Athugið

Bæjarstjórnarfundur í beinni útsendingu


Fundargerðir

Til baka Prenta
Bæjarstjórn - 50

Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi,
18.12.2024 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar,
Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista,
Fjóla Steindóra Kristinsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista,
Brynhildur Jónsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Helga Lind Pálsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista,
Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista,
Sigurjón Vídalín Guðmundsson bæjarfulltrúi, S-lista,
Arnar Freyr Ólafsson bæjarfulltrúi, B-lista,
Matthías Bjarnason varamaður, B-lista,
Álfheiður Eymarsdóttir bæjarfulltrúi, Á-lista,
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir varamaður, D-lista,
Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari.
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar.


Dagskrá: 
Almenn erindi
1. 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Tillaga frá 110. fundu bæjarráðs, frá 5. desember sl. Viðauki við fjárhagsáætlun 2024.

Bæjarstjóri leggur til við bæjarráð að vísa viðauka nr. 9 til samþykktar hjá bæjarstjórn.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 9 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 vegna eignadeildar, vatnsveitu og Selfossveitna. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 29.730.000. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 23.000.000,- og er því rekstrarafgangur í A hluta áætlaður kr. - 996.680.000,-.

Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 29.730.000,- og er því rekstrarafgangur samantekins A og B hluta kr.-98.726.000,-

Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki_9 - yfirlit rekstraráætlun, yfirlit málaflokka.pdf
2. 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Tillaga frá 111. fundi bæjarráðs frá 12. nóvember, liður 3. Viðauki við fjárhagsáætlun 2024. Viðauki nr. 10.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 10 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 vegna breytinga á fjárfestingaáætlun.

Fjárfestingaáætlun 2024 hækki um 268 m.kr.

Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Til máls tóku Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki 10 - fjárhagsáætlun 2024 - fjárfestingaáætlun 2024.pdf
3. 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Tillaga frá 111. fundi bæjarráðs frá 12. nóvember sl. liður 4.
Viðauki við fjárhagsáætlun 2024. Viðauki nr. 11.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 11 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 vegna Brynju leigufélags. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 17.085.444. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 17.085.444,- og er því rekstrarafgangur í A hluta áætlaður kr. 1.013.765.000,-.

Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 17.085.444,- og er því rekstrarafgangur samantekins A og B hluta kr. -115.811.000,-

Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista og Brynhildur Jónsdóttir, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki 11 - fjárhagsáætlun 2024 (Brynja leigufélag) MS.pdf
4. 2401306 - Viðauki við fjárhagsáætlun 2024
Tillaga frá 111. fundi bæjarráðs frá 12. desember sl. liður 5. Viðauki við fjárhagsáætlun 2024. Viðauki nr. 12.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2024 vegna útdeilingu úr launapotti vegna veikinda og kjarasamningshækkana. Áhrif viðaukans á rekstrarniðurstöðu samstæðu sveitarfélagsins Árborgar er kr. 0. Áhrif viðaukans á sveitasjóð A hluta eru kr. 10.592.000,- og er því rekstrarafgangur í A hluta áætlaður kr. 1.003.173.000,-.

Áhrif viðaukans á samantekinn A og B hluta er kr. 0,- og er því rekstrarafgangur samantekins A og B hluta kr.-115.811.000,-

Viðaukanum er mætt með lækkun á handbæru fé.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Viðauki_12 - yfirlit rekstraráætlun, yfirlit málaflokka.pdf
5. 2310161 - Gjaldskrá fyrir byggingarrétt
Tillaga frá 111. fundi bæjarráðs frá 12. desember sl. liður 6. Gjaldskrá fyrir byggingarrétt.

Kynnt er minnisblað Helga S. Gunnarssyni, ráðgjafa, dags. 30. nóvember 2024 og Braga Bjarnasonar, bæjarstjóra, dags. 9. desember 2024. Lagðar eru til breytingar á gjaldskrá um byggingarréttargjald. Helsta breytingartillagan er tímabundin lækkun á byggingarréttargjaldi á Svæði 1.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Matthías Bjarnason, B-lista

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur til að málinu verði frestað.

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, yfirgefur fundinn við atkvæðagreiðslu.

Tillaga Sigurjóns Vídalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum B-lista og 2 atkvæðum S-lista.

Tillaga að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingarrétt er borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 ákvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum B-lista og 2 atkvæðum S-lista.

Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, mætir aftur til fundarins.
Byggingaréttargjald - án track changes.pdf
6. 2411097 - Gjaldskrár 2025
Tillaga frá 111. fundi bæjarráðs frá 12. desember, liður 7. Gjaldskrár 2025.

Gjaldskrá fyrir nemendur í Setrinu, sérdeildar í Sunnulækjarskóla, með lögheimili utan sveitarfélagsins, skólaárið 2024-2025.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskrá fyrir nemendur í Setrinu, sérdeildar Sunnulækjarskóla, með lögheimili utan sveitarfélagsins skólaárið 2024-2025.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Gjaldskrá Setursins f. nem með lögh. utan svf. 2024-2025.pdf
7. 2411097 - Gjaldskrár 2025
Leiðrétt gjaldskrá fyrir leikskóla Árborgar 2025.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja gjaldskránna.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Gjaldskrá leikskóla 2025 uppfærð v. reiknimistaka f. bæjarstjórn 18.12.24.pdf
8. 2203180 - Reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkt verði að afnema vísitölutengingu viðmiðunarfjárhæða í 1. gr. reglna um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Sveitarfélaginu Árborg árið 2025. Tillagan er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun Árborgar fyrir árið 2025.
Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista, Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista.

