63. fundar bæjarstjórnar, kjörtímabilið 2022 - 2026
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 15. október nk. í Grænumörk 5, Selfossi kl. 16:00.
Dagskrá:
Almenn erindi
- 2502001 - Búgarðabyggð í landi Byggðarhorns, lóðir 7 og 56 - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 51. fundi skipulagsnefndar frá 8. október sl. liður 3. Búgarðabyggð í landi Byggðarhorns, lóðir 7 og 56 -Deiliskipulagsbreyting.
Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi Byggðarhorns Búgarðabyggðar vegna uppskiptingar/fjölgunar lóða. Tillagan var auglýst frá 17. júlí - 28. ágúst 2025. Umsagnir bárust frá Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Náttúruverndarstofnun og Vegagerðinni. Athugasemdir og ábendingar eru settar fram í umsögn Vegagerðarinnar þar sem meðal annars er talað um að fyrirhugaðar breytingar á skipulagi svæðisins uppfylli ekki lágmarkskröfur skv. veghönnunarreglum og getur stofnunin því ekki fallist á tillöguna. Einnig eru ábendingar settar fram í umsögn Náttúruverndarstofnun þar sem áhersla er lögð á að fuglalíf og búsvæði þess verði kortlögð og metin við frekari skipulagsvinnu. Ein athugasemd barst frá Stefáni Guðmundssyni lóðarhafa á svæðinu, þar sem hann m.a. bendir á skort á viðhaldi vegar, auk þessa sem álag á veginn hefur aukist töluvert með fjölgun lóða. Þá beinir hann því til sveitarfélagsins að hefja hið fyrsta lagningu á sverari stofnlögn hitaveitu, til að anna svæði betur, auk þess að gera varanlegar úrbætur á vegi. Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn að samþykkja framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Nefndin telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna þar sem aðkomum að lóðum er ekki fjölgað og núverandi afleggjarar samnýttir. Ekki kemur því til þess að um breytingu á fjölda afleggjara sé að ræða frá núgildandi deiliskipulagi svæðisins. Að mati nefndarinnar er ekki ástæða til að kortleggja svæðið sérstaklega m.t.t. fuglalífs á grundvelli framlagðrar deiliskipulagsbreytingar enda felur hún ekki í sér verulega þéttingu byggðar og áfram er um dreifða byggð að ræða á skilgreindu landbúnaðarlandi. Varðandi athugasemdir íbúa tekur skipulagsnefnd undir áhyggjur er varðar vegamál svæðisins. Mælist nefndin til þess við bæjarstjórn að Vegagerðin verði hvött til aðgerða vegna viðhalds héraðsvegar um svæðið. Varðandi athugasemd er varðar uppbyggingu veitna bendir nefndin á að gera megi ráð fyrir eðlilegum viðhaldi veitna á svæðinu samhliða uppbyggingu í samræmi við umfang og þörf. Nefndin mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. - 2308048 - Nafnabreyting á landi - Hæringsstaðir lóð - Sólveigarstaðir
Tillaga frá 51. fundi skipulagsnefndar frá 8. október sl. liður 4. - Nafnabreyting á landi - Hæringsstaðir lóð - Sólveigarstaðir. Lögð er fram beiðni um breytingu á staðfangi lóðarinnar Hæringsstaðir lóð, L192571. Í breytingunni felst að lóðin taki upp staðfangið Sólveigarstaðir. Skipulagsnefnd mælist til þess við bæjarstjórn að ekki verði gerð athugasemd við nýtt staðfang lóðarinnar. Lóðarhafi er hvattur til að hnitsetja og skilgreina legu landsins með fullnægjandi hætti til framtíðar. - 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Tillaga frá 145. fundi bæjarráðs frá 9. október sl. liður 1. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 6.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 23.788.199,- og verður rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð jákvæð um kr. 123.366.000. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 23.239.149,- og lækkar því rekstrarafgangur í A hluta og er áætlaður neikvæður um rúmar kr. 509.150.000,- eftir að viðauki er samþykktur. Viðaukanum er mætt lækkun á handbæru fé. - 2510084 - Opnunartími - Sundhöll Selfoss
Á 145. fundi bæjarrás var mótatkvæði við afgreiðslu málsins er það því hér lagt fram til afgreiðslu í bæjarstjórn. Samstarf Sundhallar Selfoss og World Class Minnisblað frá deildarstjóra frístundaþjónustu og forstöðumanni sundlauga, dags. 2. október vegna samstarfs Sundhallar Selfoss og World Class. Formaður leggur til við bæjarráð að samstarfssamningur Árborgar og World Class frá 2. október 2015 verði uppfærður í samræmi við aukið framlag World Class við þrif í Sundhöll Selfoss. Einnig að samhliða tilfærslu á verkefnum til World Class verði opnunartími Sundhallar Selfoss lengdur á mánudögum til fimmtudags um 60 mínútur. Lengdur opnunartími taki gildi 24. nóvember 2025 og verði þá frá kl. 06:00-22:00 mánudaga til fimmtudags en óbreyttur á föstudögum og um helgar. Engin viðbótarkostnaður hlýst af breytingunum fyrir sveitarfélagið.
Arnar Freyr Ólafsson, B-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista leggja fram tillögu um að málinu verði frestað. Tillaga um frestun er borin upp til atkvæða og felld með tveimur atkvæðum fulltrúa D- og Á lista en samþykkt af fulltrúa B-lista.
Tillaga formanns borin upp til atkvæða og samþykkt með tveimur atkvæðum Dog Á lista en fram kom mótatkvæði frá fulltrúa B-lista. Málinu er því vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar Árborgar.
Fulltrúar B- og S lista leggja fram eftirfarandi bókun: Undirrituð óska eftir upplýsingum um kostnað sem fellur til miðað við að opnunartími Sundhallar Selfoss sé aukinn annars vegar frá kl. 21:00 til 21:30 og hins vegar til kl. 22:00. Eins og tillagan liggur fyrir vantar skýrari útreikninga á kostnaði. Undirrituð taka fram að þau eru ekki mótfallin lengingu opnunartímans en mikilvægt er að fyrir liggi nákvæm kostnaðargreining til þess að tryggja að ábyrg fjármálastjórnun sé ávallt höfð að leiðarljósi. Einnig óska undirrituð eftir að fá útreikninga á lengingu opnunartíma í sundlaug Stokkseyrar miðað við sem nú er.
Arnar Freyr Ólafsson B-lista
Arna Ír Gunnarsdóttir S-lista
Fulltrúar D- og Á lista leggja fram eftirfarandi bókun:
Enginn kostnaðarauki felst í breytingunni vegna betri samninga við World Class.
Þá er fyrirhugað að lengja opnunartíma í sundlaug Stokkseyrar í fjárhagsáætlunargerð 2026.
Fundargerðir - 2509005F - Fræðslu- og frístundanefnd - 22
22. fundur haldinn 10. september. - 2508018F - Skipulagsnefnd - 50
50. fundur haldinn 10. september. - 2507007F - Velferðarnefnd - 19
19. fundur haldinn 12. september. - 2509014F - Bæjarráð - 142
142. fundur haldinn 18. september. - 2509021F - Bæjarráð - 143
143. fundur haldinn 25. september. - 2509028F - Bæjarráð - 144
144. fundur haldinn 1. október. - 2510005F - Bæjarráð - 145
145. fundur haldinn 9. október.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri