Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarráð - 12

Haldinn í Setri Egils, Ráðhúsi Árborgar, Austurvegi 2, Selfossi,
01.10.2026 og hófst hann kl. 08:10
Fundinn sátu: Sveinn Ægir Birgisson formaður, D-lista,
Linda Björk Hilmarsdóttir varamaður, D-lista,
Margrét Björk Ólafsdóttir varamaður, S-lista,
Matthías Bjarnason áheyrnarfulltrúi, B-lista,
Þorsteinn Haukur Harðarson varaáheyrnarfulltrúi, C-lista,
Bragi Bjarnason bæjarstjóri, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2603146 - Milliuppgjör og fjárhagstölur 2026
Árshlutauppgjör (6 mánaða) Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn og fer yfir uppgjörið.
Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, kynnir sex mánaða árshlutauppgjör Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2026.
Árborg samstæða Q2 2026 - Loka - til birtingar.pdf
2. 2609171 - FIFA Arena völlur
Beiðni knattspyrnudeildar Umf. Selfoss um yfirlýsingu frá Sveitarfélaginu Árborg um umsókn deildarinnar um FIFA Arena völl við Stekkjaskóla á Selfossi.
Bæjarráð samþykkir að styðja umsókn knattspyrnudeildar Umf. Selfoss um FIFA Arena völl á svæði Stekkjaskóla, enda mun núverandi gervigrasvöllur á skólasvæðinu víkja fyrir fyrirhuguðu íþróttahúsi. Verði umsóknin samþykkt er gert ráð fyrir að Sveitarfélagið Árborg annist jarðvegsskipti, gerð undirlags og lýsingu vallarins. Bæjarráð vísar málinu áfram til fjárhagsáætlunargerðar 2027.
Samþykkt
3. 2609168 - Þjóðarsátt um verðstöðugleika
Erindi frá Starfsgreinasambandi Íslands, dags. 16. september, þar sem óskað er eftir upplýsingum um hvort sveitarfélagið sé reiðubúið að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í eigu þess hækki ekki um meira en 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.
Bæjarráð þakkar Starfsgreinasambandi Íslands fyrir brýninguna um að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Bæjarráð vísar til ályktunar Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september sl., þar sem lýst er yfir vilja sveitarfélaga til að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027 og jafnframt kallað eftir sambærilegu átaki ríkisvaldsins og stofnana í eigu þess. Sveitarfélagið Árborg hefur þegar ákveðið að almennar gjaldskrár A-hluta verði ekki hækkaðar umfram 2,5% á árinu 2027 og tekur þannig virkan þátt í sameiginlegu átaki til að stuðla að lægri verðbólgu, lægri vöxtum og auknum efnahagslegum stöðugleika.
Samþykkt
2026-09-16 Þjóðarsátt um verðstöðugleika.pdf
4. 2609172 - Umsögn - frumvarp til sveitarstjórnarlaga 5. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 17. september, þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp Sveitarstjórnarlög 5. mál. Umsagnafrestur er til og með 1. október.
Bæjarráð fór yfir drög að umsögn um frumvarpið og felur bæjarritara að senda umsögnina inn.
Samþykkt
5. mál sveitarstjórnarlög.pdf
Tölvupóstur - Til umsagnar 5. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis..pdf
5. 2609173 - Umsögn - frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála 4. mál
Erindi frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 17. september, þar sem óskað ef eftir umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum og Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála 4. mál. Umsagnafrestur er til og með 1. október.
Beiðnin lögð fram. Bæjarráð telur ekki þörf á að Sveitarfélagið Árborg skili sérstakri umsögn um frumvarpið.
Samþykkt
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum og lögum og Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála 4. mál.pdf
Tölvupóstur - Til umsagnar 4. mál frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis.pdf
6. 2606025 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030
Lagt er til að áætlaður fundur bæjarráðs 8. október verði haldinn að morgni 7. október, vegna fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að fundur ráðsins sem áætlaður var 8. október verði haldinn miðvikudaginn 7. október að morgni vegna fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Samþykkt
7. 2609148 - Menningarmánuðurinn 2026
Hera Fjölnisdóttir, verkefnastjóri menningar og miðlunar, kemur inn á fundinn og kynnir dagskrá menningarmánaðarins.
Hera Fjölnisdóttir, verkefnastjóri menningar og miðlunar, kemur inn á fundinn og kynnir dagskrá menningarmánaðarins 2026. Bæjarráð þakkar Heru fyrir kynninguna og hvetur íbúa til að kynna sér dagskrá mánaðarins og taka þátt í viðburðum.
Samþykkt
Fundargerðir
8. 2609001F - Skipulagsnefnd - 4
4. fundur haldinn 16. sepetember.
9. 2609017F - Menningarnefnd - 1
1. fundur haldinn 17. september.
Fundargerðir til kynningar
10. 2601211 - Fundargerðir stjórnar SASS 2026
638. fundur haldinn 4. september.
Lagt fram til kynningar.
638. fundargerð SASS_040926_undirrituð.pdf
11. 2606023 - Fundargerðir Farsældarráð Suðurlands - 2026-2030
4. fundur haldinn 27. ágúst.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð 4.fundar FS 27.08.2026_undirrituð.pdf
12. 2601407 - Fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands 2026
257. fundur haldinn 18. septebmber.
Lagt fram til kynningar.
257. fundur fundargerd.pdf

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 9:18 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica