Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 141

Haldinn að Austurvegi 67, Selfossi,
30.10.2024 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Sveinn Pálsson byggingafulltrúi, Puja Acharya fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Sölvi Leví Gunnarsson aðstoðarbyggingafulltrúi, Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi, Guðjón Birkir Birkisson fulltrúi á skipulags- og byggingarsviði, Guðmundur Gestur Þórisson f.h. slökkviliðsstjóra.
Fundargerð ritaði: Sölvi Leví Gunnarsson, byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn afgreiðslumál
1. 2410368 - Vefur skipogbygg.is
Starfsmenn hafa unnið að gerð upplýsingavefs fyrir skipulags- og byggingarmál með aðstoð tölvudeildar.
Tilgangur vefsins er að draga saman á einn stað upplýsingar um skipulags og byggingarmál til hagsbóta fyrir íbúa og starfsfólk sveitarfélagsins.

Fundurinn samþykkir að birta vefinn sem fyrst með tengli á vef Árborgar þar sem einnig verði opnuð leið fyrir ábendingar og athugasemdir við vefinn.
Gert er ráð fyrir að vefurinn verði leiðréttur og uppfærður eftir þörfum
Samþykkt
2. 2407047 - Arnberg - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Gunnar Örn Sigurðsson hönnunarstjóri fyrir hönd Olís ehf. sækir um leyfi til að byggja stálgrindarhús sem mun hýsa sjálfvirka þvottastöð.
Helstu stærðir eru; 144m² & 644,4m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 1 og er í samræmi við deiliskipulag. Gögn liggja fyrir skv. 2.3.7 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa. Byggingarheimild verður gefin út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðaluppdrættir, leiðréttir og undirritaðir af hönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Byggingarstjóri hefur staðfest ábyrgð sína og starfsábyrgðartryggingu. - Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd.
Samþykkt
3. 2410372 - Búðarstígur 23 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnunarstjóri f.h. Iron Fasteigna sækir um leyfi til að byggja blandaðð hús.
Helstu stærðir: 1.039 m2 og 13.184,1 m3.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa og eldvarnareftirlits Árnessýslu ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
4. 2410345 - Erlurimi 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Samúel Smári Hreggviðsson hönnunarstjóri fyrir hönd Ingunnar Guðmundsdóttur sækir um leyfi til að byggja sólstofu.
Helstu stærðir eru; 33,6m² & 119,4m³.

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar
Vísað í nefnd
5. 2410202 - Norðurbraut 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Harald Ólasonar sækir um leyfi til að byggja einbýli.
Helstu stærðir eru; 191,8m² & 719,7m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
6. 2410346 - Stekkholt 30 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Bent Larsen Fróðason hönnunarstjóri fyrir hönd Loga Geir Þórlákssoonar sækir um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílgeymslu.
Helstu stærðir eru; 20,2m².

Erindinu er vísað til skipulagsnefndar.
Vísað í nefnd
7. 2410300 - Suðurgata 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Sigurður Unnar Sigurðsson hönnuður fyrir hönd Maríu Auðar Steingrímsdóttur sækir um leyfi til að byggja stakstæða byggingu sem verður notuð til matvælaframleiðslu.
Helstu stærðir eru; 31,7 m² og 99,1 m³.

Framkvæmdin er í umfangsflokki 2. Gögn liggja fyrir skv. 2. mgr. 2.4.1 gr. byggingarreglugerðar. Byggingaráform eru samþykkt með fyrirvara á að aðaluppdráttur sé lagfærður í samræmi við athugasemdir byggingarfulltrúa ásamt jákvæðri umsögn Mannvirkja- og umhverfissviðs vegna byggingarhæfi lóða. Byggingarleyfi verður gefið út þegar eftirfarandi liggur fyrir: - Aðal- og séruppdrættir undirritaðir af aðalhönnuði og staðfestir af byggingarfulltrúa. - Yfirlýsingar byggingarstjóra og iðnmeistara um ábyrgð á viðkomandi framkvæmd - Staðfesting á að byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafi verið greidd.
Samþykkt
8. 2410199 - Asparland 3 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, skjólveggur
Guðbjartur Brynjar Friðriksson tilkynnir um samþykki nágranna að Asparlandi 5 fyrir að reisa skjólvegg allt að 1,8 m að hæð nær lóðarmörkum en 3 m. Einnig er tilkynnt um uppsetningu skjólveggja allt að 1,8 m að hæð norð-austan húss að landi sveitarfélagsins.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skjólveggjar skv. samkomulagi nágranna enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt
9. 2410239 - Asparland 5 - Tilkynning um samþykki á byggingaráformum, skjólveggur
Aðalbjörg Hallmundsdóttir tilkynnir um samþykki nágranna að Asparlandi 3 fyrir að reisa skjólvegg allt að 1,8 m að hæð nær lóðarmörkum en 3 m.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við uppsetningu skjólveggjar skv. samkomulagi nágranna enda verði að öðru leyti farið að ákvæðum byggingarreglugerðar gr. 2.3.5 e og leiðbeiningum HMS nr. 2.3.5. Afgreiðslu- og umsýslugjald fyrir smáhýsi, skjólveggi og sólpalla er kr. 22.000,- og verður innheimt af fjármálasviði Árborgar.
Samþykkt
10. 2410254 - Stöðuleyfi - Suðurbraut 15 fyrir gám
Pétur Smári Tafjord óskar eftir stöðuleyfi vegna 40 feta gáms sem notaður verður sem geymsla vegna endurbóta á íbúðarhúsi.
Byggingarfulltrúi samþykkir að veita stöðuleyfi fyrir 40 feta gám tímabilið 30.10.2024-30.10.2025.
Samþykkt
11. 2410277 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir félagsmannaheimili Hestamannafélagsins Sleipnir
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Hestamannafélagsins Sleipni um endurnýjun á starfsleyfi fyrir félagsheimilið að Suðurtröð 6, fnr. F2187397.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu/endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
12. 2104525 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Ræktunarsamband Flóa og Skeiða
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um nýtt starfsleyfi vegna breytinga á húsnæði að Víkurheiði 6, fnr. F2341056.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttek. Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemdir við útgáfu/endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
13. 2410288 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi vegna rekstur á Sandvíkursal
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborg um endurnýjun á starfsleyfi fyrir íþróttasalinn í Sandvíkurskóla að Tryggvagötu 13, fnr. F2185555.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu/endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt
14. 2410296 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir Félagsmiðstöðina Zelzius að Austurvegi 2b
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborg um endurnýjun á starfsleyfi fyrir ungmennahúsið og félagsmiðstöðina Zelzus að Austurvegi 2b, fnr. F2249411 & F2276170.
Uppdráttur af félagsmiðstöðinni liggur ekki fyrir, afgreiðslu frestað.
Frestað
15. 2410298 - Umsagnarbeiðni - starfsleyfi fyrir frístundaheimilið Bifröst
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands óskar eftir umsögn skipulags- og byggingafulltrúa vegna umsóknar Sveitarfélagsins Árborg um endurnýjun á starfsleyfi fyrir frístundaheimilið Bifröst að Tryggvagötu 23b, fnr. F2187472.
Byggingarfulltrúi staðfestir að starfsemin samræmist skipulagi, samþykktri notkun fasteignarinnar og hefur staðist lokaúttektar þar með gerir byggingarfulltrúi ekki athugasemdir við útgáfu/endurnýjun starfsleyfis.
Samþykkt

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:30 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica