Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 59

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
04.06.2025 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista,
Rósa Sif Jónsdóttir ritari.
Fundargerð ritaði: Rósa Sif Jónsdóttir, ritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2410015 - Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag
Tillaga frá 45. fundi skipulagsnefndar frá 28. maí sl. liður 1. Stóra-Hraun L215875 - Deiliskipulag.

Deiliskipulagstillaga tekin til afgreiðslu í kjölfar auglýsingar skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Deiliskipulagið tekur til svæðis undir öryggisfangelsi á Stóra Hrauni L215875, nærri Eyrarbakka í Árborg, skv. meðfylgjandi uppdrætti og greinargerð. Stóra-Hraun er landspilda um 250 ha. að stærð, sem liggur í og við gatnamót að Eyrarbakka og Stokkseyri, og upp með Eyrarbakkavegi, og er áætlað að nýta hluta landsins undir nýtt öryggisfangelsi. Bygging í fyrsta áfanga mun skapa rými fyrir vistun allt að 100 fanga, með stækkunarmöguleikum upp í 128 fanga.
Tillagan er í samræmi við gildandi aðalskipulag Árborgar 2020-2036.
Deiliskipulagstillagan var auglýst í Dagskránni og Lögbirtingarblaði, auk þess sem tillagan var aðgengileg á heimasíðu Sveitarfélagsins Árborgar frá 13. mars, með athugasemdafresti til og með 30. apríl 2025. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, Brunavörnum Árnessýslu, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Minjastofnun, Náttúrufræðistofnun, Náttúruverndarstofnun, auk athugasemda frá landeigenda Efra-Sels.
Helstu atriði umsagna snéru að fráveitumálum, vatnasvæðum, votlendismálum, fuglavernd, auk nokkurra athugasemda frá landeiganda Efra-Sels.

Skipulagsnefnd hefur farið yfir umsagnir og athugasemdir, og hefur sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.

Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagið.

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Farið hefur verið yfir umsagnir og athugasemdir, og sett saman í samantektarskjali viðbrögð við umsögnum og athugasemdum, sem mun fylgja með öðrum gögnum tillögunnar og verða send Skipulagsstofnun til afgreiðslu.
Bæjarstjórn telur að með viðbrögðum í samantektarskjali sé komið til móts við þær umsagnir og athugasemdir sem bárust, og hefur þeim áherslupunktum sem þyngst vega, verið bætt inn í greinargerð tillögunnar, auk þess sem skráðum fornminjum er bætt inn á skipulagsuppdrátt.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til afgreiðslu.
V112 Stóra hraun - Greinagerð uppfært eftir auglýsingu.pdf
V112 Stóra hraun-S101 - uppdráttur uppfærður eftir auglýsingu.pdf
Fornleifaskráning - Stóra-Hraun, Deiliskipulag.pdf
Athugasemd eiganda Efra-Sels 10.4.2025.pdf
Umsögn Náttúrufræðistofnunar 10.4.2025, Stóra-Hraun dsk.pdf
Umsögn Minjastofnunar Íslands 9.4.2025, Stóra-Hraun dsk.pdf
Umsögn HSL 7.4.2025, Stóra-Hraun dsk.pdf
Umsögn Náttúruverndarstofnunar 19.3.2025, Stóra-Hraun dsk.pdf
Umsögn Brunavarna Árnessýslu 17.3.2025, Stóra-Hraun.pdf
Umsögn Vegagerðarinnar 12.3.2025, Stóra-Hraun dsk.pdf
01 Stóra Hraun deiliskipulag -Viðbrögð skipulagsnefndar við umsögnum og athugasemdum.dags. 23.5.2025.pdf
2. 2410079 - Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting
Tillaga frá 45. fundi skipulagsnefndar frá 28. maí sl. liður 2. Austurvegur 61-63. - Deiliskipulagsbreyting.

Kristinn Ragnarsson f.h. Reyrus ehf. leggur fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi. Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð.
Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt leiksvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010, og mælist til að bæjarstjórn Árborgar samþykki tillöguna, og feli skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.

Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.

