverndar. Kostnaður hefur farið umfram áætlun, aðallega vegna lögbundinnar þjónustu tengdri úrræðum og sérfræðiþjónustu fyrir börn og fjölskyldur.

Velferðarnefnd Árborgar tekur undir framkomna beiðni og leggur til við bæjarráð að gerður verður viðauki sem nemur kr. 13.000.000- við fjárhagsáætlun 2025 vegna þjónustu barnaverndar.

Bæjarráð tekur undir með Velferðarnefnd Árborgar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2025, þar sem gert hefur verið ráð fyrir auknu fjármagni vegna þjónustu á deild barnaverndar.
Samþykkt
4. 2510253 - Beiðni um viðauka - upplýsingatæknideild
Minnisblað frá deildarstjóra upplýsingatæknideildar, dags. 14. október þar sem óskað er eftir viðauka við upplýsingartæknideild.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2025, þar sem gert hefur verið ráð fyrir auknu fjármagni vegna fyrirsjáanlegrar fjárþurrðar til loka árs 2025 á upplýsingatæknideild. Um er að ræða kostnað m.a. vegna nauðsynlegra verkefna í netvörnum, breytingum í símamálum, aukins fjölda hugbúnaðarleyfa og innleiðingar á málakerfinu WorkPoint, samtals að fjárhæð kr. 24,8 m.kr.
Samþykkt
5. 2510268 - Beiðni um viðauka - frístundaheimili
Minnisblað deildarstjóra frístundaþjónustu dags. 17. október, þar sem óskað er eftir viðauka við vegna frístundaheimila.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun 2025, þar sem gert hefur verið ráð fyrir auknu fjármagni vegna kostnaðar við laun og launatengd gjöld á frístundaheimilum Árborgar. Um er að ræða hækkun vegna fjölgunar þátttakenda frá og með hausti 2025 og fjölgun þjónustuþega með stuðningsþörf, samtals að fjárhæð rúmar kr. 37,3 m.kr.
Samþykkt
6. 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Viðauki nr. 7
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 7 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar(A og B hluta) er neikvæð um kr. 108.741.009,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð jákvæð um kr. 14.625.000,-.

Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta er neikvæð um kr. 110.722.404,- og lækkar því rekstrarafgangur í A hluta og er áætlaður neikvæður um kr. 581.892.000,- eftir að viðauki er samþykktur. Viðaukanum er mætt lækkun á handbæru fé.
Samþykkt
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kom inn á fundinn kl.8:35
7. 2510388 - Fjárhagsáætlun 2026-2029
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og fer yfir drög að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2026-2029.
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri kemur inn á fundinn og fer yfir drög að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2026-2029. Bæjarráð vísar fjárhagsáætluninni til áframhaldandi úrvinnslu á stjórnsýslu- og fjármálasviði fyrir fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Samþykkt
Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri fór af fundinum kl.9:00
8. 2006052 - Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli
Tillaga frá 46. fundi eigna- og veitunefndar frá 21. október liður 2. Bygging grunnskóla í Björkurstykki - Stekkjaskóli.

Farið yfir minnisblað varðandi framkvæmdir við 3.áfanga Stekkjaskóla og húsnæðismál Tónlistarskóla Árnesinga.
Nefndin leggur til við bæjarráð að við hönnun og framkvæmd þriðja áfanga Stekkjaskóla verði gert ráð fyrir byggingu íþróttahúss. Í áfanganum verði tekið mið af því að koma fyrir aðstöðu til íþróttakennslu, æfinga og keppni ásamt áhorfendaaðstöðu fyrir fimleika, handknattleik og mögulega fleiri íþróttagreinum.
Við undirbúning verkefnisins hefur íþróttahluti þriðja áfanga stækkað verulega. Með hliðsjón af breyttum forsendum ásamt aukinni rýmisþörf tónlistarskólans leggur nefndin til að skólanum verði fundinn annar staðsetningarkostur. Tónlistarskólinn verði þá ekki hluti þriðja áfanga Stekkjaskóla heldur verði strax hafin vinna við að finna hentuga staðsetningu að framtíðarhúsnæði fyrir skólann. Nefndin leggur til við bæjarráð að stofnaður verði starfshópur sem fyrst um húsnæði tónlistarskólans.

Bæjarráð tekur undir með eigna- og veitunefnd og samþykkir að í þriðja áfanga Stekkjaskóla verði gert ráð fyrir byggingu íþróttahúss. Í áfanganum verði tekið mið af því að koma fyrir aðstöðu til íþróttakennslu, æfinga og keppni ásamt áhorfendaaðstöðu fyrir fimleika, handknattleik og mögulega fleiri íþróttagreinum.

Bæjarráð tekur einnig undir að stofnaður verðu starfshópur um nýja aðstöðu tónlistarskólans og felur bæjarstjóra að vinna erindisbréf fyrir hópinn og leggja fyrir bæjarráð.
Samþykkt
9. 2510393 - Fyrirkomulag - Hverfisráð Árborgar
Minnisblað bæjarstjóra, dags. 27. október, um fyrirkomulag hverfisráða í Árborg.
Bæjarráð Árborgar samþykkir að hefja vinnu við endurskoðun á samþykktum um hverfisráð í Árborg frá 15.maí 2019. Markmiðið er að endurskoðun ljúki í desember nk. svo skipa megi í hverfisráð í upphafi árs 2026. Bæjarstjóra og bæjarritara er falið að vinna drög að endurskoðuðum samþykktum og leggja til rýni og umræðu í bæjarráði.
Samþykkt
10. 2510303 - Syndum - landsátak í sundi 2025
Erindi frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands dags. 16. október þar sem kynnt er landsátak í sundi sem hefst 1. nóvember nk.
Lagt fram til kynningar.
Tölvupóstur - Syndum - landsátak í sundi, hefst 1. nóvember nk..pdf
Syndum 2025.pdf
11. 2510371 - Styrkbeiðni - Special Olympics í Rúmeníu
Erindi frá Maríu, Sigríði og Huldu Sigurjónsdætrum, dags. 23. október þar sem óskað er eftir styrk vegna keppnisferðar á Special Olympics í Rúmeníu, þar sem þær munu keppa í kraftlyftingum.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið en getur því miður ekki orðið við beiðninni að þessu sinni. Bæjarráð bendir umsækjendum á styrktarsjóð íþróttafélagsins Suðra og Sveitarfélagsins Árborgar sem er úthlutað úr í lok árs í samræmi við styrktarsamning milli félagsins og Árborgar.
Styrkbeiðni - þrjár sunnlenskar systur á leið á Special Olympics í Rúmeníu.pdf
Fundargerðir
12. 2510018F - Umhverfisnefnd - 24
24. fundur haldinn 21. október.
13. 2510019F - Velferðarnefnd - 20
46. fundur haldinn 21. október.
14. 2510022F - Eigna- og veitunefnd - 46
46. fundur haldinn 21. október.
Fundargerðir til kynningar
15. 2301114 - Fundargerðir stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands 2023 - 2026
337. fundur haldinn 7. október.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð SOS 07.10.2025.pdf
16. 2509367 - Aðalfundur Bergrisans bs 2025
Aðalfundargerð haldinn 9. október.
Ásamt fylgigögnum.

Lagt fram til kynningar.
Aðalfundur Bergrisans 2025 - Fundargerð.pdf
17. 2502026 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga 2025
987. fundur haldinn 21. október.
Lagt fram til kynningar.
stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga - 987.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:31 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica