| Bæjarstjórn - 2 |
Haldinn í Grænumörk 5, Selfossi, 22.06.2026 og hófst hann kl. 16:00 |
|
Fundinn sátu: Kjartan Björnsson forseti bæjarstjórnar, Bragi Bjarnason bæjarfulltrúi, D-lista, Sveinn Ægir Birgisson bæjarfulltrúi, D-lista, Brynhildur Jónsdóttir varaforseti bæjarstjórnar, Brynjar Þór Elvarsson varamaður, S-lista, Ellý Tómasdóttir bæjarfulltrúi, B-lista, Matthías Bjarnason bæjarfulltrúi, B-lista, Linda Björk Hilmarsdóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Margrét Björk Ólafsdóttir bæjarfulltrúi, S-lista, Þórhildur Dröfn Ingvadóttir bæjarfulltrúi, D-lista, Heiðrún Kristmundsdóttir bæjarfulltrúi, C-lista, Þórdís Sif Sigurðardóttir bæjarritari. |
|
Fundargerð ritaði: Þórdís Sif Sigurðardóttir, bæjarritari |
|
Í upphafi fundar kallar forseti eftir athugasemdum við útsent fundarboð. Engar athugasemdir eru gerðar. |
|
|
|
Dagskrá: |
|
|
| Almenn erindi |
| 1. 2605365 - Breytingar á samþykktum um stjórn Árborgar og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar - kjörtímabilið 2026-2030 |
Síðari umræða.
Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Sveitarfélagsins Árborgar.
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
| 2. 2605193 - Kosning í embætti og nefndir 2026-2030 |
Lagt er til að nefndin verði svohljóðandi:
Aðalmenn: Kjartan Björnsson, formaður, D-lista Atli Dagur Guðmundsson, D-lista Embla Líf Guðmundsdóttir, D-lista Birgir Marteinsson, C-lista Elísabet Björgvinsdóttir, S-lista Magnús Benediktsson, B-lista, áheyrnarfulltrúi
Varamenn: Helgi Hjaltason, D-lista Þórhildur Dröfn Ingvadóttir, D-lista Björg Agnarsdóttir, D-lista Trausti Jóhannsson, C-lista Herdís Sif Ásmundsdóttir, S-lista Guri Hilstad, B-lista, varaáheyrnarfulltrúi
Tillagan er borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
| 3. 2601095 - Grænamörk, Austurvegur - Aðalskipulagsbreyting |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu að breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna Grænumarkar í samræmi við 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 31 sömu laga að undangenginni samþykkt Skipulagsstofnunar. Bæjarstjórn tekur undir með skipulagsnefnd á að deiliskipulagstillaga sem er í vinnslu fyrir svæðið verði sérstaklega kynnt íbúum svæðisins þegar hún liggur fyrir og leitað verði umsagnar hjá öldungaráði sveitarfélagsins. |
|
|
|
| 4. 2605177 - Aðalskipulag Árborgar 2020 - 2036; Breyting á skilmálum vegna vatnasvæða V1 |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum viðkomandi breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins. Bæjarstjórn fellst á að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að auglýsa niðurstöðu þessa og senda málið Skipulagsstofnun til samþykktar. |
|
|
|
| 5. 2606057 - Fossmúli; Breyting á aðalskipulagi Árborgar; íbúðarsvæði ÍB44 |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum tillögu skipulagsnefndar Árborgar og gerir ekki athugasemd við framlagða beiðni um breytingu á aðalskipulagi og leggur til að hún verði unnin samhliða endurskoðun aðalskipulags sveitarfélagsins og/eða vegna breytingar sem sveitarfélagið ætlar sér að vinna á gildandi aðalskipulagi.
|
|
|
|
| 6. 2606061 - Hásteinsvegur 30; Deiliskiplagsbreyting |
Til máls tekur Bragi Bjarnason, D-lista.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 11 atkvæðum framlagða deiliskipulagsbreytingu til auglýsingar á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins. Tillagan skal sérstaklega kynnt íbúum nærliggjandi lóða. |
|
|
|
| 7. 2606025 - Fundartími bæjarstjórnar og bæjarráðs kjörtímabilið 2026-2030 |
Forseti leggur til að næsti fundur bæjarstjórnar verði 19. ágúst n.k.
Tillagan borin undir atkvæði og samþyktk samhljóða með 11 atkvæðum. |
|
|
|
|
| Fundargerðir |
| 8. 2605026F - Bæjarráð - 1 |
|
|
|
| 9. 2606007F - Bæjarráð - 2 |
|
|
|
| 10. 2606006F - Eigna- og veitunefnd - 1 |
|
|
|
| 11. 2606008F - Fræðslu- og frístundanefnd - 1 - 2026 |
| Til máls tekur Brynhildur Jónsdóttir, D-lista. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:28 |
|