Lögð fram tillaga að bókun bæjarstjórnar Árborgar um tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðirnar Austurvegur 61 og 63 á Selfossi.
Á lóðinni Austurvegur 61 stendur einnar hæða íbúðarhús með risi ásamt stakstæðri bílgeymslu og á lóðinni Austurvegur 63 stendur tveggja hæða tvíbýlishús ásamt stakstæðri bílgeymslu. Tillagan gerir ráð fyrir að núverandi byggingar á lóðunum verði rifnar og lóðirnar sameinaðar í eina lóð. Þá er gert ráð fyrir stækkun á byggingarreit til norðurs og austurs, auk þess sem heildarnýtingarhlutfall er aukið um 0,1, úr 1,7 í 1.8.
Gert er ráð fyrir byggingu á 3 hæða fjölbýlishúsi auk bílakjallara. Fjöldi íbúða allt að 21. Þá er einnig gert ráð fyrir bílgeymslu neðanjarðar fyrir 17 bíla og 4 bílastæðum ofanjarðar ásamt útisvæði. Fyrir liggur skuggavarpsgreining sem sýnir áhrif af 3 hæða húsi. Aðkoma er frá Heiðmörk.

Bæjarstjórn Árborgar samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum skipulagstillöguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa tillöguna í samræmi við ofangreinda grein skipulagslaga. Bæjarstjórn leggur áherslu á að tillagan verði sérstaklega kynnt íbúum við Heiðmörk, íbúum við Austurveg 55 (austurálma) og Mjólkursamsölunni. (MS)
Austurvegur 61-63 Sel-Deiliskipulagsbreyting 25.05.2025.pdf
3. 2505340 - Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald
Tillaga frá 131. fundu bæjaráðs frá 30. maí sl. liður 3. Endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.

Lögð fram endurskoðuð drög á samþykktum um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti endurskoðun á samþykkt um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald og vísar málinu til umræðu og samþykktar í bæjarstjórn.

Bragi Bjarnason, D-lista fer yfir tillögur að breytingum á endurskoðun á samþykktum um gatnagerðagjald og byggingarréttargjald.

Til máls tekur Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Samþykktir um gatnagerðargjald og byggingarréttargjald með áorðnum breytingum eru bornar undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
4. 2502208 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2025
Tillaga frá 131. fundu bæjarráðs frá 30. maí sl. liður 8. Viðauki við fjárhagsáætlun 2025. Viðauki nr. 2.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 2 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2025.

Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 261.341.742,-
Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 261.341.742,- og lækkar því rekstrarniðurstaða í A hluta um kr. 774.890.000,- eftir að viðauki er samþykktur.
Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 261.341.742,- og verður því rekstrarniðurstaða samantekins A og B hluta áætluð neikvæð um kr. 179.805.000,-.
Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé og útdeilingu úr veikinda- og kjarasamnings launapotti.

Til máls taka Bragi Bjarnason, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki 2 - Fjárhagsáætlun 2025.pdf
5. 2403338 - Kosning fulltrúa frá Sunnulækjarskóla í ungmennaráð Árborgar
Fulltrúi frá Sunnulækjarskóla.
Lagt er til að Björgvin Gunnar Héðinsson verði fulltrúi Sunnulækjarskóla í ungmennaráði Árborgar.

Er það borið undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Fundargerðir
6. 2505002F - Eigna- og veitunefnd - 41
41. fundur haldinn 6. maí.
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, tekur til máls undir lið 1 - Ársreikningur Selfossveitna, lið 2 - Biðskýli á Stokkseyri fyrir Árborgarstrætó.
7. 2505010F - Bæjarráð - 129
129. fundur haldinn 15. maí.
8. 2504024F - Skipulagsnefnd - 44
44. fundur haldinn 14. maí.
9. 2505018F - Bæjarráð - 130
130. fundur haldinn 22. maí.
10. 2505019F - Eigna- og veitunefnd - 42
42. fundur haldinn 20. maí.
Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, tekur til máls undir lið 1 Norðurhólar - Jötunheimar viðbygging og lið 2 - Bygging kennslusundlaugar við Sundhöll Selfoss.
11. 2505017F - Fræðslu- og frístundanefnd - 20
20. fundur haldinn 21. maí.
Brynhildur Jónsdóttir, D-lista tekur til máls undir lið 4 - Flakkandi félagsmiðstöð og leitarstarf í samræmi við samfélagslögreglu, lið 5 - Heildstæð áætlun um náms- og starfsráðgjöf fyrir grunnskóla Árborgar og lið 7 - Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2025-2026.
12. 2505027F - Bæjarráð - 131
131. fundur haldinn 30. maí.
Bragi Bjarnason, D-lista, tekur til máls um lið 9 - Breyting á opnunartíma gámasvæðis.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:44 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica