Bæjarráð vísaði erindinu til frekari umræðu á næsta fundi bæjarráðs og fól bæjarstjóra að vinna að málinu áfram í samráði við stjórn UMF Selfoss.
Bæjarráð samþykkir viðspyrnustyrk vegna Covid-19 til handknattleiksdeildar Umf. Selfoss með miðakaupum á þá leiki þar sem þátttaka áhorfenda skerðist vegna Covid-19 fram til vors 2022. Þessi miðakaup samsvari 285 miðum á hvern heimaleik frá ársbyrjun og til loka tímabils í Grill-66 deild kvenna og Olís deild karla. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun 2022 vegna þessara ráðstafana.
Erindi frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, dags. 21. desember 2021, um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2021/2022 - Eyrarbakki og Stokkseyri. Þar sem endanleg úthlutun byggðakvóta til byggðalaga liggur fyrir er sveitarfélögum gefinn frestur til 21. janúar n.k. að senda ráðuneytinu tillögur um sérreglur.
Bæjarráð samþykkir að reglur úthlutunar byggðakvóta verði óbreyttar frá fyrra ári.
Minnisblað frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 20. desember, um nýja og endurbætta útgáfu reiknilíkans Analytica fyrir mánaðarlegan útsvarsstofn.
6. 2201055 - Samráðsgátt - breyting á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
Erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, dags. 5. janúar, þar sem óskað var eftir umsögn um áform um að breyta sveitarstjórnarlögum á þann veg að mælt yrði með skýrari hætti fyrir um hvaða reglur skuli gilda um íbúakosningar. Umsagnafrestur er til 14. janúar nk.
Erindi frá Skáksambandi Íslands, dags. 10. janúar, þar sem óskað var eftir stuðningi frá sveitarfélaginu við að halda Íslandsmótið í skák í Árborg árið 2022.
Það er fagnaðarefni að Skáksamband Íslands skuli velja Íslandsmótinu stað á Selfossi og undirstrikar þann árangur sem hér hefur náðst í eflingu skákstarfs í sveitarfélaginu og þakka má öflugu starfi Skákfélags Selfoss og nágrennis. Bæjarráð samþykkir að styðja Skáksamband Íslands og Skákfélag Selfoss og nágrennis þannig að halda megi Íslandsmótið í skák í sveitarfélaginu í byrjun maí. Bæjarráð samþykkir styrk að upphæð krónur 500.000. Skáksambandið og SSON sjá um umgjörð mótsins. Bæjarráð leggur til að Bæjarstjórn samþykki viðauka vegna málsins.