Sigurjón Vídalín Guðmundsson, S-lista, leggur fram tillögu um að laun formanns bæjarráðs verði lækkað niður í 21% af þingfararkaupi.

Sveinn Ægir Birgisson, D-lista yfirgefur fundinn undir atkvæðagreiðslu. Þórhildur Dröfn Ingadóttir, varabæjarfulltrúi D-lista, tekur sæti hans á fundinum.

Tillaga Sigurjóns Vídalíns Guðmundssonar borin undir atkvæði, tillagan felld með 6 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 5 atkvæðum D-lista á móti 2 atkvæðum B-lista, 2 atkvæðum S-lista og 1 atkvæði Fjólu S. Kristinsdóttur, D-lista.

Tillaga að um reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna er borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum, 1 atkvæði Á-lista og 6 ákvæðum D-lista. Fulltrúar B-lista og S-lista sitja hjá við atkvæðagreiðslu.

Sveinn Ægir Birgisson, D-lista, mætir aftur til fundarins. Þórhildur Dröfn Ingadóttir, varabæjarfulltrúi D-lista yfirgefur fundinn.

Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
Bragi Bjarnason, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
Fjóla St. Kristinsdóttir, D-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
Arnar Freyr Ólafsson, B-lista, gerir grein fyrir atkvæði sínu.
Reglur um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Sveitarfélaginu Árborg 27.05.2024.pdf
9. 2411391 - Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum
Tillaga frá 110. fundu bæjarráðs frá 5. desember sl. liður 5. Reglur um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum.

Lögð er fram tillaga að breytingum á reglum um afslátt af fasteignaskatti hjá tekjulitlum elli- og örorkulífeyrisþegum ásamt minnisblaði bæjarritara, dags. 28. nóvember 2024.

Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til fullnaðarafgreiðslu í bæjarstjórn.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Bragi Bjarnason, D-lista, leggur til að málinu verði vísað aftur til vinnslu í bæjarráði. Eftir afgreiðslu reglnanna í bæjarráði kom í ljós að tilefni er til endurskoðunar á þaki á afslætti og tekjuviðmiði og því leggur bæjarstjóri til að málinu verði vísað aftur til afgreiðslu í bæjarráði.

Tillaga Braga Bjarnasonar borin undir atkvæði, tillagan samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
10. 2206047 - Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar kjörtímabilið 2022-2026
Síðari umræða.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar.

Kjartan Björnsson, D-lista, yfirgefur fundinn undir þessum lið. Þórhildur Dröfn Ingadóttir, varabæjarfulltrúi D-lista, tekur sæti hans á fundinum. Brynhildur Jónsdóttir, D-lista, tekur við fundarstjórn.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.

Kjartan Björnsson, D-lista, mætir aftur til fundarins. Þórhildur Dröfn Ingadóttir, varabæjarfulltrúi D-lista yfirgefur fundinn.
11. 2205259 - Kosning í embætti og nefndir 2022 - 2026
Breyting á varafulltrúa D-lista í velferðarnefnd.
Breyting varamanni D-lista á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, og Bergrisans bs.
Breyting á varamanni D-lista í fulltrúarráð Héraðsnefndar Árnesinga.

Til máls tók Bragi Bjarnason, D-lista.

Anna Linda Sigurðardóttir, nefndarmaður D-lista, óskar eftir því við bæjarstjórn að hún veiti henni lausn sem varabæjarfulltrúi úr bæjarstjórn frá og með 18. desember 2024.

Lagt er til við bæjarstjórn að gerðar verði eftirfarandi breytingar á fulltrúum D-lista í eftirfarandi nefndum og ráðum í stað Önnu Lindar Sigurðardóttur, D-lista.

Í velferðarnefnd verði Olga Bjarnardóttir, varamaður.
Á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, á aðalfund Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) og á aðalfund Bergrisans verði Viðar Arason, varamaður.
Í fulltrúaráð Héraðsnefndar Árnesinga verði Gísli Rúnar Gíslason, varamaður.

Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
12. 2206157 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2022-2026
Lagt er til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 15. janúar nk.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum.
Fundargerðir
13. 2411017F - Menningarnefnd - 8
8. fundur haldinn 26. nóvember.
14. 2411011F - Eigna- og veitunefnd - 37
37. fundur haldinn 26. nóvember.
15. 2411009F - Skipulagsnefnd - 37
37. fundur haldinn 27. nóvember.
16. 2411022F - Fræðslu- og frístundanefnd - 16
16. fundur haldinn 27. nóvember.
Til máls tók Brynhildur Jónsdóttir, D-lista.
17. 2411015F - Velferðarnefnd - 13
13. fundur haldinn 28. nóvember.
Til máls tók Sveinn Ægir Birgisson, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.
18. 2411030F - Bæjarráð - 110
110. fundur haldinn 5. desember.
Til máls tóku Bragi Bjarnason, D-lista og Arna Ír Gunnarsdóttir, S-lista.
19. 2412007F - Bæjarráð - 111
111. fundur haldinn 12. desember.
Bæjarstjórn Árborgar sendir starfsmönnum og íbúum öllum hugheilar jóla- og nýárskveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða.



Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00 

Til baka Prenta

Eldri fundargerðir

Einnig er hægt að nálgast eldri fundargerðir.

Sjá eldri fundargerðir
Þetta vefsvæði byggir á Eplica